ISO hópur

Skráðir meðlimir: 128

Faghópur um Faghópur um vottuð gæðakerfi ISO staðla

ISO- hópurinn er einn elsti og reyndasti faghópur Stjórnvísi og hefur haldið sérstöðu sinni alla tíð.

Markmið

Hlutverk og stefna ISO hóps er að vera með umfjöllun um þau málefni sem forsvarsmenn ISO vottaðra fyrirtækja eða þeirra sem eru með þroskuð gæðakerfa eru að fást við hverju sinni.

Hvað er Faghópur um vottuð gæðakerfi ISO staðla

Á heimasíðu Staðlaráðs Íslands er að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um ISO staðlana. Fyrir þá sem eru að byrja að kynna sér staðlana eða vinna með þá, bendum við þeim á starf Gæðastjórnunarhóps félagsins, sem er vettvangur þeirra sem eru að hefja gæðastarf eða starfa að gæðamálum á breiðum grunni.

Hvernig starfar hópurinn

Oft er fengin fyrirlesari sem hefur framsögu um málefni sem áhugavert er að ræða eða fjalla sérstaklega um. Þeir sem hafa verið formenn hópsins hafa séð um að fá fyrirlesara en hópurinn kemur líka saman til skrafs og ráðagerða. Markmið okkar er að miðla af þeirri reynslu sem við höfum öðlast og ræða þau mál sem við viljum hverju sinni. Oft koma upp vandamál hjá okkur í uppbyggingu gæðakerfana sem við erum að eiga við, þá er gott að bera þau á borð fyrir hópinn og við reynum að finna lausn á vandanum saman. Hópurinn er samheldin og innan hans ríkir trúnaður og traust.

Fyrir hvern

Stjórnendur

Nafn Titill Netfang
 
Auður Ýr Sveinsdóttir Annað audurs [hjá] riotinto.com
Gunnhildur Manfreðsdóttir Framkvæmdastjóri gm [hjá] gagnavarslan.is
Guðmundur S. Pétursson Gæðastjóri gudmundurp [hjá] lv.is
Ína Björg Hjálmarsdóttir Gæðastjóri ina [hjá] landspitali.is