Dropinn - tímarit um stjórnun
Nú hefjum við tilraun til nýsköpunar í útgáfu Dropans. Ætlunin er að birta á vef Stjórnvísi, undir nýju merki Dropans, efni tengt stjórnun á breiðum grunni. Fyrirhugað er að þetta verði áhugaverðar greinar um stjórnun og (árangurs)stjórnunaraðferðir, viðtöl við stjórnendur og fræðimenn á sviði stjórnunnar, fréttir af starfi Stjórnvísi og rannsóknum á sviði stjórnunar, reynslusögur af innleiðingum stjórnunaraðferða, kynning á áhugaverðum vefsíðum og bókum osfrv.
Nú hvetjum við áhugasama félagsmenn til að taka þátt í greinaskrifum (mega vera allt frá örgreinum til lengri fræðilegra greina), til að vekja athygli á uppáhaldsbókinni eða vefsíðunni, benda á áhugaverða stjórnendur sem eru að gera góða hluti og einfaldlega láta hugmyndaflugið ráða.
Allt efni sem birtist undir merki Dropans má vera hvort sem er á íslensku eða ensku.
Varðandi nemendaritgerðir þá er áhugavert að taka útdrætti ti birtingar - sérstaklega úr MA verkefnum sem tengjast stjórnun beint. Þá er ágætt að hafa í huga að rannsóknarspurning verkefnisins komi skýrt fram og síðan hver niðurstaðan er.
HUGMYND AÐ EFNI Í DROPANN
Dropinn 2009
Ágúst tbl.
"BREYTTAR FORSENDUR KALLA Á NÝJA FRAMTÍÐARSÝN"
Höf. Guðrún Ragnarsdóttir viðskiptafræðingur og MBA
"Nú þegar íslenskt viðskiptalíf er að ganga í gegnum miklar umbreytingar og uppstokkun er mikilvægt að horfa til framtíðar. Slíkar víðtækar breytingar skapa oft mikil tækifæri og því er nauðsynlegt að staldra aðeins við og endurmeta og kortleggja stöðuna. Það má hins vegar ekki staldra of lengi við heldur verða menn að vera fljótir að átta sig á því hvaða tækifæri eru til staðar þannig að hægt sé að einbeita sér að því að nýta þessi tækifæri fyrirtæki sínu til framdráttar. Að því loknu þarf að fylgja markvisst eftir innleiðingu þeirra breytinga (stefnu) svo að árangur náist." segir Guðrún ma. í einkar athyglisverðri og hvetjandi grein. Þess má geta að Guðrún er einn af heiðursfélögum Stjórnvísi og starfar nú sem framkvæmdastjóri LÍN. Greinina í heild má lesa með því að smella á heiti hennar hér ofar.
Eldri Dropar
Dropinn 2007
1. tbl. 2007
Dropinn 2006
3. tbl. 2006
2. tbl. 2006
Dropinn 2005
3. tbl. 2005
2. tbl. 2005
Dropinn 2004
3. tbl. 2004

