Ánægjuvogin 2018

Niðurstöður 2018 

 

Þann 25. janúar voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2018 kynntar og er þetta tuttugasta árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.

Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 29 fyrirtæki í 9 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á um 200-1.100 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis. Líkt og undanfarin fimm ár er viðurkenning einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina.

Í ár var afhent viðurkenning á fimm mörkuðum. Á eldsneytismarkaði fékk bensínstöð Costco 82,3 stig af 100 mögulegum, Nova fékk 75,8 á farsímamarkaði, Vínbúðir ÁTVR fengu 73,6 stig á smásölumarkaði, BYKO fékk 68,9 á byggingavörumarkaði og Icelandair fékk 75,4 á flugmarkaði. Costco eldsneyti var einnig með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni þetta árið og eru viðskiptavinir eldsneytissölu Costco þar af leiðandi þeir ánægðustu á Íslandi. Hins vegar ber að taka fram að Costco er ekki með ánægðustu viðskiptavinina á smásölumarkaði en þar var Costco með þriðju lægstu einkunnina eða 65,9 stig.  Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og sá Zenter rannsóknir um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni.

Efstu fyrirtækjum á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti voru ekki veittar viðurkenningar en hins vegar var fulltrúum þessara fyrirtækja færður blómvöndur í viðurkenningarskyni. Þeir markaðir þar sem ekki var marktækur munur á milli hæstu og næsthæstu einkunnar voru tryggingafélög, raforkusölur, matvörumarkaður og bankamarkaður. Einkunnir allra birtra fyrirtækja í hverri atvinnugrein má sjá í töflunni hér að neðan.

 

Bankar                           2018                                                 2017                                                       2016                                                         
Íslandsbanki 68,1 66,5* 65,2*
Landsbankinn 65,2 63,2 61,3
Arion banki 64,1 63,1 59,0
       
Tryggingafélög 2018 2017 2016
Sjóvá 69,8 66,77 67,76
TM 67,4 66,76 68,57
Vörður 64,6 66,25 69,64
[VÍS|] 59,7 61,83 64,00
       
Raforkusölur 2018 2017 2016
HS Orka 65,6 68,0 61,4
Orkusalan 61,8 63,8 59,0
Orka náttúrunnar 61,5 64,4 65,5*
       
Matvöruverslanir 2018 2017 2016
Krónan 69,9 68,9 N/A
Nettó 67,9 68,8 N/A
Bónus 95,9 64,5 N/A
       
Byggingavöruverslanir                  2018 2017 2016
BYKO 68,9* 68,9* N/A
Húsasmiðjan 58,7 62,3 N/A
       
Flugfélög 2018 2017 2016
Icelandair 75,4* N/A N/A
Wow air 61,6 N/A N/A
       
Farsímamarkaður 2018 2017 2016
Nova 75,8* 76,4* 72,1*
Síminn 68,0 66,9 66,0
Vodafone 64,5 69,7 65,4
       
Eldsneytisfélög 2018 2017 2016
Costco bensín 82,3* 86,5* N/A
Atlantsolía 69,5 68,8 74,0*
Orkan 66,7 67,2 69,2
ÓB 64,4 67,0 69,7
Olís 63,6 66,1 70,0
N1 63,6 63,7 67,0
       
Smásöluverslun 2018 2017 2016
Vínbúðir ÁTVR 73,6* 74,1* 71,8
BYKO 68,9 68,9 N/A
Krónan 69,9 68,9 N/A
Nettó 67,9 68,8 N/A
Bónus 65,9 64,5 N/A
Costco 65,9 59,1 N/A
Pósturinn 61,7 N/A N/A
Húsasmiðjan 58,7 62,3 N/A

 

*Marktækt hæsta einkunn áviðkomandi markaði.

 

Ánægjuvogin samanstendur af þremur spurningum:

  1. Á heildina litið, hversu ánægður(ur) eða óánægð(ur) ert þú með reynslu þína af [fyrirtæki]?
  2. Hugleiddu allar væntingar þínar til [fyrirtækis] annars vegar og reynslu þína af fyrirtækinu hins vegar. Að hve miklu leyti uppfyllir [fyrirtæki] væntingar þínar?
  3. Núna biðjum við þig um að ímynda þér hið fullkomna [fyrirtæki á viðkomandi markaði]. Hversu nálægt slíku fyrirtæki er [fyrirtæki]?

Ánægjuvogareinkunnin tekur gildi á kvarðanum 0-100, þar sem hærri einkunn gefur til kynna meiri ánægju. Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem finna má á http://stjornvisi.is/anaegjuvoginásamt öðrum upplýsingum um Íslensku ánægjuvogina.

Nánari upplýsingarveitir Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi og  Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Zenter Rannsókna í síma 511 3900 / 859 9130, netfang trausti@zenter.is.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?