Hugbúnaðarprófanir
Faghópur um hugbúnaðarprófanir (Hugbúnaðarprófanir)
Faghópur um hugbúnaðarprófanir og er byggður á grunni Félags um hugbúnaðarprófanir (ICEQAF) sem hefur starfað af krafti um skeið.
Markmið
Markmið faghópsins er að stuðla að bættri þekkingu og fagmennsku við hugbúnaðarprófanir. Félagið vill einnig auka samskipti milli þeirra sem vinna við hugbúnaðarprófanir, miðla reynslu annarra og kynna nýjungar. Auk þess vill félagið styrkja sambandið við háskólasamfélagið, kynna rannsóknir á sviði hugbúnaðarprófana og hvetja til meiri kennslu á prófunum í hugbúnaðargerð.
Hvað er Hugbúnaðarprófanir
Hugbúnaðarprófanir er skoðun á hugbúnaði eða kerfi til að staðfesta hvort gæði kerfisins uppfylli kröfur sem til þess er gert gagnvart ætlaðri notkun þess. Þær gefa einnig hlutlausa mynd af hvernig hugbúnaðurinn virkar gagnvart notandanum og skilning á þeim áhættuþáttum sem fylgir innleiðingu hans.
Hugbúnaðarprófanir geta falið í sér eftirfarandi þætti sem eru leiddir af hönnun og þróun hugbúnaðarins:
- Að hugbúnaðurinn uppfylli viðskipta-, og tæknilegar kröfur sem voru notaðar til hönnunar og þróunar hans.
- Sé nothæfur
- Hægt sé að setja hugbúnaðinn upp og innleiða hann með sömu eiginleikum og til hans var ætlast.
Tegundir og aðferðir notaðar til prófunar geta m.a. falið í sér eftirfarandi:
- Innleiðingarprófanir (Integration testing)
- Kerfisprófanir (System testing)
- Virkniprófanir (Functional testing)
- Prófun annarra þátta en virkni (non-functional testing)
- Gagnagrunnsprófanir (Database testing)
- Þolprófanir (Performance and Load testing)
- Viðtökuprófanir (Acceptance testing)
Hvernig starfar hópurinn
Faghópurinn hittist u.þ.b. einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. Fundirnir eru oftast þannig að sérfræðingur og/eða reynsluboltar eru fengnir til að fjalla um tiltekið málefni. Að loknum fyrirlestri er gert ráð fyrir umræðum og fyrirspurnum.
Fyrir hvern
Hópurinn er fyrir alla þá sem vinna við hugbúnaðarprófanir og þá sem hafa áhuga á viðfangsefninu. Allir þeir sem hafa áhuga eru hvattir til að mæta á fundina og kynna sér málin.
Fundartími
Hópurinn hittist u.þ.b. einu sinni í mánuði yfir vetrartímann en allar nánari upplýsingar um starfið má sjá á dagskrá félagsins.
Dagskrá
Fundir starfsárið 2009-2010
Allt efni frá fundum birtist nú í vef-Dropanum
26. febrúar
Agile hugmyndafræði hjá Betware
25. nóvember
The testing and Test Control Notation version 3 (TTCN-3) & Innleiðing á QTP prófunartólinu hjá Lands.
30. september
Sjálfvirkar prófanir
Fundir á starfsárinu 2008-2009
12. október stóð hópurinn fyrir fjölmennum fundi hjá CCP. Fyrirlesarar voru Ryan O'Neill, Quality Assurance CCP og Theódór Gíslason Sérfræðingur í gæða- og öryggismálum hjá Teris
FACEBOOK
Stofnaður hefur verið hópurinn Hugpró á Facebook skráið ykkur endilega í hann.
NÓVEMBER
6. nóvember ætlum við að hittast á Oliver kl 17:30 Tilboð verður á veitingum.
20. nóvember verða svo sagðar fleiri reynslusögur á morgunverðarfundi sem verður haldinn hjá Skýrr.
Leiðtogar
| Nafn | Starfsheiti | Fyrirtæki | Netfang |
| Bjarghildur Finnsdóttir (Formaður) | Millistjórnandi | Arion banki | bjarghildur.finnsdottir@kaupthing.com |
| Hörður Sverrisson | Gæðastjóri | Calidris | hordur@calidris.com |
| Rosalie Lapasanda Baring | Annað | Íslandsbanki | rosalie.lapasanda.baring@islandsbanki.is |
| Sigurbjörg Gróa Vilbergsdóttir | Millistjórnandi | Landsbanki NBI hf. | sigurbjorg.g.vilbergsdottir@landsbankinn.is |
| Snorri Salvarsson | Verkefnastjóri | Borgun | ss@borgun.is |

