Ánægjuvogin 2017

Niðurstöður 2017


Þann 26. janúar voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2017 kynntar og er þetta nítjánda árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.

Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 25 fyrirtæki í 8 atvinnugreinum og byggja niðurstöður á um 200-1.100 svörum viðskiptavina hvers fyrirtækis. Líkt og undanfarin fjögur ár er viðurkenning einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina.

Í ár var afhent viðurkenning á fimm mörkuðum. Á eldsneytismarkaði fékk bensínstöð Costco 86,5 stig af 100 mögulegum, Nova fékk 76,4 á farsímamarkaði, Vínbúðir ÁTVR fengu 74,1 stig á smásölumarkaði, BYKO fékk 68,9 á byggingavörumarkaði og Íslandsbanki fékk 66,5 stig á bankamarkaði. Costco eldsneyti var einnig með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni þetta árið og eru viðskiptavinir eldsneytissölu Costco þar af leiðandi þeir ánægðustu á Íslandi. Hins vegar ber að taka fram að Costco er ekki með ánægðustu viðskiptavinina á smásölumarkaði en þar var Costco með lægstu einkunnina eða 59,1 stig.  slenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og Samtaka iðnaðarins og sá Zenter rannsóknir um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni.

Efstu fyrirtækjum á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti voru ekki veittar viðurkenningar en hins vegar var fulltrúum þessara fyrirtækja færður blómvöndur í viðurkenningarskyni. Þeir markaðir þar sem ekki var marktækur munur á milli hæstu og næsthæstu einkunnar voru tryggingafélög, raforkusölur og matvörumarkaður. Einkunnir allra birtra fyrirtækja í hverri atvinnugrein má sjá í töflunni hér að neðan.

Bankar Ánægjuvog 2017 Ánægjuvog 2016
Íslandsbanki 66,5* 65,2*
Landsbankinn 63,2 61,3
Arion banki 63,1 59,0
Tryggingafélög Ánægjuvog 2017 Ánægjuvog 2016
Sjóvá 66,77 67,76
TM 66,76 68,57
Vörður 66,25 69,64
VÍS 61,83 64,00
Raforkusölur Ánægjuvog 2017 Ánægjuvog 2016
HS Orka 68,0 61,4
Orka náttúrunar 64,4 65,5*
Orkusalan 63,8 59,0
Matvöruverslanir Ánægjuvog 2017 Ánægjuvog 2016
Krónan 68,9 N/A
Nettó 68,8 N/A
Bónus 64,5 N/A
Byggingavöruverslanir Ánægjuvog 2017 Ánægjuvog 2016
BYKO 68,9* N/A
Húsasmiðjan 62,3 N/A
Farsímamarkaður Ánægjuvog 2017 Ánægjuvog 2016
Nova 76,4* 72,1*
Vodafone 69,7 65,4
Síminn 66,9 66,0
Eldsneytisfélög Ánægjuvog 2017 Ánægjuvog 2016
Costco bensín 86,5* N/A
Atlantsolía 68,8 74,0*
Orkan 67,2 69,2
ÓB 67,0 69,7 
Olís 66,1 70,0
N1 63,7 67,0
Smásöluverslun Ánægjuvog 2017 Ánægjuvog 2016
Vínbúðir ÁTVR 74,1* 71,8
BYKO 68,9 N/A
Krónan 68,9 N/A
Nettó 68,8 N/A
Bónus 64,5 N/A
Húsasmiðjan 62,3 N/A
Costco 59,1 N/

*Marktækt hæsta einkunn á viðkomandi markaði.

Ánægjuvogin samanstendur af þremur spurningum:

1. Á heildina litið, hversu ánægður(ur) eða óánægð(ur) ert þú með reynslu þína af [fyrirtæki]?

2. Hugleiddu allar væntingar þínar til [fyrirtækis] annars vegar og reynslu þína af fyrirtækinu hins vegar. Að hve miklu leyti uppfyllir [fyrirtæki] væntingar þínar?

3. Núna biðjum við þig um að ímynda þér hið fullkomna [fyrirtæki á viðkomandi markaði]. Hversu nálægt slíku fyrirtæki er [fyrirtæki]?

Ánægjuvogareinkunnin tekur gildi á kvarðanum 0-100, þar sem hærri einkunn gefur til kynna meiri ánægju. Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem finna má á http://stjornvisi.is/anaegjuvogin ásamt öðrum upplýsingum um Íslensku ánægjuvogina.

 

Nánari upplýsingar veitir Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Zenter í síma 511 3900 / 859 9130, netfang trausti@zenter.is.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?