Grunnlíkan Íslenskrar/Evrópskrar ánægjuvogar

Á myndinni sést hvernig þættirnir sex, sem mældir eru í ánægjuvoginni, eru tengdir saman í orsakalíkan. Ánægja viðskiptavina er í forsæti í líkaninu. Þannig hafa þættir sem eru fyrir ofan og til vinstri við ánægju áhrif á hana. Ánægja hefur síðan jafnan mikil áhrif á tryggð viðskiptavina við fyrirtæki.

Svona líkan er reiknað fyrir hvert fyrirtæki sem er athugað; þannig að forsvarsmenn þess geta séð hve mikið hver þáttur hefur áhrif á ánægju; og hve mikil áhrif ánægja hefur á tryggð (ekki sýnt á mynd). Þar sem nokkrar spurningar eru að baki hverjum þætti geta fyrirtæki kannað hvar veikleikar og styrkleikar liggja í mikilvægum þáttum.

Óháð þessu líkani eru beinar tölur fyrir hvern þátt á kvarðanum 0-100, sem fást fyrir hvert fyrirtæki, hverja atvinnugrein og hverja þjóð. Í framhaldinu eru slíkar tölur birtar fyrir ánægju viðskiptavina, þar sem fyrirtæki á Íslandi í ólíkum atvinnugreinum eru borin saman. Þá eru atvinnugreinar og þjóðir bornar saman þar sem um staðlaðar spurningar er að ræða; óháð fyrirtæki, atvinnugrein og þjóð.

Langmesta áherslu fær ánægja viðskiptavina; bæði í líkani og umfjöllun. Þannig er þeim skilaboðum beint til fyrirtækja að viðskiptavinir skipta mestu máli. Þá hafa rannsóknir, meðal annars í Bandaríkjunum, sýnt fram á sterk jákvæð tengsl á milli ánægju viðskiptavina tiltekinna fyrirtækja og afkomu sömu fyrirtækja. Niðurstöður ánægjuvogarinnar í Bandaríkjunum fyrir stórfyrirtæki þar í landi eru birtar opinberlega ársfjórðungslega og hefur sú birting jafnan áhrif á gengi hlutabréfa fyrirtækjanna, sem sýnir trú fjárfesta á að ánægja viðskiptavina skipti máli.