Mat á árangri meginmarkmiða Stjórnvísi - tekur örstutta stund.

Kæru félagar í Stjórnvísi Nýlega var stefna Stjórnvísi rýnd og uppfærð til að takast á við breyttan veruleika. Því viljum við mæla árangur meginmarkmiða Stjórnvísi og þætti okkur vænt um að þú gætir gefið þér örfáar mínútur og svarað þessari könnun af hreinskilni og einlægni. Smelltu hér til að taka þátt.
Lesa meira

Tilnefning fyrir Samfélagsskýrslu ársins 2019

Festa, Stjórnvísi og Viðskiptaráð auglýsa eftir tillögum um fyrirtæki eða stofnun sem hlýtur viðurkenningu fyrir Samfélagsskýrslu ársins 2019. Að tilnefna tekur einungis örstuta stund, smelltu hér. Viðurkenningu fyrir samfélagsskýrslu ársins hlýtur fyrirtæki eða stofnun sem birtir upplýsingar um samfélagsábyrgð sína með markvissum, vönduðum og nútímalegum hætti í skýrslum sem geta verið í formi vefsíðna, rafrænna skjala eða öðrum hætti sem hentar þeim sem áhuga hafa, s.s. fjárfestar, viðskiptavinir, samstarfsaðilar, yfirvöld og/eða almenningur.Dómnefnd skipuð fulltrúum félaganna þriggja metur allar tillögur sem berast og getur einnig byggt val sitt á eigin frumkvæði. Fyrirtækjum og stofnunum er frjálst að tilnefna eigin skýrslu. Við mat á samfélagsskýrslu ársins er horft til eftirfarandi þátta: - Fjallar skýrslan um samfélagsábyrgð (SÁ) og tekur hún bæði á félagslegum-, umhverfisþáttum og stjórnarháttum? - Hversu vel er fyrirtækið að fjalla um þætti sem teljast verða mikilvægir miðað við starfsemi fyrirtækisins (t.d. ef augljóst er að starfsemin raskar náttúrunni á tiltekinn hátt, er fyrirtækið með markmið um minna rask á því sviði)? - Hefur fyrirtækið birt mælanleg markmið um SÁ í skýrslu sinni? - Hefur fyrirtækið lagt mat á árangur sinn út frá settum markmiðum um SÁ? - Er jafnvægi milli þeirra jákvæðu upplýsinga sem fyrirtækið segir frá og þeirra áskorana sem það stendur frammi fyrir? - Hefur fyrirtækið náð raunverulegum árangri í starfi sínu um SÁ? (Er breyting milli ára t.d. dregið úr losun GHL, aukið kynjajanfrétti eða öðrum áskorunum SÁ.) - Hefur fyrirtækið lagt sig fram við að kynna skýrsluna sína opinberlega? Fresturinn til að senda inn tillögur rennúr út þann 29. maí 2019. Viðurkenningin verður afhent við hátíðlega athöfn þann 13. júní 2019. Farið verður með nöfn þeirra sem tilnefna sem trúnaðarmál, eingöngu aðgengileg dómnefnd.
Lesa meira

Mannauðsdagurinn 2018 í Hörpu - Kynning á Stjórnvísi

Lesa meira

Stjórnarfundur 273 starfsdagur stjórnar 26.júní 2018

Lesa meira