Ánægjuvogin 2011

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2011

Þann 23. febrúar 2012 voru kynntar niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2011 og er þetta þrettánda árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 26 fyrirtæki í 9 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á 200-700 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis. Tvær nýjar atvinnugreinar eru mældar í ár, flugfélög og matvöruverslanir.

Hæstu einkunn allra fyrirtækja hlýtur Nova, 73,4 stig af 100 mögulegum. Nova er því heildarsigurvegari Íslensku ánægjuvogarinnar árið 2011 og þar með einnig sigurvegari í flokki farsímafyrirtækja. Í fyrsta sæti í flokki banka er Íslandsbanki með einkunnina 59,7 og í flokki tryggingafélaga er Tryggingamiðstöðin með hæstu einkunnina, 69,0. HS orka er í fyrsta sæti raforkusala með einkunnina 63,3 og ÁTVR er efst í flokki smásölufyrirtækja með einkunnina 72,4. Atlantsolía er efst á meðal olíufélaga með einkunnina 70,1 og Byko er með hæstu einkunnina meðal mældra byggingavöruverslana, 60,1. Bónus er í fyrsta sæti í flokki matvöruverslana með einkunnina 65,3 og Icelandair sigrar í flokki flugfélaga með einkunnina 68,4.

Einkunn flestra geira og fyrirtækja hækkar á milli mælinga. Mesta hækkun atvinnugreinar milli ára er hjá olíufélögum, þar sem einkunn allra félaga hækkar frá árinu á undan. Þar er einnig að finna hástökkvara ársins, Orkuna, en ánægjuvogareinkunn fyrirtækisins hækkar um tæp 6 stig milli ára.

Bankar Ánægjuvog 2011 Ánægjuvog 2010
Íslandsbanki 59.7 57.5
Landsbankinn 57.3 56.8
Arion banki 52.9 54.4
Tryggingafélög Ánægjuvog 2011 Ánægjuvog 2010
TM 69.0 68.7
Vörður 65.6 64.9
VÍS 61.2 61.9
Sjóvá 59.7 59.2
Byggingavöruverslanir Ánægjuvog 2011 Ánægjuvog 2010
Byko 60.1 60.1
Húsasmiðjan 57.1 55.7
Raforkusala Ánægjuvog 2011 Ánægjuvog 2010
HS Orka 63.3 59.2
Orkusalan 54.8 49.6
Orkuveita Reykjavíkur 52.9 53,7
Olíufélög Ánægjuvog 2011 Ánægjuvog 2010
Atlantsolía 70.1 67.4
Orkan 67.6 61.8
Olís 65.0 63.0
N1 60.7 56.9
Farsímafyrirtæki Ánægjuvog 2011 Ánægjuvog 2010
Nova 73.4 73.1
Vodafone 64.2 62.3
Síminn 62.1 59.4
Matvöruverslanir Ánægjuvog 2011 Ánægjuvog 2010
Bónus 65.3 Ekki mælt
Nettó 64.2 Ekki mælt
Hagkaup 63.5 Ekki mælt
Krónan 63.4 Ekki mælt
Flugfélög Ánægjuvog 2011 Ánægjuvog 2010
Icelandair 68.4 Ekki mælt
Iceland Express 40.7 Ekki mælt
Smásöluverslun Ánægjuvog 2011 Ánægjuvog 2010
ÁTVR 72.4 71.6
Atlantsolía 70.1 67.4
Orkan 67.6 61.8
Bónus 65.3 Ekki mælt
Olís 65.0 63.0
Nettó 64.2 Ekki mælt
Hagkaup 63.5 Ekki mælt
Krónan 63.4 Ekki mælt
N1 60.7 56.9
Byko 60.1 60.1
Húsasmiðjan 57.1 55.7

Nánari upplýsingar veita Davíð Lúðvíksson hjá SI í síma 5910114/8246114, netfang david@si.is og Jóna Karen Sverrisdóttir hjá Capacent Gallup í síma 5401018 / 8601018, netfang jona.sverrisdottir@capacent.is. Upplýsingar um Íslensku ánægjuvogina má finna á: http://stjornvisi.is/anaegjuvogin.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?