Indó mælist hæst fyrirtækja í Sjálfbærniásnum -15 fyrirtæki hlutu viðurkenningu Sjálfbærniássins 2025

Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins fór fram miðvikudaginn 29.maí í Gestastofu Elliðaárstöðvar, þar sem 15 fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir árangur í sjálfbærni. Þetta er í annað sinn sem niðurstöður Sjálfbærniássins eru kynntar, en mælikvarðinn byggir á mati almennings á frammistöðu íslenskra fyrirtækja í sjálfbærni.

Sjálfbærni nær í dag langt út fyrir umhverfismál. Hún snertir stjórnarhætti, mannauð, upplýsingagjöf, jafnrétti, samfélagsþjónustu, ábyrga fjármálastjórnun, tækni og nýsköpun – og ekki síst traust og gagnsæi. Þess vegna taka fjölbreytt fyrirtæki þátt í verkefninu; úr ólíkum atvinnugreinum en með sameiginlega sýn á samfélagslega ábyrgð. Sjálfbærni er ekki lengur sérsvið – heldur heildræn nálgun á starfsemi og tengsl við samfélagið.

Mælingin er svar við vaxandi kröfum viðskiptavina og annarra hagaðila um aukna ábyrgð fyrirtækja. Sjálfbærniásinn er samstarfsverkefni Prósents, Langbrókar og Stjórnvísi, með það að markmiði að efla meðvitund og hvetja til framfara í sjálfbærni.

Að þessu sinni mælist indó efst allra fyrirtækja samkvæmt niðurstöðum almenningskönnunar.

„Við erum þakklát fyrir þessa viðurkenningu – hún gefur okkur byr undir báða vængi. Frá fyrsta degi hefur markmið indó verið að hrista upp í fjármálaþjónustu og færa heimilum betri valkosti. Fyrir okkur snýst sjálfbærni ekki eingöngu um skýrslugjöf og mælikvarða – heldur raunveruleg áhrif á fólk. Þess vegna höfum við einbeitt okkur að því að byggja bankaþjónustu sem er einfaldari, réttlátari og hönnuð með hagsmuni viðskiptavina í forgrunni.“

Tryggvi Björn Davíðsson, framkvæmdastjóri indó og einn af stofnendum.

Á viðurkenningarhátíðinni kynnti Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents, einnig valdar niðurstöður úr íslensku kynslóðamælingunni 2025:

  • 53% einstaklinga telja að áhersla fyrirtækja á sjálfbærni hafi mjög eða frekar mikil áhrif á viðhorf þeirra.
  • Hlutdeildin er hæst í aldurshópnum 18–24 ára: 57%.
  • 40% þjóðarinnar eru líkleg til að sniðganga fyrirtæki sem ekki uppfylla kröfur þeirra um sjálfbærni.

 

„Það er áhugavert að sjá skýrt afstöðu þjóðarinnar til sjálfbærnimála en 40% þjóðarinnar eru líkleg til að sniðganga fyrirtæki ef þau uppfylla ekki kröfur þeirra um samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni. Með þessari mælingu erum við að varpa ljósi á það hvernig almenningur upplifir áherslur fyrirtækja í sjálfbærnimálum. Sjálfbærniásinn gefur þeim tækifæri til að sjá hvernig þau mælast í samanburði við önnur fyrirtæki og geta tekið upplýstar ákvarðanir um framhaldið. Jafnframt viljum við styrkja stöðu neytenda sem áhrifaaðila í þessari vegferð,“ segir Trausti Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents.“

Trausti Heiðar, framkvæmdastjóri Prósents.

Markmið Sjálfbærniássins:

  • Veita hlutlausar og samanburðarhæfar upplýsingar um viðhorf almennings til þess hvernig íslensk fyrirtæki standa sig í sjálfbærnimálum.
  • Hvetja fyrirtæki til að leggja meiri áherslu á sjálfbærni og miðla aðgerðum sínum með skýrari hætti.
  • Auka vitund neytenda um mikilvægi sjálfbærni og hvernig þeir geta haft áhrif með eigin kauphegðun.

Lykilmælikvarðar

  1. Ég er ánæg(ð/ður/t) með framlag [fyrirtækis] til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið.

Jörðin

  1. [Fyrirtækið] leitast við að lágmarka sóun og losun við framleiðslu og afhendingu á vöru/þjónustu.

Fólkið

  1. [Fyrirtækið] hugar að velferð viðskiptavina sinna við þróun og afhendingu á vörum sínum og þjónustu.

Stjórnarhættir

  1. Stjórnendur [fyrirtækis] eru meðvitaðir um að þeir verði að grípa til aðgerða til að auka sjálfbærni.

Velsæld

  1. [Fyrirtækið] grípur til aðgerða til að vera samfélagslega ábyrgt fyrirtæki.

 

Niðurstöður

Fyrirtækin hlutu 0 til 100 stig þar sem 0-49 stig er talin slæm frammistaða, 50-59 stig meðalgóð frammistaða, 60-69 stig er góð frammistaða og 70 stig og yfir er framúrskarandi frammistaða.

Mynd 1. Viðmið Sjálfbærniássins

Sá markaður sem fékk heilt yfir flest stig var flugfélög og sá markaður sem fékk heilt yfir fæst stig var sjávarútvegsfyrirtæki.

Mynd 2. Heildarmeðaltal markaða.

Stigalægsta fyrirtækið hlaut 35 stig af 100 mögulegum og stigahæsta fyrirtækið hlaut 85 stig. Það fyrirtæki sem hlaut flest stig allra mældra fyrirtækja er indó með 85 stig. Össur mældist með næsthæstu einkunn, 83 stig og Íslensk erfðagreining sem var sigurvegari Sjálfbærniássins 2024 með þriðju hæstu einkunnina, 79 stig.

Mynd 3. Meðaltal fyrirtækja.

Mynd 4. Meðaltal fyrirtækja eftir mörkuðum.

Framkvæmd og þátttakendur
Rannsóknin er framkvæmd af rannsóknarfyrirtækinu Prósenti. Framkvæmdatími var frá janúar til apríl 2025 og var um að ræða netkannanir sem voru sendar á könnunarhóp Prósents.

Rannsóknarmódelið á bak við Sjálfbærniásinn
Rannsóknarmódelið samanstendur af sex spurningum sem kanna viðhorf neytenda til frammistöðu fyrirtækja í sjálfbærnimálum. Spurningarnar snúa meðal annars að því hvort að fyrirtæki leggi sitt af mörkum til samfélagsins, hvort þau hugi að velferð viðskiptavina og hvort að þau leitist við að lágmarka sóun. Módelið mælir þá 4 þætti sem The World Economic Forum telja að muni leiða heiminn á sjálfbærari stað. Þessir 4 þættir eru; Jörðin, fólkið, stjórnarhættir og velsæld. Spurningar eru úr módeli sem þróað er og sannprófað af Qualtrics, byggt á 27.000 svörum frá 26 löndum og 16 mörkuðum.

 

Nánari upplýsingar 
Soffía Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Langbrókar , í síma 694 9099,  netfang: soffia@langbrok.is  
Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents í síma 546 1008 / 859 9130, netfang: trausti@prosent.is.

 

Fleiri fréttir og pistlar

Aðalfundur faghóps markþjálfunar - fundargerð

Aðalfundur faghóps um markþjálfun verður haldinn fimmtudaginn 16. apríl klukkan 13:30 til 13:45 eftir viðburð í húsakynnum HR.

Fundardagskrá:

  • Uppgjör á starfsári - haldnir voru
    • 9 stjórnarfundir
    • 9 viðburðir
  • Kosning til stjórnar - núverandi stjórn gaf kost á sér áfram.
    • Lilja Gunnarsdóttir formaður
    • Anna María Þorvaldsdóttir
    • Anna H. Þorsteinsdóttir
    • Áslaug Þ. Guðjónsdóttir
    • Guðbjörg Jóhannsdóttir
  • Kosning formanns
    • Lilja Gunnarsdóttir formaður
  • Önnur mál
    • Engin önnur mál

Fundi var slitið kl 13:45

Þema Stjórnvísi 2026-2027: „Manneskjan í miðju umbreytinga – 40 ára og áfram.“

Í dag hélt ný stjórn Stjórnvísi undirbúningsfund fyrir komandi starfsár 2026-2027. Full mæting var á fundinn sem haldinn var í Marel: Ásdís Sigurðardóttir, Anna Kristín Kristinsdóttir,Gunnhildur Arnardóttir, Héðinn Jónsson, Ingibjörg Loftsdóttir, Matthías Ásgeirsson, Snorri Páll Sigurðsson, Sveinn Kjarval, Viktor Freyr Hjörleifsson, Tinna Jóhannsdóttir.
Á þessum fundi var m.a. tekið fyrir eftirfarandi:
Yfirferð áframtíðarsýn, stefnu, gildum, lögum og siðareglum. Anna Kristín Kristinsdóttir formaður Stjórnvísi fór yfir samskiptareglur sjtórnar. Við ætlum að eiga opin, heiðarleg og uppbyggileg samskipti sem stuðla að trausti, virðingu og góðu samstarfi. Einnig var farið yfir framtíðarsýn, stefnu, gildi, meginmarkmið lög og siðareglur. Stefnumótun verður unnin á þessu ári . Í þeirri vinnu verður boðið fulltrúa frá hverjum faghópi.  Nýlega voru lög félagsins yfirfarin og síðast breytt á aðalfundi 2025. Farið var yfir þær breytingar ásamt því að siðareglur voru kynntar. 
Umræður urðu um hvar stjórn vill eiga samskipti og var ákveðið að halda áfram að eiga samræður í tölvupóstum og á Teams.
Áætlun og lykilmælikvarðar. Áætlun félagsins stenst og eru tekjur á áætlun. Áætlun félagsins er uppfærð reglulega allt árið og er aðgengileg stjórnarfólki í Sharepoint. Stjórn var hvött af framkvæmdastjóra félagsins til að fara inn á Sharepoint reglulega.
Farið var yfir aðganga stjórnar að Sharepoint, Teams, Facebook og skráning stjórnar í faghópinn „stjórn Stjórnvísi“.
Þema ársins 2026-2027 ákveðið og útfærsla. Nýkjörin stjórn kom með fjölda hugmynda að þema ársins. Fyrir 40 árum, hvað var að gerast þá? Niðurstaðan var sú að stjórn sammæltist um að þema ársins yrði „Manneskjan í miðju umbreytinga – 40 ára og áfram“. Farið verður betur yfir útfærsluna í haust.
Varaformaður Stjórnvísi og ritari verða kosin á fyrsta stjórnarfundi í haust.
Fundartími og staðsetningu stjórnarfunda. Niðurstaðan var sú að stjórnarfundir verða haldnir fyrsta fimmtudag í mánuði kl.11:00-12:00. Stjórn mun skiptast á að bjóða heim, ef eitthvað kemur upp á er alltaf hægt að halda fundi í Innovation House og á Teams. Ef áhugi er að bjóða í mat eða skoðunarferð um vinnustað gestgjafa er það gert um leið og fundi lýkur kl.12:00.

Aðalfundur faghóps um stjórnun upplýsingaöryggis var haldinn 18.maí 2026

Fundur hófst 12:30 og á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf:

Farið var yfir liðið starfsár, viðburði ársins og samvinnu með öðrum fahópum. 

Næst kom að kosningu stjórnar. 

Tveir stjórnarmeðlimir sóttust ekki eftir áframsetu, Auður Íris og Friðbjörn. Er þeim þakkað kærlega fyrir þeirra störf. 

Nýr aðili sóttist eftir setu í stjórn, Andri Örn hjá Reykjanesbæ. Var hann sjálfkjörinn og boðinn velkominn í hópinn. 

Að lokum voru önnur mál. Rætt var um fyrirkomulag stjórnar faghópsins, hugmyndir að frekari samvinnu og önnur mál. 

Fundi slitið 13:00

Aðalfundur innkaupa- og vörustýringar

Aðalfundur innkaupa-og vörustýringar fyrir starfsárið 2025-2026 var haldinn 6.maí síðastliðinn.

Starfsárið 2025-2026 var gert upp, farið yfir hugmyndir að viðburðum næsta árs og var kosið í nýja stjórn fyrir starfsárið 2026-2027 sem er eftirfarandi:

Ragnhildur Edda Tryggvadóttir (formaður) Landsnet
Rúna Sigurðardóttir (varaformaður) Bananar
Jón Þór Sigmundsson Alvotech hf.
Snorri Páll Sigurðsson Alvotech

Eva Lillý Bjarndal Einarsdóttir N1

Faghópurinn þakkar öllum meðlimum fyrir þátttökuna starfsárinu sem var að ljúka og hlökkum til þess næsta! Viljum endilega hvetja þá sem hafa tillögur að erindum á dagskrá fyrir næsta vetur að vera í sambandi við formann stjórnar og varaformann.

Fjölbreyttir viðburðir hjá faghópi framtíðarfræða

Á aðalfundi hópsins, sem haldin var 7 maí, kom fram að faghópurinn hefur staðið fyrir alls 10 viðburðum, auk þess að benda á áhugaverðar fréttir af framtíðarmálum. Eins og gefur að skilja nær framtíðaráskoranir til alla þátta stjórnunar og reksturs, og því hefur verið þó nokkuð um samstarf við aðra faghópa félagsins og þó sérstaklega faghóps um gervigreind. Félagar í hópnum eru núna alls 561 og fer fjölgandi.

Helstu viðburðir á seinasta starfstíma voru eftirfarandi:

  • Árlega samantekt Jeromy Clenn, forstjóri Milliennium Project, um áhugaverða viðburði liðin árs.
  • Alþjóðleg stjórnun gervigreindar – valmöguleikar. Sameiginlegur fundur faghópa um gervigreind og framtíðarfræði.
  • Gervigreindarstraumar – beint frá San Francisco. Sameiginlegur fundur faghópa um gervigreind og framtíðarfræði
  • Er þjálfun gervigreindar brot á höfundarétti?. Sameiginlegur fundur faghópa um gervigreind og framtíðarfræði
  • Framtíðar-samfélagsrými í þágu velsældar. Sameiginlegur fundur faghópa um Heilsueflandi vinnuumhverfi, Framtíðarfræði, Sjálfbæra þróun, Loftslagsmál og umhverfi.
  • Síungir karlmenn – kynning á jólabókinni í ár og aðferð til að móta æskileg framtíðaráform.
  • Alþjóðlegir viðburðir á árinu 2025. Útfrá hugarheimi framtíðarfræðinga. Samantekt á heimsviðburðum á árinu 2025.
  • Nýársmálastofa faghópa framtíðarfræða og gervigreindar. Hvað er það sem koma skal? Sameiginlegur fundur faghópa um framtíðarfræði og gervigreind.
  • Slæmar framtíðir í samstarfi við London Futurist
  • World Futures Day 2026. Taktu þátt í samtali um framtíða mannkyns 1.mars. Sameiginlegur fundur faghópa um framtíðarfræði og gervigreind.
  • Framtíðarsamfélag án aldursfordóma. Vinnustofan er samstarfssvefnefni Framtíðarseturs Íslands og þekkingarmiðstöðvarinnar Farsæl öldrun og er hluti af verkefninu Northern Futures Hub.
  • Að rýna í græn umskipti og ólíkar framtíðir. Sameiginlegur fundur faghópa um framtíðarfræði, gervigreind, sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi.

Stjórn faghópsins

Karl Friðriksson Framtíðarsetur Íslands, formaður.

Anna Sigurborg Ólafsdóttir Framtíðarnefnd Alþingis.

Dögg Sigmarsdóttir Framtíðarsetur Íslands.

Funi Magnússon Össur.

Guðjón Þór Erlendsson Skipulagsstofnun.

Gunnar Haugen CCP hf.

Ingibjörg Smáradóttir Náttúrufræðistofnun

Kolfinna Tómasdóttir Rannís

Sigurður B. Pálsson BYKO.

Sævar Kristinsson KPMG.

Þór Garðar Þórarinsson Háskóli Íslands

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?