Gæðastjórnun
Skráðir meðlimir: 285
Faghópur um Gæðastjórnun
Gæðastjórnunarhópurinn var settur á laggirnar haustið 2000 og hlaut mjög góðar viðtökur frá fyrsta fundi.
Markmið
Gæðastjórnunarhópur er stofnaður með það í huga að kynna hvað gæðastjórnun er og hvernig fyrirtæki hafa byggt upp sitt gæðastarf. Honum er ætlað að miðla reynslu á milli þeirra sem starfa að þessum málum innan fyrirtækja og stofnana. Þannig geta þeir sem eru komnir styttra á veg lært af þeim sem lengra eru komnir og sjá þá oft að þeirra vandamál eru ekki einstæð, þó svo fyrirtækin sem þeir starfa hjá séu eins ólík og þau eru mörg. Eins er hópurinn tilvalinn til tengslamyndunar þannig að fólk kynnist þeim sem eru að starfa í faginu og geti því leitað ráða hjá kollegum sínum.
Hvað er Gæðastjórnun
Sögu gæðastjórnunar má rekja aftur til fyrri hluta aldarinnar en þá voru Bandaríkjamenn fyrstir þjóða farnir að notast við tölfræðilega stjórnun ferla. Upphafið hefur gjarnan verið rakið til ferða þriggja bandaríkjamanna til Japans, þeirra Demings, Juran og Feigenbaum, á árunum upp úr 1950. Allir eiga þessir menn það sameiginlegt að þeir unnu ötullega að því að kenna Japönum nýja hugsun í stjórnun. Notkun á gæðastjórnun hefur farið stöðugt vaxandi þaðan af og nú er hún orðin vel þekkt og notuð innan flestra atvinnugreina. Megintilgangur gæðastjórnunar er fremur öðru að bæta samkeppnishæfni, gera vinnubrögðin agaðri og ná fram auknum hagnaði. Hún er stjórnunaraðferð til þess að ná sem bestum gæðum fyrir framleidda vöru eða þjónustu og byggist hugmyndafræðin á því að skilgreina og koma upp fastmótuðum vinnuferlum sem eru síðan notaðir til að búa til slíkar afurðir. Lykillinn felst í því að skilgreina vinnuferla í upphafi og vakta að unnið sé eftir þeim og að þarfir viðskiptavinarins séu uppfylltar innan gefins ramma um tíma og kostnað. Endanleg vara uppfyllir rétt gæði ef hún er eins og upphaflega var búið að skilgreina gæði fyrir hana. Því má segja að gæðastjórnun feli í sér að mæta sífellt skilgreindum kröfum og væntingum viðskiptavina með sem minnstum tilkostnaði með því að virkja það besta í hverjum einasta starfsmanni. Gæðastjórnun er langtímaviðfangsefni en ekki bara skyndilausn og skal undirstrika að hugmyndafræðina má yfirfæra á hvaða rekstur sem er, stóran sem smáan. Hún felur í sér að stjórnendur nái fram skilvirkari og betri stjórnun á þeim viðfangsefnum sem þeir fást við í daglegu starfi með því að marka og framfylgja gæðastefnu. Algengt er að trú manna sé sú að hönnun gæðakerfis og innleiðing gæðastjórnunar sé erfið og dýr en ef hlutirnir eru á annað borð í lagi ætti gæðakerfi í raun bara að lýsa þeim vinnubrögðum sem eru viðhöfð.
Hvernig starfar hópurinn
Fyrirkomulag starfsins er þannig að á hverjum fundi er tekið fyrir eitt tiltekið málefni og fengnir framsögumenn, ýmist einn eða tveir. Að því loknu eru fyrirspurnir og umræður.
Fyrir hvern
Stjórnendur
| Nafn | Titill | Netfang |
| Anna Guðrún Ahlbrecht, gæðastjóri Landsmælinga Íslands | Millistjórnandi | anna [hjá] lmi.is |
| Anna Hulda Ólafsdóttir | Doktorsnemi | anna.huldaolafsdottir [hjá] gmail.com |
| Kristín Lúðvíksdóttir | Annað | kristin.ludviksdottir [hjá] landsbankinn.is |
| Laufey Karlsdóttir | Millistjórnandi | laufey [hjá] syni.is |
| Linda Rut Benediktsdóttir, forstöðumaður þjónustu-og gæðamála | Annað | linda.benediktsdottir [hjá] tollur.is |