Sköpunargleði

Skráðir meðlimir: 108

Faghópur um Faghópur um sköpunargleði í vinnunni

Flæði hugmynda er það sem stjórenndur sækjast eftir frá starfsfólki.  Hugmyndir að lausnum flókinna verkefna á tímum erfiðra efnahagsskilyrða.  Einstaklingar innan faghópsins eru hugmyndabændur, þeir sá og rækta akurinn þar sem hugmyndir spretta og dafna innan fyrirtækja.

Markmið

Hugmyndir verða til við núning, samskipti fólks úr mismunandi umhverfum, með mismunandi bakgrunn, menntun og menningu.  Þess vegna hefur hópurinn engin markmið önnur en að auka sköpunargleði, markmið sem er vegferðin í sjálfri sér

Hvað er Faghópur um sköpunargleði í vinnunni

Hvað er sköpunargleði? Sköpunargleði verður til þegar einstaklingar finna gleðina við að finna nýjar lausnir sem bera með sér virði fyrir þá sem skapa og þá sem verkanna njóta.  Hvatar sköpunargleði liggja í því umhverfi, menningu og þekkingu sem við búum að.  Frábær hugmynd er afsprengi margra góðra.  Besta leiðin til að fá góða hugmynd er að fá margar.  Faghópurinn myndar umhverfið til þess - skipulagða spjallfundi þar sem fólk viðrar hugmyndir sínar, bætir við þær sem fyrir eru og fær aðrar.  En umfram allt: hafa gaman að því og óttst ekki að stíga út fyrir þægindahringinn.

Hvernig starfar hópurinn

Einn eða fleiri framsögumenn segja frá hugmyndum sem kviknað hafa og jafnvel komist í framkvæmd innan síns umhverfis.  Lærdómur af mistökum eða árangursríkum leiðum er dreginn fram og aðrar hugmyndir ræddar.  Frá hverjum hitting tekur fólk eitthvað hugarfæði með sér.

Fyrir hvern

Fyrir alla sem hafa áhuga á sköpunargleði.

Stjórnendur

Nafn Titill Netfang
 
Birna Dröfn Birgisdóttir Annað birnadb05 [hjá] ru.is
Gunnar Sverrir Ásgeirsson Annað gunnar [hjá] motus.is
Haraldur Unason Diego Annað had [hjá] hdiego.com
Sigrún Jóhannesdóttir Annað sigrun [hjá] frae.is
Sigrún Þorleifsdóttir Annað sigrun [hjá] vendum.is