Ánægjuvogin 2023

Lógó fyrir ÁnægjuvoginaÞann 19. janúar 2024 voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2023 kynntar og er þetta tuttugasta og fimmta árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.

Ánægjuvogin verðlaunar þau fyrirtæki sem skara fram úr í ánægju á sínum markaði

„Mikill heiður er fyrir fyrirtæki að vera hæst á sínum markaði í Íslensku ánægjuvoginni. Íslenska ánægjuvogin er mælikvarði á ánægju viðskiptavina sem er mæld reglulega yfir árið og gagnast fyrirtækjum sem mælikvarði á þeirra frammistöðu á milli ára og í samanburði við helstu samkeppnisaðila.“ 

Segir Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Íslensku ánægjuvogarinnar og Stjórnvísi.

Þau fyrirtæki sem vinna á sínum markaði fá að nota merki Íslensku ánægjuvogarinnar á sínu markaðsefni sem og njóta heiðursins. 

Dropp nýtt í mælingu með hæstu ánægju Ánægjuvogarinnar

Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 40 fyrirtæki í 15 atvinnugreinum. Nokkur munur er á ánægju þeirra fyrirtækja sem voru mæld og eru einkunnir frá 53,9 til 83,9 af 100 mögulegum. Dropp er sigurvegari Ánægjuvogarinnar 2023. Dropp kemur inn sem nýtt fyrirtæki sem birtar eru niðurstöður fyrir sem póstþjónustufyrirtæki og nær þeim árangri að fá hæstu mælinguna í ár. Dropp var með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni 83,9 stig. Lægstu einkunn ársins hlaut Íslandsbanki með 53,9 stig.

Costco eldsneyti ekki lengur hæst
Costco eldsneyti hefur síðan 2017 verið hæst allra fyrirtækja en hlýtur nú annað sætið á eftir Dropp. Costco eldsneyti hefur fjórum sinnum verið með hærri stig en Dropp mælist með núna.

Nova ver titilinn 15. árið í röð
Nova hefur verið marktækt hæst, á sínum markaði, samtals í 15 ár í röð. Ekkert annað félag hefur sigrað svo oft á sínum markaði

 

Níu fyrirtæki marktækt hæst á sínum markaði

Gyllta merkið er einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina á viðkomandi markaði, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina. Þessir sigurvegarar mega þar af leiðandi segjast vera með ánægðustu viðskiptavinina.


Sigurvegarar Íslensku ánægjuvogarinnar 2023 – Gullhafar

  • Dropp 83,9 stig meðal póstþjónustufyrirtækja
  • Costco eldsneyti 80,8 stig meðal eldsneytisstöðva
  • IKEA 76,6 stig meðal húsgagnaverslana
  • Icelandair 74,3 stig meðal flugfélaga
  • Nova 74,2 stig meðal fjarskiptafyrirtækja
  • Krónan 73,7 stig meðal matvöruverslana
  • Apótekarinn 73,6 stig meðal apóteka
  • A4 70,9 stig meðal ritfangaverslana
  • BYKO 70,3 stig meðal byggingavöruverslana


Vinningshafar í sinni atvinnugrein – Blátt merki
Efstu fyrirtæki á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti fengu einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur.

  • Heimilistæki 75,8 stig meðal raftækjaverslana
  • Orka náttúrunnar 68,0 stig meðal raforkusala
  • Sjóvá 67,5 stig meðal tryggingafélaga
  • Kringlan 67,2 stig meðal verslunarmiðstöðva
  • Landsbankinn 60,8 stig meðal banka

 

 

Hástökkvarinn í ár er Orkan

Orkan er það fyrirtæki sem hækkaði mest á milli ára og fær titilinn hástökkvarinn 2023. Orkan fékk 64,3 stig árið 2022 og hlaut nú 67,9 sem er hækkun um 3,6 stig.

 

Íslandsbanki í sögulegu lágmarki

Íslandsbanki mælist með lægstu einkunnina, sem er nú 53,9; sem er lægra en árið 2009 þegar einkunn Íslandsbanka var 54,5.

Kvartanir hafa áhrif á tryggð viðskiptavina

Ákveðið var að bæta við tveimur spurningum um kvartanir í líkanið. Annars vegar er spurt hvort að viðskiptavinir hafi kvartað eða haft ástæðu til að kvarta og hins vegar um hversu ánægðir þeir voru með úrlausn kvörtunarinnar. Samkvæmt bandarísku ánægjuvoginni hefur þessi málaflokkur mikil áhrif á tryggð viðskiptavina og því fleiri sem hafa kvartað því minni er tryggðin. Niðurstöður hérlendis sýna að hlutfall þeirra sem kvörtuðu voru 6% en 17% höfðu ástæðu til að kvarta en gerðu það ekki.

 

Íslenska Ánægjuvogin í aldarfjórðung

Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en mælingarnar byggja á erlendu líkani og aðferðafræði. Nokkrir þættir eru mældir sem hafa áhrif á ánægju viðskiptavina þ.e. væntingar, ímynd, mat á gæðum og virði þjónustu.

„Mæling sem þessi er mjög mikilvæg þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á að því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækis eru því betri afkomu getur fyrirtækið gert sér vonir um.“

Segir Gunnhildur að lokum.

 

 

Einkunnir allra birtra fyrirtækja í hverri atvinnugrein má sjá í töflunni hér að neðan.

Talfa með niðurstöðum 2023

 

Um framkvæmd rannsóknar
Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og sá Prósent um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni 2023. Gögnum var safnað frá apríl til desember árið 2023. Könnunin var send í tölvupósti á könnunarhóp Prósents. Um 3.000 manna úrtak á hverjum markaði; 200-1.000 svarendur fyrir hvert fyrirtæki. Niðurstöður voru vigtaðar með tilliti til kyns, aldurs og búsetu þýðisins.

Ánægjuvogin samanstendur af þremur spurningum:

  1. Á heildina litið, hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með reynslu þína af [fyrirtæki]?
  2. Hugleiddu allar væntingar þínar til [fyrirtækis] annars vegar og reynslu þína af fyrirtækinu hins vegar. Að hve miklu leyti uppfyllir [fyrirtæki] væntingar þínar?
  3. Núna biðjum við þig um að ímynda þér hið fullkomna [fyrirtæki á viðkomandi markaði]. Hversu nálægt slíku fyrirtæki er [fyrirtæki]?

Ánægjuvogareinkunnin tekur gildi á kvarðanum 0-100, þar sem hærri einkunn gefur til kynna meiri ánægju.

Merki Íslensku ánægjuvogarinnar

Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem finna má á https://www.stjornvisi.is/is/anaegjuvogin ásamt öðrum upplýsingum um Íslensku ánægjuvogina.

Uppskeruhátíðin á Grand hótel

Íslenska ánægjuvogin 2023 var afhent með pompi og prakt á Grand hótel í morgun, föstudaginn 19. janúar 2024, klukkan 8:30-9:25. Beint streymi frá viðburðinum má nálgast hér https://www.youtube.com/watch?v=Dyw6945TTFQ


Nánari upplýsingar
 
Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi, í síma 840 4990,  netfang: gunnhildur@stjornvisi.is
Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents í síma 546 1008 / 859 9130, netfang: trausti@prosent.is.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?