Stefnumótun og Balanced Scorecard

Skráðir meðlimir: 337

Faghópur um Stefnumótun og Balanced Scorecard

Hlutverk hópsins er að fjalla um stefnumótun sem felur í sér mótun stefnu, framkvæmd hennar og eftirfylgni. Einnig mun hópurinn fjalla um aðferðafræði stefnumiðaðrar stjórnunar (Balanced Scorecard).

Markmið

Markmið hópsins er að auka þekkingu á öllum þáttum stefnumiðaðrar stjórnunar með því að miðla fræðilegri þekkingu og reynslu fyrirtækja og stofnana.

Hvað er Stefnumótun og Balanced Scorecard

Faghópurinn er vettvangur fræðslu og umræðna um stefnumiðaða stjórnun. Fræðst er um aðferðafræði og nálgun fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka við stefnumótun bæði með heimsóknum og fræðsluerindum. Stefnumótun er allt það ferli sem snýr að mótun stefnu, framkvæmd hennar og eftirfylgni. Stefnur eru ólíkar varðandi innihald, formlegheit, framsetningu og hve ítarlegar þær eru. Umfjöllunarefni faghópsins verður því hin stöðuga hringrás stefnumótunar sem miðar að auknum árangri og samkeppnishæfni fyrirtækja, stofnana og samfélagsins í heild. Stefnumiðað árangursmat (balanced scorecard) er aðferðafræði sem hjálpar stjórnendum skipulagsheilda við að innleiða, miðla og fylgjast með framgangi stefnu með árangursmælikvörðum. Verkfæri stefnumiðaðs árangursmats eru stefnu- og skorkort.

Hvernig starfar hópurinn

Fundir eru oftast með því sniði að fyrirlesari er fenginn til að fjalla um afmarkað efni og í kjölfarið eru fyrirspurnir og umræður. Hópurinn stendur einnig fyrir morgunverðarfundum og ráðstefnum í samstarfi við aðra faghópa eða virta aðila utan Stjórnvísi.

Fyrir hvern

Stjórnendur fyrirtækja og stofnana, fólk í stjórnum fyrirtækja, millistjórnendur og alla þá sem hafa áhuga á stefnumótun og Balanced Scorecard.

Stjórnendur

Nafn Titill Netfang
 
Aðalheiður St.Eiríksdóttir Annað adalheidur [hjá] creditinfo.is
Fjóla María Ágústsdóttir Stjórnunarráðgjafi fjola.m.agustsdottir [hjá] vel.is
Gunnar Sverrir Ásgeirsson Annað gunnar [hjá] motus.is
Jón Halldór Jónasson Annað jon.halldor.jonasson [hjá] reykjavik.is
Kristján Guðjónsson Fjármálastjóri kristjan [hjá] vinbudin.is
Magnús Haukur Ásgeirsson Stjórnunarráðgjafi magnus [hjá] naestuskref.is
Þorvaldur Ingi Jónsson Stjórnunarráðgjafi valdi3 [hjá] talnet.is