EFQM árangurslíkanið
Grunnhugtök framúrskarandi árangurs og árangurslíkan EFQM
Hugtökin sem leggja grunn að framúrskarandi áranguri
Grunnhugtök framúrskarandi árangurs eiga við um allar tegundir fyrirtækja og stofnana óháð tegund rekstrar, atvinnugrein eða stærð og treysta þann grunn sem árangurslíkan EFQM byggir á.
Nánari lýsingu á þessum grunnhugtökum er að finna í bæklingi EFQM “The Fundamental Concepts of Excellence” en hér eru sýndar skilgreiningar hugtakanna og lýsingar á þeim til útskýringar.
Árangursmiðun
Hugtakið
Að skara fram úr er að ná árangri sem heillar alla hagsmunaaðila fyrirtækisins.
Hvernig hugtakið nýtist í rekstri
Í síbreytilegu umhverfi nútímans eru fyrirtæki kvik, sveigjanleg og viðbragðsfljót þegar þarfir og væntingar breytast, oftar en ekki títt og hratt. Fyrirtæki sem skara fram úr mæla og sjá fyrir þarfir og væntingar hagsmunaaðila, vakta reynslu þeirra og upplifun og vakta og rýna árangur annarra fyrirtækja. Upplýsinga er aflað frá bæði núverandi og verðandi hagsmunaaðilum. Upplýsingarnar eru nýttar við að marka, innleiða og rýna stefnu, markmið, aðgerðir og áætlanir bæði til skemmri og lengri tíma. Upplýsingarnar gera fyrirtækjunum einnig kleift að þróa og ná árangri fyrir alla hagsmunaaðila.
Fókus á viðskiptavini
Hugtakið
Að skara fram úr er að skapa viðskiptavinum virði sem byggja má á til framtíðar (sustainable customer value).
Hvernig hugtakið nýtist í rekstri
Framúrskarandi fyrirtæki þekkja og skilja vel viðskiptavini sína. Þau skilja að viðskiptavinir leggja endanlega dóm á gæði vöru og þjónustu. Þau skilja jafnframt að hollusta viðskiptavina, áframhaldandi viðskipti og aukin markaðshlutdeild hámarkast með skýrum fókus á þarfir og væntingar bæði núverandi og verðandi viðskiptavina. Fyrirtæki sem skara fram úr bregðast við núverandi þörfum og væntingum viðskiptavina. Þegar við á skipta þeir viðskiptavinum í hópa til að ná betri viðbrögðum. Þau vakta það sem viðskiptavinir gera og skilja í hverju samkeppnisyfirburðir þeirra felast. Þeim tekst að sjá fyrir hvernig þarfir og væntingar viðskiptavina verða í framtíðinni og bregðast strax við til að mæta þeim og hugsanlega að fara fram úr þeim. Þau vakta og rýna reynslu og upplifun sína af viðskiptavinum og ef eitthvað fer úrskeiðis er brugðist hratt og markvisst við. Þessi fyrirtæki byggja upp og viðhalda framúrskarandi tengslum við alla viðskiptavini.
Forysta og stefnufesta
Hugtakið
Að skara fram úr er að sýna forystu sem endurspeglar framtíðarhugsun og hvatningu ásamt stefnufestu
Hvernig hugtakið nýtist í rekstri
Fyrirtæki sem skara fram úr hafa stjórnendur sem skilgreina hvert fyrirtækið mun stefna og miðla því. Með því sameina þeir og hvetja aðra stjórnendur til að vekja áhuga sinna starfsmanna. Þeir koma á gildum, siðareglum, fyrirtækjamenningu og stjórnunar¬fyrirkomulagi fyrir fyrirtækið sem skapar fyrirtækinu sérstöðu og gerir það eftirsóknarvert fyrir hagsmunaaðila. Með því að vera góðar fyrirmyndir og ná góðum árangri tekst stjórnendum á öllum stigum í þessum fyrirtækjum að vekja áhuga annarra starfsmanna og fá þá til að vinna að framúrskarandi árangri. Þeir láta verkin tala, þekkja hagsmunaaðila og vinna með þeim að sameiginlegum umbótum. Á tímum óvissu sýna þeir stefnufestu sem vekur traust hagsmunaaðila og fær þá til að taka þátt af heilum hug. Um leið sýna þeir hæfileika til að laga sig að hröðu og síbreytilegu umhverfi fyrirtækisins með því að endurstilla stefnu fyrirtækisins og fá starfsmenn fyrirtækisins til að vera samstíga.
Stjórnun með ferlum og staðreyndum
Hugtakið
Að skara fram úr er að stýra fyrirtækinu með samofnum og tengdum kerfum, ferlum og staðreyndum.
Hvernig hugtakið nýtist í rekstri
Fyrirtæki sem skara fram úr eru með virkt stjórnkerfi sem byggir á og er hannað til að uppfylla þarfir og væntingar hagsmunaaðila. Kerfisbundin innleiðing á stefnu, markmiðum og áætlunum kemst til framkvæmda og er tryggð með skýrum og samþættum ferlum. Þessi ferli eru framkvæmd, þeim stjórnað og þau endurbætt dag frá degi. Ákvarðanir eru byggðar á áreiðanlegum upplýsingum sem endurspegla bæði núverandi og áætlaðan árangur, þarfir hagsmunaaðila, væntingar og reynslu, sem og árangur annarra fyrirtækja, þ.m.t. keppinauta þegar við á. Áhætta er greind út frá skýrum árangursmælikvörðum og henni stjórnað á skilvirkan hátt. Fyrirtækið lýtur stjórn sem er mjög fagleg og uppfyllir að lágmarki öll ytri skilyrði um stjórnarstörf og stjórnun fyrirtækisins. Viðeigandi fyrirbyggjandi aðgerðir eru greindar og innleiddar, sem vekja traust og tiltrú hagsmunaaðila.
Þróun og þátttaka starfsmanna
Hugtakið
Að skara fram úr er að hámarka framlag starfsmanna með þróun þeirra og þátttöku.
Hvernig hugtakið nýtist í rekstri
Fyrirtæki sem skara fram úr greina og skilja þá hæfni sem nauðsynlegt er að búa yfir, bæði nú og í framtíðinni, þannig að unnt sé að koma stefnu, markmiðum og áætlunum í framkvæmd. Þessari hæfni er náð með ráðningum og starfsþróun og eru starfsmenn studdir dyggilega og á jákvæðan hátt. Stuðlað er að starfsþróun og stutt við hana með því að leyfa starfsmönnum að njóta sín til fulls. Fyrirtækin undirbúa starfsmenn sína undir að takast á við þær breytingar sem krafist er, bæði hvað varðar breytingar í starfseminnni og einnig persónulegri færni.
Þau veita athygli síauknu mikilvægi þekkingarauðs starfsmanna og nýta sér kunnáttu þeirra fyrirtækinu til framdráttar. Þau reyna að hugsa vel um, viðurkenna og umbuna starfsmönnum þannig að starfsmenn séu reiðubúinir að bera ábyrgð og séu hliðhollir fyrirtækinu. Þau hámarka þá möguleika sem búa í starfsmönnum og þátttöku þeirra með sameiginlegum gildum og fyrirtækjabrag sem einkennist af trausti, opnum tjáskiptum og þátttökustjórnun. Þau nýta sér þátttöku starfsmanna til að skapa og innleiða umbótahugmyndir.
Lærdómur, nýsköun og umbætur
Hugtakið
Að skara fram úr er bjóða stöðugleika byrginn og koma á breytingum með því að nýta reynslu við nýsköpun og umbætur.
Hvernig hugtakið nýtist í rekstri
Fyrirtæki sem skara fram úr læra sífellt, bæði af eigin starfsemi og frammistöðu en einnig annarra. Þau beita samanburðargreiningu af nákvæmni, bæði innan fyrirtækis og utan. Þau grípa og miðla þekkingu starfsmanna til að geta lært sem mest í öllu fyrirtækinu. Tekið er við hugmyndum hagsmunaaðila með opnum huga og þær nýttar. Starsfmenn eru hvattir til horfa lengra en til líðandi stundar og þess sem fyrirtækið er fært um í augnablikinu. Fyrirtækin eru meðvituð um verðmæti þekkingarauðs sem þau varðveita og nýta í viðskiptalegum tilgangi eins og við á. Starfsfólkið vinnur stöðugt að breytingum, nýsköpun og umbótum sem færa fyrirtækinu virðisauka.
Þróun samstarfs
Hugtakið
Að skara fram úr er að þróa og viðhalda virðisaukandi samstarfi.
Hvernig hugtakið nýtist í rekstri
Fyrirtæki sem skara fram úr gera sér grein fyrir því að í síbreytilegum heimi, þar sem kröfur aukast í sífellu, er árangur háður því samstarfi sem fyrirtækin þróa. Þau leita eftir samstarfi við önnur fyrirtæki og byggja það upp. Þetta samstarf gerir fyrirtækjunum kleift að bæta lykilhæfni sína og færa hagsmunaaðilum aukið virði. Samstarfið getur verið við viðskiptavini, samfélagið, birgja eða jafnvel keppinauta og grundvallast á vel skilgreindum og gangkvæmum ávinningi. Samstarfsaðilar vinna saman að því að ná sameiginlegum markmiðum, styðja hver annann með sérkunnáttu, auðlindum og þekkingu og byggja upp langtíma samband sem byggir á gagnkvæmu trausti, virðingu og opnum tjáskiptum.
Samfélagsleg ábyrgð
Hugtakið
Að skara fram úr er fara fram úr lágmarkskröfum í lögum og reglum sem gilda um starfsemi fyrirtækisins og leggja sig fram um að skilja og bregðast við væntingum hagsmunaðaila sinna í samfélaginu.
Hvernig hugtakið nýtist í rekstri
Fyrirtæki sem skara fram úr tileinka sér mjög siðferðislega hegðun sem felst í því að vera gagnsæ og ábyrg gagnvart hagsmunaaðilum varðandi frammistöðu sína sem ábyrgt fyrirtæki. Þau huga að og styðja í verki samfélagslega ábyrgð og sjálfbæran vistbúskap nú og í framtíðinni. Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækisins kemur fram í gildum þess og er samofin starfseminni. Með því að vera í góðu sambandi við hagsmunaaðila uppfylla fyrirtækin og fara fram úr væntingum og lögbundnum kröfum samfélagsins, bæði nær og fjær þar sem það á við. Auk þess að stjórna áhættu leita þau að tækifærum til að taka þátt í gagnlegum verkefnum með samfélaginu sem eru hvetjandi og um leið til þess fallin að viðhalda fyllsta trausti hagsmunaaðila. Þau eru meðvituð um áhrif fyrirtækisins á samfélagið í nútið og framtíð og er umhugað að lágmarka öll neikvæð áhrif þess.

