Stjórnvísi

Félag um framsækna stjórnun

Faghópar


Fréttasafn

  • 27. jan 2011

    Bein tenging á milli sköpunargleði og grænnar gleði hjá Íslenska gámafélaginu

    mynd með frétt

    Hjá Íslenska gámafélaginu er bein tenging á milli sköpunar og grænnar gleði.  Íslenska gámafélagið tók vel á móti Stjórnvísifélögum í morgun sem fengu að fara útsýnisferð um svæðið að loknum fundi.  Gildi þeirra eru GRÆN sem stendur fyrir Gleði-Reynsla-Ævintýri-Nákvæmni.  Glærur frá fundinum munu birtast í vef-Dropanum og meðfylgjandi eru myndir frá fundinum. 

    meira...
  • 21. jan 2011

    Áhugasamir Stjórnvísifélagar móta stefnu félagsins

    mynd með frétt

    Í tilefni 25 ára afmælis Stjórnvísi fékk stjórn Stjórnvísi félagsmenn til liðs við sig við stefnumótunarvinnu og að móta framtíðarsýn.  Sams konar fyrirkomulag var notað og á Þjóðfundinum og höfðu þátttakendur gagn og gaman af.  Niðustöður stefnumótunarvinnunnar verða kynntar á fundi í lok janúarmánaðar. Meðfylgjandi eru myndir af frá stefnumótunarfundinum.
     
    You are invited to view Grimms's photo album: Stefnumótun Stjórnvísisfélaga

    meira...
  • 18. jan 2011

    Mikill áhugi á stjórnendahandbókum

    mynd með frétt

    Vodafone tók vel á móti Stjórnvísifélögum á fundi Mannauðsstjórnunarhóps í morgun.  Fundarefnið Stjórnendahandbók - verkfærakista stjórnandans höfðaði vel til Stjórnvísifélaga því rúmlega 80 manns mættu á fundinn.   Þrír mannauðsstjórar kynntu stjórnendahandbækur fyrirtækja sinna og eru þær í dag að færast yfir í að vera stjórnendavefir.  Handbækurnar eru til að tryggjá að allir séu í takt þvert yfir fyrirtækin.  Mikilvægt er að gera þarfagreiningu á því hvað stjórenndur vilja sj

    meira...
  • 13. jan 2011

    Pistlaskrif Stjórnvísifélaga í Viðskiptablaði Mbl. alla fimmtudaga

    mynd með frétt

    Margrét Reynisdóttir stjórnarformaður Stjórnvísi fjallaði um þjónustu í pistli sínum "Þjónustan ofar öllu".  Þar kemur fram mikilvægi þess að allir starfsmenn sem fyrirtæki ráða til sín eigi að vera þjónustulundaðir.  Stundum er sagt að fyrirtæki í framleiðslu þurfi ekki að hugsa um þjónustu því þau séu að framleiða og það sé nóg að sölumennirnir séu þjónustusinnaðir út á við.  Það er misskilningur.  Greinina má sjá í heild sinni í vef-Dropanum.

    meira...
  • 12. jan 2011

    Strætó - nýtt Stjórnvísifyrirtæki

    mynd með frétt

    Stjórnvísi býður Strætó hjartanlega velkomið í hópinn. Strætó bs. hóf starfsemi hinn 1. júlí 2001 og tók við verkefnum SVR og AV. Þessi tvö fyrirtæki sinntu áður almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu; SVR í Reykjavík, Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ, en AV í Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ og Bessastaðahreppi.
     
    Saga almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu nær aftur til ársins 1931. Það ár var fyrirtækið Strætisvagnar Reykjavíkur hf. stofnað. Fyrsta ferðin var farin 31. október það ár.

    meira...
  • 12. jan 2011

    Áhugaverðir fundir í næstu dögum

    18.janúar Stjórnendahandbókin - verkfærakista stjórnandans
    20.janúar Þér er boðið: Félagsmenn móta stefnu Stjórnvísi
    25.janúar Lean - Kynning í Össur á Value Stream Mapping kortlagningu virðisstrauma

    meira...
  • 11. jan 2011

    Pósthúsið - nýtt Stjórnvísifyrirtæki

    mynd með frétt

    Stjórnvísi býður Pósthúsið velkomið í félagið.   Pósthúsið ehf. er öflugt dreifingarfyrirtæki á sviði blaða- og vörudreifingar.  Hjá Pósthúsinu ehf. starfa um 600 manns að uppbyggingu á fjölbreyttum og skemmtilegum vettvangi. 

    Þjónustu- og dreifingarsvæði Pósthússins ehf. er fyrst og fremst stór höfuðborgarsvæðið og Akureyri  

    Pósthúsið ehf. var stofnað í lok árs 2004 og hefur nú þegar byggt upp dreifikerfi fyrir blaða- og bréfasendingar sem nær til um 79.000 heimila.   Drei

    meira...
  • 9. jan 2011

    Nethönnun - nýtt Stjórnvísifyrirtæki

    mynd með frétt

    Stjórnvísi býður fyrirtækið Nethönnun hjartanlega velkomið í félagið.  Nethönnun býður upp á alhliða rekstur og viðhald á netbúnaði, vélbúnaði og hugbúnaði. Tæknimenn þeirra eru stöðugt á varðbergi gagnvart truflunum og bilunum.

     

    Viðhald og rekstur net- og vélbúnaðar
    Til að tryggja öruggt viðhald setjum við upp ýmsa skynjara á bæði net- og vélbúnað svo við getum brugðist við vandamálum áður en þau koma upp. Skynjararnir senda frá sér aðvörun ef ástand búnaðar er óeðlilegt o

    meira...
  • 6. jan 2011

    Pistlaskrif Stjórnvísifélaga í Viðskiptablaði Mbl.

    mynd með frétt

    Á hverjum fimmtudegi birtast pistlar sem eru skrifaðir af Stjórnvísifélögum í Viðskiptablaði Mbl.  Grein Helgu J. Oddsdóttur heitir "Nýttu þekkingu starfsfólksins til fulls.   Þar fjallar hún um að ein af helstu áskorunum stjórnenda í dag felist í því að fá starfsfólk til að hugsa út fyrir kassann, takast á við fleiri krefjandi og jafnvel framandi verkefni. Greinina í heild sinni má sjá í Vef-dropanum þar sem allar greinar eru birtar. http://stjornvisi.is/vef-dropinn/greinaraislensku/

    meira...
  • 6. jan 2011

    VSI Öryggishönnun og ráðgjöf Nýtt Stjórnvísisfyrirtæki

    mynd með frétt

    Stjórnvísi býður fyrirtækið VSI - Öryggishönnun og ráðgjöf velkomið í Stjórnvísi. VSI hefur í tuttugu ár einbeitt sér að öryggismálum og öryggisráðgjöf. Á þeim tíma hafa þeir þjónað breiðum og fjölbreyttum hópi viðskiptavina. VSI hefur starfað fyrir fyrirtæki, stofnanir, ríki og sveitarfélög og verkefnin eru stór og sm...

    meira...
  • 5. jan 2011

    Náttúrufræðistofnun - nýtt Stjórnvísifyrirtæki

    mynd með frétt

    Stjórnvísi býður starfsmenn Náttúrufræðistofnunar hjartanlega velkomna í Stjórnvísi.  Náttúrufræðistofnun er ríkisstofnun og heyrir til umhverfisráðuneytisins. Náttúrufræðistofnun á rætur að rekja aftur til ársins 1889 þegar Hið íslenska náttúrufræðifélag var stofnað.
    Á Náttúrufræðistofnun Íslands í Garðabæ og á Akureyri starfa rúmlega 50 manns við margvíslegar rannsóknir og vöktun á náttúru landsins. Þá sinnir stofnunin ráðgjöf um landnotkun og nýtingu náttúruauðlinda sem og fræ

    meira...
  • 1. jan 2010

    Gleðilegt nýtt ár!

    mynd með frétt

    Stjórnvísi óskar öllum félögum gleðilegs nýs árs.  Við þökkum frábært samstarf á liðnu ári og hvetjum alla til að kynna sér og taka þátt í spennandi vordagskrá félagsins.

    meira...
  • 28. des 2010

    Hreint - nýtt fyrirtæki í Stjórnvísi

    mynd með frétt

    Stjórnvísi býður fyrirtækið Hreint hjartanlega velkomið í Stjórnvísi.  Hreint var stofnað 12.desember 1983 og er ein elsta og stærsta ræstingarþjónusta landsins.  Hjá félaginu starfa nú 150 manns.  Aðalskrifstofan er í Kópavogi en starfssvæði fyrirtækisins er höfuðborgarsvæðið, Akureyri, Akranes, Selfoss og Hveragerði.  Þjónusta Hreint ehf. er fyrst og fremst reglulegar ræstingar fyrir fyrirtæki og stofnanir sem og sala á ýmissi tengdri vöru og þjónustu.  
    Hreint ehf. er með vottun norræna umhverf

    meira...
  • 6. des 2010

    Ferlar fyrirtækja sem tengjast gæðastjórnun

    mynd með frétt

    Gæðastjórnunarhópur hélt í morgun vel sóttan fund í Landsvirkjun sem fjallaði um mikilvægi gæðastjórnunar.  Guðmundur S. Pétursson gæðastjóri Landsvirkjunar hélt áhugaverðan fyrirlestur um ISO 9001 og sagði að staðallinn ætti við öll fyrirtæki svo framarlega sem við getum svarað því hver varan okkar er og hver er viðskiptavinurinn.  Krafa staðalsins er sú að tryggja að viðskiptavinurinn sé ánægður. Landsvirkjun hefur frá árinu 1995 skráð ferla, árið 2003 fengu þeir fyrst vottun og árið 2006

    meira...
  • 2. des 2010

    Eftir hvaða kröfum er farið við stjórn fyrirtækja?

    mynd með frétt

    Þessi grein birtist í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í morgun.  ISO 9001 stjórnunarstaðalinn er markvisst settur fram til að uppfylla væntingar viðskiptavina. Í staðlinum er ekki verið að fara fram á flókin ferli, heldur er verið að tryggja samræmi milli þeirra gæða sem boðin eru viðskiptavinum og stjórnun fyrirtækisins. Þjálfun starfsmanna og stjórnenda er skipulögð og unnin með hliðsjón af ánægju viðskiptavina, þ.e. stuðlað er að færni með það að markmiði að starfsmenn geti uppfyllt kröfur og

    meira...
  • 25. nóv 2010

    Heimasíða Stjórnvísi

    Stjórnvísi óskar eftir hugmyndum og tillögum frá félagsmönnum til að einfalda/breyta heimasíðunni http://www.stjornvisi.is   Heimasíðan er okkur mikilvæg til að auglýsa fundi, flytja fréttir, skoða efni frá fundum, skrá inn nýja félaga og skráningu á fundi svo eitthvað sé nefnt.  Við leituðm eftir aðila eða fyrirtæki sem er tilbúið til að taka þetta verkefni að sér.  Einnig óskum við eftir hugmyndum frá ykkur hvernig við getum bætt síðuna.  Að lokum viljum við hvetja ykkur til að senda inn fréttir se

    meira...
  • 24. nóv 2010

    Vel sóttur VMS-töflufundur í morgun

    mynd með frétt

    Lean faghópurinn hélt í morgun kynningu á VMS-töflum sem eru öflugt verkefnastjórnunartól sem sprottið er úr hugmyndafræði straumlínustjórnunar. Þórunn M. Óðinsdóttir kynnti hugmyndafræði taflanna, hvaða tilgang þær hefðu og hvernig hægt væri að nota þær á ýmsa vegu, t.d. á vikulegum fundum deilda/sviða, við verkefnastýringu á stærri afmörkuðum verkefnum og einnig í ákveðnum teymum þvert á svið og deildir.  Þá væru þær gott tæki t.d. til að auka samvinnu innan deilda og bæta upplýsingaflæ

    meira...
  • 23. nóv 2010

    Stofnfundur Faghóps um Sköpunargleði

    mynd með frétt

    Stofnfundur faghóps um Sköpunargleði var haldinn í dag.  Formaður faghópsins Haraldur Diego hélt sögustund.  Hann sagði frá því hvernig sköpunargleði leiddi til þess að tjónum á bílum Dominos fækkaði um 70%.   Markmið nýja faghópsins er að hafa gaman að því að hittast og að stuðla að því og efla sköpunargleði í vinnunni.  Sköpunargleði eykur starfsánægju og því hærri sem starfsánægja er því meiri hagnaði skila fyrirtækin sem er allra hagur.   Baldur Gísli Jónsson framkvæmdastjóri st

    meira...
  • 22. nóv 2010

    EFQM - mest notaða aðferðafræðin

    mynd með frétt

    EFQM  líkanið sem stendur fyrir European Foundation for Quality Management eða Evrópska gæðastjórnunarfélagið er mest notaða aðferðafræðin til að veita fyrirtækjum gæðaverðlaun bæði hérlendis sem erlendis.   Líkanið skiptist í 9 einingar, hver eining skiptist síðan upp í fleiri einingar alls 32.   Í EFQM er mannauðurinn metinn út frá 5 lykilþáttum  1) Þróun mannauðs er markviss 2) Er til skrifleg starsmannastefna sem allir starfsmenn vita af og þekkja  3)  Er til áætlun um þróun 4) Er til Jafnr

    meira...
  • 18. nóv 2010

    Sigurvegarar í ánægjukönnunum

    mynd með frétt

    Ráðstefna á vegum Þjónustuhóps Stjórnvísi sem haldin var í HR í morgun var vel sótt.  Ragnar Þór Jónsson, forstjóri Öryggismiðstöðvarinnar sýndi fram á skýra fylgni milli ánægju viðskiptavina og starfsmanna með tölulegum upplýsingum.  Jón Þórir Frantzson forstjóri Íslenska gámafélagsins fjallaði um Græna gleði, Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar tryggingar hf, fjallaði um hversu mikil vinna það er að halda sér í toppsæti og hve sigurinn er sætur, Einar S. Einarsson framkvæmdastjóri

    meira...
  • 17. nóv 2010

    Ávinningur af áhættustýringu hjá KPMG

    mynd með frétt

    Ávinningur af áhættugreiningu er sá að hún auðveldar ákvarðanatöku.  Áhættumat er ekki endapunktur áhættustýringar og því þarf að endurskoða reglulega hvort uppfær þurfi matsferlið svo það eigi við hverju sinni sagði Sigurvin Bárður Sigurjónsson, sérfræðingur á fyrirtækjasviði KPMG á fundinum í morgun.  Glærur af fundinum munu birtast fljótlega í vef-Dropanum.

    meira...
  • 16. nóv 2010

    Glæsileg umfjöllun um Haustráðstefnu Stjórnvísi í Frjálsri verslun

    mynd með frétt

    Tímaritið Frjáls verslun birti í nýju tölublaði glæsilega umfjöllun um Haustráðstefnu Stjórnvísi sem haldin var á Grand hóteli 1.október síðastliðinn.  Greinina má sjá í heild sinni í vef-Dropanum
     

    meira...
  • 15. nóv 2010

    Ráðstefna ISO - allar glærur komnar í Vef-dropann

    Hátt í hundrað manns sóttu ráðstefnuna Þekking er mesta verðmæti þjóðarinnar.  Tryggjum gæði í skólastarfinum með stjórnunarstöðlum.  Ráðstefnan var haldin þann 29.október sl. og var samstarf ISO-hóps Stjórnvísi og Endurmenntunar HÍ. 

    meira...
  • 28. okt 2010

    Dr. Michael Porter í Háskólabíói mánudaginn 1.nóvember n.k.

    mynd með frétt

    Einstakt tækifæri til að sjá heimsþekkta fyrirlesara og sérfræðinga á sviði klasa og samkeppnishæfi á einum stað.  Undanfarna mánuði hefur farið fram viðamikil kortlagning á íslenska jarðvarmaklasanum.  Hinn heimsþekkti vísindamaður á sviði stjórnunar, Dr. Michael Porter, hefur leitt vinnuna og eru niðurstöður verkefnisins að verða ljósar.  Um þetta verkefni hefur myndast óvenju sterk samstaða og eru yfir 40 aðilar sem koma beint að verkefninu undir stjórn ráðgjafarfyrirtækisins Gekon auk fjölda anna

    meira...
  • 22. okt 2010

    Ráðstefna Mannauðshóps og Viðskiptadeildar HÍ

    mynd með frétt

    Niðurstöður sex mastersverkefna voru kynntar á ráðstefnunni.  Það vakti áhuga að mannauðsstjórar eru í auknum mæli að taka að sér önnur verkefni t.d. markaðs-og kynningarmál á meðan vísbendingar koma um að þörfin fyrir sálgæslu og félagslegan stuðning hefur aldrei verið meiri.
    Kynningarefni af ráðstefnunni verður birt fljótlega í vef-Dropanum.

    meira...
  • 15. okt 2010

    Á annað hundrað manns sóttu fund um sköpunargleði á vinnustað

    Mikil gleði ríkti á fundi um sköpunargleði á vinnustað sem á annað hundrað manns sóttu í HR.  Fundargestir léku sér við að henda pesi í munn hvors annars og fékk sigurliðið "peskalla" að launum. Sjö frábærir fyrirlesarar fluttu erindi á fundinum og var meginþemað að lífinu skildum við lifa lifandi og stefna að því að hafa "happy hour" frá kl.08:00 - 17:00 alla virka daga í vinnunni.  Efni frá ráðstefnunni mun birtast innan tíðar í vef-Dropanum.

    meira...
  • 14. okt 2010

    Fundargestir leystir út með nammi

    mynd með frétt

    Fundargestir á Lean-fundi um umbótastefnu hjá Nóa-Síríus voru leystir út með sælgæti og boðið var upp á ljúffengt Nóa-konfekt á fundinum.  Þórunn M. Óðinsdóttir verkefnastjóri fór yfir hvaða leið var farin í umbótastefnu Nóa-Síríus.  Eitt verkefnanna var skilvirkni í vinnurýmum og voru allir starfsmenn látnir þarfagreina vinnusvæði sitt.  Í þessum breytingum lét forstjóri taka niður veggina á sinni skrifstofu og vinnur í dag í opnu rými.  Glærur af fundinum eru komnar í vef-Dropann.

    meira...
  • 9. okt 2010

    Sköpunargleði á vinnustaðnum

    mynd með frétt

    Fundur í samstarfi Stjórnvísi, FVH og Fagráðs verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík föstudaginn 15.október kl.15:00-17:00.  Þarna verða:  Samuel West, sálfræðingur og frumkvöðull frá Svíþjóð, Andri Heiðar Kristinsson frá Innovit, Margrét Pála Ólafsdóttir leikskólastjóri, Dóra Ísleifsdóttir frá Listaháskólanum, Ingibjörg Gréta Gísladóttir frá Hugmyndahúsinu, Gunnar Hólmasteinsson frá CLARA og Haraldur Diego frá Fagráði, viðskiptaráðgjöf.  Taktu daginn frá!

    meira...
  • 4. okt 2010

    Mikil ánægja með Haustráðstefnu Stjórnvísi 2010

    Mikil ánægja ríkir með Haustráðstefnu Stjórnvísi sem haldin var 1.október.  Á annað hundrað manns sóttu ráðstefnuna og hefur fjöldi manns haft samband við Stjórnvísi til að fá aðgang að glærum þeirra átta frábæru fyrirlesara sem þar fluttu framsögu.  Glærur þeirra sem gáfu leyfi til birtingar eru komnar í Vefdropann sem hefur að geyma allt efni frá fundum og ráðstefnum á vegum Stjórnvísi.

    meira...
  • 2. okt 2010

    Áhugaverð grein um stjórnsýslu

    mynd með frétt

    Stjórnvísi vill vekja athygli á áhugaverðri grein um sérhæfða þekkingu stjórnsýslufræðinga eftir Jón Egil Unndórsson í Vefdropanum. Í greininni leitar hann svara við því hvort nám í opinberri stjórnsýslu veiti rétt til ákveðinna starfa umfram aðra menntun.   -sjá Vefdropinn - íslenskar greinar
     

    meira...

Stjórnvísi ehf