Hugbúnaðarprófanir
Skráðir meðlimir: 90
Faghópur um Faghópur um hugbúnaðarprófanir
Faghópur um hugbúnaðarprófanir og er byggður á grunni Félags um hugbúnaðarprófanir (ICEQAF) sem hefur starfað af krafti um skeið.
Markmið
Markmið faghópsins er að stuðla að bættri þekkingu og fagmennsku við hugbúnaðarprófanir. Félagið vill einnig auka samskipti milli þeirra sem vinna við hugbúnaðarprófanir, miðla reynslu annarra og kynna nýjungar. Auk þess vill félagið styrkja sambandið við háskólasamfélagið, kynna rannsóknir á sviði hugbúnaðarprófana og hvetja til meiri kennslu á prófunum í hugbúnaðargerð.
Hvað er Faghópur um hugbúnaðarprófanir
Hugbúnaðarprófanir er skoðun á hugbúnaði eða kerfi til að staðfesta hvort gæði kerfisins uppfylli kröfur sem til þess er gert gagnvart ætlaðri notkun þess. Þær gefa einnig hlutlausa mynd af hvernig hugbúnaðurinn virkar gagnvart notandanum og skilning á þeim áhættuþáttum sem fylgir innleiðingu hans. Hugbúnaðarprófanir geta falið í sér eftirfarandi þætti sem eru leiddir af hönnun og þróun hugbúnaðarins: - Að hugbúnaðurinn uppfylli viðskipta-, og tæknilegar kröfur sem voru notaðar til hönnunar og þróunar hans. - Sé nothæfur - Hægt sé að setja hugbúnaðinn upp og innleiða hann með sömu eiginleikum og til hans var ætlast. Tegundir og aðferðir notaðar til prófunar geta m.a. falið í sér eftirfarandi: Innleiðingarprófanir (Integration testing) Kerfisprófanir (System testing) Virkniprófanir (Functional testing) Prófun annarra þátta en virkni (non-functional testing) Gagnagrunnsprófanir (Database testing) Þolprófanir (Performance and Load testing) Viðtökuprófanir (Acceptance testing)
Hvernig starfar hópurinn
Faghópurinn hittist u.þ.b. einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. Fundirnir eru oftast þannig að sérfræðingur og/eða reynsluboltar eru fengnir til að fjalla um tiltekið málefni. Að loknum fyrirlestri er gert ráð fyrir umræðum og fyrirspurnum.
Fyrir hvern
Faghópurinn hittist u.þ.b. einu sinni í mánuði yfir vetrartímann. Fundirnir eru oftast þannig að sérfræðingur og/eða reynsluboltar eru fengnir til að fjalla um tiltekið málefni. Að loknum fyrirlestri er gert ráð fyrir umræðum og fyrirspurnum.
Stjórnendur
| Nafn | Titill | Netfang |
| Helga Bjarnadóttir | Annað | helgab [hjá] ccpgames.com |
| Karlotta Ósk Óskarsdóttir | Annað | karlotta.oskarsdottir [hjá] arionbanki.is |