Umhverfi og öryggi

Skráðir meðlimir: 126

Faghópur um Faghópur um umhverfis- og öryggisstjórnun

Markmið

Stefna umhverfis-og öryggistjórnunarhóps Stjórnvísi er að taka virkan þátt í umræðunni um ytri og innri umhverfismál fyrirtækja. Lögð er áhersla á að skapa vettfang fyrir fróðlegar umræður og skoðanaskipti um úrlausn ýmissa þátta í starfsemi fyrirtækja er varða þennan málaflokk.

Hvað er Faghópur um umhverfis- og öryggisstjórnun

Með ytri umhverfismálum er átt við alla þætti í starfsemi fyrirtækja sem haft geta neikvæð umhverfisáhrif eins og óhófleg notkun hráefna, hjálparefna og orku, loftmengun, lyktarmengun, vatnsmengun, jarðvegsmengun, sjónmengun og hávaða. Horft er á þær úrlausnir sem notaðar eru til að halda slíkum áhrifum í lágmarki. Innra umhverfi fyrirtækja lítur að starfsumhverfi einstaklinga. Þar er sjónum beint að aðbúnaði, vinnuskipulagi, fræðslu, félagslegum og andlegum þætti vinnunnar og öryggismálum. Fundir umhverfis-og öryggstjórnunarhóps er kjörinn vettvangur til að hitta fólk sem er að vinna í svipuðum málum, skiptast á hugmyndum og mynda þverfagleg tengsl.

Hvernig starfar hópurinn

Fyrirkomulag starfsins er þannig að á hverjum fundi er tekið fyrir eitt tiltekið málefni og fengnir framsögumenn, ýmist einn eða tveir. Að því loknu eru fyrirspurnir og umræður.

Fyrir hvern

Fyrirkomulag starfsins er þannig að á hverjum fundi er tekið fyrir eitt tiltekið málefni og fengnir framsögumenn, ýmist einn eða tveir. Að því loknu eru fyrirspurnir og umræður.

Stjórnendur

Nafn Titill Netfang
 
Ásdís Björg Jónsdóttir Annað asdisj [hjá] n1.is
Ásta Guðmundsdóttir Annað asta [hjá] syni.is
Hugrún Gunnarsdóttir Annað hug [hjá] verkis.is
Magnús Matthíasson Gæðastjóri magnus.matthiasson [hjá] efla.is
Þóra Birna Ásgeirsdóttir Annað thoraa [hjá] riotinto.com