Aðild að Stjórnvísi og félagsgjöld
Aðild að Stjórnvísi er opin öllum bæði fyrirtækjum og einstaklingum. Upphæð félagsgjalda fyrirtækja fer eftir starfsmannafjölda. Allir starfsmenn aðildarfyrirtækja fá aðgang að faghópafundum félagsins sér að kostnaðarlausu.
Félagsgjöld starfsárið 2011
- Fyrirtæki með fleiri en 200 starfsmenn: 98.900
- Fyrirtæki með 100 - 199 starfsmenn: 78.900
- Fyrirtæki með 50 - 99 starfsmenn: 49.280
- Fyrirtæki með 25 - 49 starfsmenn: 36.000
- Fyrirtæki með færri en 25 starfsmenn: 19.800
- Einstaklingar: 9.800
Nemendur á háskólastigi fá fría aðild að félaginu til eins árs í senn. Nemendur skrá sig sem "háskólanema" í skráningarferlinu og félagið áskilur sér rétt til að leita staðfestingar á skólavist hjá viðkomandi háskóla.