Íslenska ánægjuvogin 2016

Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2016

2. febrúar 2017, voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2016 kynntar og er þetta átjánda árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 19 fyrirtæki í 6 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á 200-1.178 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis.

Líkt og undanfarin þrjú ár er viðurkenning einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina. Í ár var afhent viðurkenning á fjórum mörkuðum, þar sem Atlantsolía fékk 74,4 stig af 100 mögulegum, Nova fékk 72,1 stig, Orka náttúrunnar fékk 65,5 stig og Íslandsbanki fékk 65,2 stig. Efstu fyrirtækjum á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti voru ekki veittar viðurkenningar en hins vegar var fulltrúum þessara fyrirtækja færður blómvöndur í viðurkenningarskyni. Þeir markaðir þar sem ekki var marktækur munur á milli hæstu og næsthæstu einkunnar voru tryggingafélög og smásöluverslanir. Þá var ekki marktækur munur á Atlantsolíu sem var með hæstu einkunnina á heildina litið og Nova sem var með næsthæstu einkunnina. Einkunnir allra birtra fyrirtækja í hverri atvinnugrein má sjá í töflunni hér fyrir neðan.

Bankar Ánægjuvog 2016 Ánægjuvog 2015
Íslandsbanki 65.2* 62.7
Landsbankinn 61.3 60.6
Arion banki 59.0 57.2
Tryggingafélög Ánægjuvog 2016 Ánægjuvog 2015
Vörður 69.6 67.9
TM 66.8 66.8
Sjóvá 67.8 63.6
VÍS 64.0 63.4
Raforkusölur Ánægjuvog 2016 Ánægjuvog 2015
HS Orka 61.4 59.5
Orka náttúrunar 65.5* 58.8
Orkusalan 59.0 52.2
Farsímafyrirtæki Ánægjuvog 2016 Ánægjuvog 2015
Nova 72.1* 71.1*
Síminn 66.0 61.2
Vodafone 65.4 60.4
Eldsneytisfélög Ánægjuvog 2016 Ánægjuvog 2015
Atlandsolía 74.0* 67.9
Olís 70.0 68.3
ÓB 69.7 64.8
Orkan 69.2 67.0
N1 67.0 61.2
Smásöluverslun Ánægjuvog 2016 Ánægjuvog 2015
Vínbúðir ÁTVR 71.8 73.8
Olís 70.0 68.3
N1 67.0 61.2

* Marktækt hæsta einkunn á markaði miðað við 95% öryggismörk

Ánægjuvogin sjálf samanstendur af þremur spurningum:

1. Á heildina litið, hversu ánægður(ur) eða óánægð(ur) ert þú með reynslu þína af [fyrirtæki]?
2. Hugleiddu allar væntingar þínar til [fyrirtækis] annars vegar og reynslu þína af fyrirtækinu hins vegar. Að hve miklu leyti uppfyllir [fyrirtæki] væntingar þínar?
3. Núna biðjum við þig um að ímynda þér hið fullkomna [fyrirtæki á viðkomandi markaði]. Hversu nálægt slíku fyrirtæki er [fyrirtæki]?

Ánægjuvogareinkunnin tekur gildi á kvarðanum 0-100, þar sem hærri einkunn gefur til kynna meiri ánægju. Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem finna má á http://www.stjornvisi.is/is/anaegjuvogin ásamt öðrum upplýsingum um Íslensku ánægjuvogina.

Nánari upplýsingar veita Davíð Lúðvíksson hjá SI í síma 591 0114 / 824 6114, netfang david@si.is og Trausti Heiðar Haraldsson hjá Zenter í síma 511 3900 / 859 9130, netfang trausti@zenter.is.trausti@zenter.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?