Ánægjuvogin 2014

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2014

Þann 5. febrúar 2015 voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2014 kynntar og er þetta sextánda árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 19 fyrirtæki í 6 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á 297-1210 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis.

Líkt og á síðasta ári er viðurkenning einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en þess með næst hæstu einkunnina. Í ár var því afhent viðurkenning í þremur flokkum; tryggingamarkaði þar sem TM fékk viðurkenningu með 71,3 stig af 100 mögulegum, farsímamarkaði þar sem Nova var með marktækt hæstu einkunnina, 73,6 stig og í raforkusölumarkaði þar sem HS orka var með marktækt hæstu einkunn eða 62 stig. Á þeim mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti voru efstu fyrirtækjum ekki veittar viðurkenningar en hins vegar var fulltrúum þessara fyrirtækja veittur blómvöndur í viðurkenningarskyni. Þeir markaðir þar sem marktækur munur var ekki til staðar voru bankar, og eldsneytisfélög. Þá var ekki marktækur munur á ÁTVR sem var með hæstu einkunnina á heildina litið og
Nova sem var með næsthæstu einkunnina. Einkunnir allra birtra fyrirtækja í hverri atvinnugrein má sjá í töflunni hér fyrir neðan.

Bankar Ánægjuvog 2014 Ánægjuvog 2013
Íslandsbanki 63.5 64.6
Landsbankinn 61.3 62.3
Arion banki 58.4 57.7
Tryggingafélög Ánægjuvog 2014 Ánægjuvog 2013
TM 71.3* 69.0
Vörður 65.5 66.7
VÍS 65.1 64.4
Sjóvá 64.6 65.1
Raforkusölur Ánægjuvog 2014 Ánægjuvog 2013
HS Orka 62.0* 62.9
Orka náttúrunar 59.1 57.9
Orkusalan 55.9 53.4
Farsímafyrirtæki Ánægjuvog 2014 Ánægjuvog 2013
Nova 73.6* 72.6
Vodafone 61.8 58.9
Síminn 60.2 62.8
Olíufélög Ánægjuvog 2014 Ánægjuvog 2013
Atlantsolía 71.3 68.8
Orkan 68.6 67.0
Olís 68.6 67.4
ÓB 66.7 66.4
N1 62.0 63.8
Smásala á áfengi Ánægjuvog 2014 Ánægjuvog 2013
ÁTVR 74.8 74.1

* marktækt hæsta einkunn á markaði miðað við 95% öryggismörk

Ánægjuvogin sjálf samanstendur af þremur spurningum:

  • Á heildina litið, hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með reynslu þína af [fyrirtæki]?
  • Hugleiddu allar væntingar þínar til [fyrirtækis] annars vegar og reynslu þína af fyrirtækinu hins vegar. Að hve miklu leyti uppfyllir [fyrirtækið] væntingar þínar?
  • Núna biðjum við þig um að ímynda þér hið fullkomna [fyrirtæki á viðkomandi markaði]. Hversu nálægt slíku fyrirtæki er [fyrirtækið]?

Ánægjuvogareinkunnin tekur gildi á kvarðanum 0-100, þar sem hærri einkunn gefur til kynna meiri ánægju.

Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem finna má á http://stjornvisi.is/anaegjuvogin ásamt öðrum upplýsingum um Íslensku ánægjuvogina.

Nánari upplýsingar veita Davíð Lúðvíksson hjá SI í síma 5910114/8246114, netfang david@si.is og Þórhallur Ólafsson hjá Capacent Gallup í síma 5401074 / 860 1079, netfang thorhallur.olafsson@capacent.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?