11. janúar 2012 | 08:30 - 10:00

Verðlaunahafar í Nýsköpunarsamkeppni ríkisstofnana

Nýsköpun

Vinnumálastofnun, Kringlunni 1, 103 Reykjavík

mynd með viðburði

Faghópur um Nýsköpun heldur sérstakan fund í samstarfi við Félag forstöðumanna ríkisstofnana þar sem kynnt verða þau verkefni sem nýlega fengu verðlaun og viðurkenningu fyrir nýsköpun í opinberum rekstri. Fundurinn verður haldinn hjá Vinnumálastofnun og mun Eyþór Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks stjórna fundinum.

Markmið fundarins er að vekja athygli á nýsköpun í opinberum rektri, ekki síst fyrir þeim sem starfa á einkamarkaði.

Þeir sem hlutu verðlaun og viðurkenningar og munu kynna verkefni sín eru:
Lögreglustjórinn á Hvolsvelli,
Landmælingar Íslands; Eydís Líndal kynnir verkefnið
Blindrabókasafn Íslands; Þóra Ingólfsdóttir forstöðumaður
og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu: Stefán Eiríksson, lögreglustjóri