Stjórnvísi - stærsta stjórnunarfélag á Íslandi
Hvað er Stjórnvísi?
- Stjórnvísi er stærsta stjórnunarfélag á Íslandi með yfir 1.400 virka félagsmenn og mjög öflugt tengslanet.
- Stjórnvísi er opið öllum einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem hafa áhuga á stjórnun; eins og stjórnendum, sérfræðingum, nemendum og öðrum áhugamönnum um stjórnun.
- Stjórnvísi býður hagstæðustu símenntunina um stjórnun á markaðnum.
- Stjórnvísi er með kjarnastarf sitt í kraftmiklum faghópum félagsmanna en jafnframt stendur félagið fyrir almennum ráðstefnum, viðburðum og verðlaunum um stjórnun.
- Stjórnvísi er áhugamannafélag í eigu félagsmanna og starfar ekki með fjárhagslegan ágóða í huga.
Helsta auðlind Stjórnvísi er faghóparnir og hinir virku yfir 1.400 félagsmenn sem koma frá yfir 200 fyrirtækjum og stofnunum.
Kjarnastarf Stjórnvísi fer fram í faghópum. Í dag eru 14 slíkir starfandi innan félagsins á jafnmörgum sviðum stjórnunar. Hver hópur boðar til fundar að jafnaði einu sinni í mánuði þar sem tiltekið málefni er tekið til umfjöllunar í fyrirlestra- og umræðuformi eða á annan hátt.
Fyrirtækin í Stjórnvísi koma úr öllum greinum atvinnulífsins
Stjórnvísi er “non profit” þekkingarfélag sem þjónar mannauði íslensks atvinnulífs.
Stjórnvísi hjálpar þínu fyrirtæki að ná árangri á hagkvæman og markvissan hátt.
Fyrirtækin í Stjórnvísi koma úr öllum greinum atvinnulífsinsStjórnvísi er “non profit” þekkingarfélag sem þjónar mannauði íslensks atvinnulífs.
Stjórnvísi hjálpar þínu fyrirtæki að ná árangri á hagkvæman og markvissan hátt.