Handhafar 2026
FRUMKVÖÐULL ársins 2026
Stjórnendaverðlaun Stjórnvísi árið 2026 fyrir frumkvöðlastarf eru að þessu sinni veitt einstaklingi sem hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn áhrifamesti frumkvöðull Íslands á sviði nýsköpunar tengdri hafinu og matvælum.
Hann er einkum þekktur sem stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans (Iceland Ocean Cluster), vettvangs sem tengir saman fyrirtæki, frumkvöðla, rannsakendur og fjárfesta til að auka verðmætasköpun í sjávarútvegi og skyldum greinum.
Undir hans forystu hefur teymi Sjávarklasans byggt upp alþjóðlega hreyfingu um betri nýtingu sjávarafurða og hliðarafurða („100% Fish“) og stofnað sambærilega klasa eins og Íslenska Sjávarklasann í nær öllum heimsálfunum. Þessi nýja hreyfing í átt að meiri nýsköpun og sjálfbærni tengdri hafinu hefur vakið mikla athygli utan Íslands og hafa margir stærstu fjölmiðlar heims fjallað um þetta frumkvöðlastarf.
Sú alþjóðlega athygli sem beinst hefur að Sjávarklasanum hefur einnig kastað ljósi á þá tækni og þekkingu sem Íslendingar búa yfir á þessu sviði. Þannig getur þessi jákvæða athygli stuðlað að sterkari ímynd íslenskra sjávarafurða og aukið útflutning íslenskrar tækni og þekkingar.
Sá frumkvöðull sem við veitum verðlaun hér í dag hefur jafnframt sinnt fræðslu og miðlun þekkingar um allan heim, m.a. sem höfundur og fyrirlesari um atvinnuþróun, nýsköpun og framtíð matvæla.
Það er mér mikil ánægja að tilkynna að viðurkenning Stjórnvísi árið 2026 fyrir frumkvöðlastarf hlýtur Þór Sigfússon.
MILLISTJÓRNANDI ársins 2026
Eins og svo oft áður bárust dómnefnd afar margar og sterkar tilnefningar í flokki millistjórnanda. Ákváðum við því að veita verðlaun til tveggja einstaklinga.
Sá fyrri hefur starfað starfað hjá Arion banka frá árinu 2007 en þar áður hjá Seðlabanka Íslands. Undir stjórn viðkomandi starfar öflugt 12 manna teymi sem sinnir mannauðsmálum hjá Arion samstæðunni.
Þessi stjórnandi hlaut margar tilnefningar þar sem viðkomandi er lýst sem sterkri fyrirmynd, leiðtoga og stjórnanda með skýra sýn og markmið m.t.t. stefnu fyrirtækisins. Einnig er tekið fram að viðkomandi stjórnandi sé stefnumiðaður, hvetjandi, árangursríkur og réttsýnn. Stjórnandinn er sagður snarpur og athugull og veiti sínu teymi svigrúm til að læra og þróast, treysti og hrósi og veiti mikilvæga endurgjöf.
Viðkomandi stjórnandi hefur byggt upp heilbrigt og hvetjandi svið þar sem jafnrétti er í hávegum haft. Beitir virkri upplýsingagjöf þar sem fundir eru árangursríkir á báða bóga. Þá leggur stjórnandinn ríka áherslu á þróun og nýjungar í þágu fyrirtækisins til að ná settum markmiðum. Ekki síst er lögð áhersla á sveiganleika í starfi og mikilvægi jafnvægis vinnu og einkalífs.
Þessi stjórnandi leggur ríka áherslu á gott samstarf síns fólks til að gera fyrirtækið að einum eftirsóttasta vinnustað á Íslandi og nýtur virðingar bæði innan veggja vinnustaðarins og utan hans.
Það er sönn ángæja að tilkynna að Stjórnendaverðlaun Stjórnvísi í flokki millistjórnenda árið 2026 hlýtur Helga Halldórsdóttir, forstöðumaður hjá Arion banka.
MILLISTJÓRNANDI ársins 2026
Stjórnendaverðlaun í flokki millistjórnenda hlýtur einstaklingur sem sinnt hefur ýmsum störfum innan sama fyrirtækisins síðast liðin 22 ár. Viðkomandi hóf þar störf árið 2004 sem söluráðgjafi á gólfi eftir að hafa lokið háskólanámi í viðskiptafræði. Hann ætlaði í fyrstu að staldra stutt við en fékk fljótt mikinn áhuga á smásölu og rekstri verslanna og þá var eiginlega ekki aftur snúið.
Stjórnandinn fékk tækifæri til að færa sig í skrifstofustarf og tók þátt í að opna fyrstu vefverslun fyrirtækisins sem fór í loftið árið 2007 eftir tveggja ára undirbúning og fór að mestu fram í lítilli kompu sem líkja mátti við kústaskáp fyrir ofan verslunina sem þá var staðsett á Smáratorgi.
Hann tók síðar við stöðu forstöðumanns innkaupadeildar og í framhaldinu fékk hann stöðu aðstoðar framkvæmdastjóra áður en hann tók við sem framkvæmdastjóri félagsins í ársbyrjun 2022. Saga þessa stjórnanda innan félagsins teygir sig því vel út í alla anga fyrirtækisins.
Með skýrri stefnu og hugrekki til að innleiða nýjar leiðir í þjónustu og rekstri hefur viðkomandi stjórnandi fengið starfsfólk með sér í vegferð sem hefur skilað markvissum framförum fyrir félagið. Fyrirtækið sem hann starfar hjá hefur ekki bara haldið áfram að vaxa og styrkja stöðu sína á markaði heldur einnig náð langtímamarkmiðum um starfsánægju og ánægju viðskiptavina. Nú síðast þegar fyrirtækið fékk viðurkenningu fyrir ánægðustu viðskiptavini á raftækjamarkaði. Þessi árangur undirstrikar þá skýru framtíðarsýn sem stjórnandanum hefur tekist að skila til starfsfólks með mannlegri nálgun, mælaborðum og ástríðu.
Metnaður viðkomandi skilar sér ekki bara rekstri og ánægju viðskiptavina og starfsfólks heldur hefur staða vörumerkisins styrkst til muna. Þann árangur má sjá á mælingum félagsins sem og í viðurkenningum á borð við Menntaverðlaunum Atvinnulífsins (2024) og viðurkenningu Brandr sem besta íslenska vörumerki mannauðs árið 2024 ásamt fleiri verðlaunum og viðurkenningum sem félagið hefur hlotið á síðustu árum.
Þessi árangur endurspeglar vel þann metnað sem stjórnandinn býr yfir. En samstarfsfólk hans hefur haft orð á því að hann sé svo kappsamur og annt um að vinna að hann sé oft í samkeppni við aðila um hina ýmsu mælikvarða sem hafa ekki hugmynd um að hann sé að keppast við það fyrr en mögulega eftir að hann hefur haft betur.
Hann hefur mikinn og sterkann húmor og heyrist fjörið í kringum hann oft langar leiðir innan veggja höfuðstöðva móðurfélagsins. Honum er annt um starfsfólkið sitt, viðskiptavini og þá vegferð sem félagið er á en eitt af lykil loforðum og gildum félagsins lýsir áherslum stjórnandans nokkuð vel, en það er „það sem skiptir þig máli, skiptir okkur máli“.
Það er okkur því sannur heiður að veita seinni stjórnendaverðlaun ársins í flokki millistjórnenda, Óttari Erni Sigurbergssyni, framkvæmdastjóra Elko.
YFIRSTJÓRNANDI
Stjórnandi ársins í flokki yfirstjórnanda sá alltaf fyrir sér að sjómennskan yrði hans starfsvettvangur og það var reyndar á þýskum togara á Grænlandsmiðum sem hann fékk fyrstu alvöru stjórnendareynsluna sem yfirmaður á dekki og í vinnslu.
Lífið tók síðan óvænta stefnu þegar fjölskylduvinur skráði hann, að honum forspurðum, í háskóla og sannfærði hann um að mennta sig þegar hann var orðinn 25 ára gamall. Þegar hann útskrifaðist úr viðskiptafræði 3 árum síðar var það fyrir einskæra tilviljun að hann réði sig til starfa í verðbréfamiðlun Íslandsbanka, en bankakerfið á þeim tíma var að taka miklum breytingum og var lifandi og spennandi umhverfi. Hann sá það sem frábært tækifæri til að læra og starfa í kannski þrjú ár.
Það átti sannarlega ekki eftir að ganga eftir því bankinn varð starfsvettvangur hans næstu 20 ár, en störfin og hlutverkin mörg, fjölbreytt og krefjandi og hann lauk einnig MBA námi á tímanum. Frá hausti 2008 var hann framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs en árið 2017 urðu breytingar með sameiningunum þriggja tekjusviða í bankanum og hann tók við sem framkvæmdastjóri Fyrirtækja- og fjárfestasviðs.
Í janúar 2019 tók lífið aftur óvænta stefnu þegar hann var ráðinn forstjóri eins af stærstu fyrirtækjum landsins. Þau ár sem viðkomandi stjórnandi hefur starfað hjá félaginu hafa verið umbreytingatími, bæði innan félagsins en einnig mýmargar áskoranir í ytra umhverfi.
Frá því hann tók við störfum hefur hann lagt áherslu á að nútímavæða menningu félagsins með ýmsum leiðum til að tryggja að félagið sé vel í stakk búið til að takast á við áskoranir og tækifæri í nútíð og framtíð. Það hefur hann gert með markvissum leiðum allt frá leiðtogaþjálfun stjórnenda og arftakaáætlunum yfir í að umbylta sýn stjórnenda á reksturinn til að styðja við ákvarðanatöku og tryggja gott flæði upplýsinga um fyrirtækið. Nú síðast leiddi hann stefnumótun sem unnin var alfarið innan félagsins og tryggði virka þátttöku frá starfsfólki alls staðar úr starfseminni. Útkoman er skýr og flott stefna sem mun styðja vel við starfsemina fram á veginn.
Í rökstuðningi segir m.a. „hann hefur einstakt lag á að taka tillit til allra og nýta styrkleika starfsmanna sama hvaða löndum eða menningu þeir koma frá.“ En þess ber að geta að alþjóðastarfsemi félagsins nær til 20 landa þar sem nærri helmingur starfsmanna starfar erlendis. „Hann hefur með einstakri lægni náð að gera stórt alþjóðlegt fyrirtæki að einni sterkri liðsheild, þar sem framtíðarsýn og stefna er skýr.“
Einnig kemur fram að það sem einkennir þennan stjórnanda er að hann er maður fólksins. „Hann kemur eins fram við alla og ber virðingu fyrir fólki. Hann gerir miklar kröfur til samstarfsfólks og enn meiri kröfur til sín en er um leið sanngjarn. Það sem hann gerir einstaklega vel er að deila upplýsingum en það er einn af hans mestu styrkleikum og þannig fær hann fólkið með sér. Hann treystir fólki, "því fólki er treystandi" og þannig finnur fólk líka að það er haft með í ráðum og hlustað þegar ákvarðanir eru teknar. Enda hefur starfsánægja sjaldan ef einhvern tímann verið hærri í félaginu.“
Að lokum segir „Hann er kletturinn sem ekkert haggar. Hann er kröfuharður en á sama tíma ótrúlega góður við fólkið sitt. Hann hefur þessa leiðtogahæfileika sem oft er svo erfitt að útskýra. Þú ert leiðtogi þegar fólk sækist eftir að vera í þínu liði. Þannig er hann.“
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2026 í flokki yfirstjórnanda hlýtur Vilhelm Þorsteinsson, forstjóri Eimskip.
HEIÐURSVERÐLAUN
Kæru gestir. Dómnefnd Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi veitir í ár einnig sérstaka heiðursviðurkenningu til stjórnanda sem stendur á tímamótum á sínu þrítugasta ári í forstjórastóli.
Hún er menntaður vélstjóri, vélvirkjameistari og véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands auk þess að vera með MBA gráðu frá University of San Francisco. En áður en hún hóf störf hjá fyrirtækinu vann hún bæði á landi og sjó sem vélstjóri og verkfræðingur.
Viðkomandi stjórnandi var fyrsta konan til að verða forstjóri í stórfyrirtæki á Íslandi. Þegar hún tók við því starfi var hún ung kona og það þótti bæði til marks um hugrekki stjórnenda þess tíma en ekki síður að í þessari konu bjó eitthvað einstakt; sterkur leiðtogi, sem kom svo sannarlega í ljós. Hún var sett í stafninn á stóru fyrirtæki sem hafði haft yfir sér karllægan blæ. Þessi stjórnandi er sterk fyrirmynd á Íslandi og víðar – ekki síst fyrir aðrar konur.
Undir hennar stjórn hefur fyrirtækið náð miklum árangri. Framleiðslugeta aukist, tæknilegar framfarar verið miklar og menntun starfsfólks verið sett í öndvegi. Öryggismál, heilbrigði, góð samskipti, jafnrétti og umhverfismál hafa verið sett á oddinn, framleiðni aukist og losun gróðurhúsalofttegunda er nú með því lægsta sem þekkist í hennar iðnaði.
Ár eftir ár státar fyrirtækið af hæstu einkunn starfsfólks varðandi vellíðan og starfsánægju og er til fyrirmyndar innan móðurfélagsins, þannig að eftir er tekið víða um heim.
Viðkomandi er með sterka sýn, ber hag starfsfólks einlæglega fyrir brjósti og er um leið öflugur og skarpur stjórnandi. Hún nýtur virðingar í hópi starfsfólks, sem sýnir sig einna best í því að starfsmannavelta hefur alla tíð verið lág og starfsfólk nær tugum ára í starfsaldri. Hún er bæði sýnileg og virk á vinnusvæðinu og aðgengileg starfsfólki. Hún er opin, heiðarleg og skýr í öllum samskiptum við starfsfólk og heldur fólki vel upplýstu.
Umhverfið sem stjórnandinn starfar í er síkvikt og krefjandi. Fyrirtækið hefur undir stjórn hennar skipt tvisvar sinnum um eigendur. Það hefur staðið af sér miklar áskoranir en einnig uppskorið vel. Hún hefur notið trausts þriggja misunandi eigendafélaga. Fyrirtækið, sem hóf starfsemi árið 1969, hefur alla tíð verið eitt af stærstu fyrirtækjum landsins og mikilvæg stoð í íslensku efnahags- og atvinnulífi. Hefur stjórnandinn einnig haft mikil áhrif á ásýnd og ímynd áliðnaðarins á Íslandi sem stækkaði atvinnugreinina í heild með tilkomu álvers Norðuráls á Grundartanga og Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði.
Stjórnandinn hefur látið til sín taka víða í atvinnulífinu, setur skýrar siðferðislegar kröfur og stendur fast við sín gildi. Hún hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja sem og Samtaka atvinnulífsins þar sem hún hefur haft umtalsverð áhrif á þróun jafnréttismála, menntunar og ábyrgra vinnubragða. Hún átti einnig frumkvæði að stofnun Samál (samtök álframleiðenda á Íslandi) og tók fyrirtækið undir hennar stjórn þátt í stofnun Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð fyrirtækja og Grænvangs samstarfsvettvangs atvinnulífs og stjórnvalda sem stuðlar að framþróun í loftslagsmálum og grænum lausnum.
Hún hefur á ferli sínum hlotið fjölda viðurkenninga bæði innan lands sem utan sem undirstrika vel hversu mikils metin hún er á sínu sviði. Þar á meðal Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu og gullmerki Verkfræðingafélags Íslands. Hún hefur einnig hlotið fjölmörg viðskiptaverðlaun.
Hér er á ferðinni einstaklega öflugur stjórnandi sem nýtur trausts og virðingar, bæði starfsfólks og eigenda en líka samfélagsins eins og þessi viðurkenning ber vott um.
Það er okkur einstök ánægja að tilkynna að Heiðursverðlaun Stjórnvísi árið 2026 hlýtur Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi.
Eftirtaldir aðilar eru tilnefndir til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi árið 2026:
Alda Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Innnes
Alondra Silva Munoz, framkvæmdastjóri markaðsmála hjá International Carbon Registry
Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA
Anna Kristín Kristinsdóttir, Senior Engineering Manager hjá Marel
Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON
Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Travel Connect
Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg
Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi
Ásta María Harðardóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Íslenska gámafélagsins
Baldur Örn Arnarson, mannauðsstjóri ON
Birgir Viðarsson, framkvæmdastjóri sölu-og ráðgjafar hjá Sjóvá
Birna Björnsdóttir, forstöðumaður orkuframleiðslu ON
Björgvin Brynjólfsson, forstöðumaður umbóta hjá Vegagerðinni
Björgvin Jón Bjarnason, forstjóri Hreinsitækni
Bogi Hallgrímsson, framkvæmdastjóri KVAN
Brynja Guðjónsdóttir, forstöðukona þjónustu-og markaðsmála hjá Orkunni IS
Brynjar Már Brynjólfsson, mannauðsstjóri Isavia ohf.
Dana Rún Hákonardóttir, Director of Marketing, Lauf Cycles
Davíð Rafn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Vinnuskipta ehf / Swapp Agency
Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amoroq minerals
Elín Björg Ragnarsdóttir, fiskistofustjóri hjá Fiskistofu
Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Hvíta hússins
Erik Christianson Chaillot, mannauðsstjóri KPMG
Freyja Leópoldsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni Krónunnar
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar
Guðjónína Sæmundsdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum
Guðlaug Sara Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála Treble Technologies
Guðlaugur Hjartarson, maintenance manager hjá Össur Iceland
Guðný Stella Guðnadóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Guðrún Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri gæðasviðs Barna-og fjölskyldustofu
Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Ceo Huxun
Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins
Haraldur Örn Reynisson, eigandi hjá KPMG
Harpa Guðfinnsdóttir, VP Innovation, JBT Marel
Harpa Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri og mannauðsráðgjafi hjá Hoobla ehf.
Heiða Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu-þjónustu og markaðsmála hjá Orkusölunni
Helen Breiðfjörð, mannauðsstjóri hjá Deloitte
Helena Jónsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri hjá Mental ráðgjöf
Helga Dagný Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Icepharma Velferð
Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Hornsteins
Helga Halldórsdóttir, forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka
Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs Íslands
Helgi Eide Guðjónsson, Director, supply chain operations JBT Marel
Herdís Pála Pálsdóttir, eigandi Páfugl ehf.
Hildur Karen Ragnarsdóttir, manager expeditions hjá Iceland Travel
Hjálmar Helgi Rögnvaldsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar og orkumiðlunar hjá ON
Hlíf Böðvarsdóttir, forstöðumaður þjónustu-og samsiptasviðs Búseta
Hörður Ingi Þórbjörnsson, mannauðsstjóri Orkunnar
Höskuldur Borgþórsson, Director marketing technology hjá Össur ehf.
Hrund Gunnsteinsdóttir, rithöfundur, fyrirlesari og stjórnendamarkþjálfi
Huld Magnúsdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar
Hulda Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri DK hugbúnaðar
Inga Hrund Arnardóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Orkunnar IS
Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu-og þjónustu hjá VÍS
Ingibjörg Rafnsdóttir, mannauðsstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Ingþór Karl Eiríksson, fjársýslustjóri Fjársýslu ríkisins
Ívar Örn Arnarson, R&D Processes, Systems&Compliance Manager hjá Össur Iceland ehf.
Jóhanna Valdimarsdóttir, VP of Q&R EHS PRRC and Operations hjá Össur/Embla Medical
Jón Gunnar Þórðarson, forstjóri og stofnandi Bara tala
Katrín Aagestad Gunnarsdóttir, markaðsstjóri Nettó
Kristín Dögg Höskuldsdóttir, sviðsstjóri mannauðssviðs hjá Hreint
Kristín Lilja Ragnarsdóttir, Director of Bionics Manufacturing hjá Össur
Kristrún Dröfn jóhannsdóttir, forstöðukona innri þjónustu og fasteigna hjá Orkuveitunni
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, Alþingi Forsætisráðuneytið
Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá
Lind Einarsdóttir, mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar
Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir, sviðsstjóri og meðeigandi Deloitte
Magnús Kristjánsson, forstjóri Orkusölunnar
Magnús Rúnar Magnússon, sviðsstjóri Eflingar
Margrét Björk Svavarsdóttir, fjármálastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
Oddur Ólafsson, framkvæmdastjóri HorseDay
Ólafur Daníelsson, framkvæmdastjóri FSRE
Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóri ELKO
Pálmi Þór Sævarsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar
Patrick Karl Winrow, Director, Manufacturing Transformation, JBT Marel
Perla Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Eflingar stéttarfélags
Rakel Lárusdóttir, sérfræðingur á fasteigna-og umhverfissviði Hörpu, tónlistar-og ráðstefnuhúss
Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi hönnunarmerkisins Fólk Reykjavík
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto
Sandra Gestsdóttir, deildarstjóri verkefnastofu Landspítala
Selma Svavarsdóttir, Director-Improvements and Safety/CEO´s Office Landsvirkjun
Sigríður Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfis- og gæðasviðs Eignarhaldsfélagsins Hornsteins
Sigríður Vala Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála-og upplýsingatækni Sjóvá
Sigrún Hólm Þórleifsdóttir, verkefnastjóri mannauðs hjá Sveitarfélaginu Múlaþing
Sigrún Hulda Jónsdóttir, deildarstjóri leikskóladeildar Kópavogsbæjar
Skúli Björn Jónsson, sviðsstjóri iðnaðarsviðs Eflu, verkfræðistofu
Sveinbjörn Ingi Grímsson, sérfræðingur hjá Fjársýslu ríkisins
Thelma Clausen Þórðardóttir, mannauðsstjóri og lögfr. hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Thelma Kristín Kvaran, ráðgjafi og eigandi Intellecta
Tinna Jóhannsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni hjá ON
Trausti Björgvinsson, framkvæmdastjóri Lotu, verkfræði-og ráðgjafastofu.
Unnur Elfa Guðmundsdóttir, grunnskólastjóri Áslandsskóla
Viðar Hólm, vöruþróunarstjóri JBT Marel
Vignir Sigurðsson, yfirlæknir barnalækninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips
Þór Sigfússon, stofnandi og framkvæmdastjóri Sjávarklasans
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
Þórður S. Óskarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Intellecta
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins
Þröstur V. Söring, framkvæmdastjóri fasteignasvið Sjómannadagsráðs
Örvar Sveinsson, Director of Manufacturin -Iceland hjá Össur