Verðlaunahafar Íslensku ánægjuvogarinnar 2023

Hér er linkur á streymið, á örmyndbönd, myndir, frétt á vísi, mbl, vb.is  Þann 19. janúar 2024 voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2023 kynntar og er þetta tuttugasta og fimmta árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.

Ánægjuvogin verðlaunar þau fyrirtæki sem skara fram úr í ánægju á sínum markaði

„Mikill heiður er fyrir fyrirtæki að vera hæst á sínum markaði í Íslensku ánægjuvoginni. Íslenska ánægjuvogin er mælikvarði á ánægju viðskiptavina sem er mæld reglulega yfir árið og gagnast fyrirtækjum sem mælikvarði á þeirra frammistöðu á milli ára og í samanburði við helstu samkeppnisaðila“

Segir Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Íslensku ánægjuvogarinnar og Stjórnvísi

Þau fyrirtæki sem vinna á sínum markaði fá að nota merki Íslensku ánægjuvogarinnar í sínu markaðsefni sem og að njóta heiðursins.

Dropp nýtt í mælingu með hæstu ánægju Ánægjuvogarinnar

Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 40 fyrirtæki í 15 atvinnugreinum. Nokkur munur er á ánægju þeirra fyrirtækja sem voru mæld og eru einkunnir frá 53,9 til 83,9 af 100 mögulegum. Dropp er sigurvegari Ánægjuvogarinnar 2023. Dropp kemur inn sem nýtt fyrirtæki sem birtar eru niðurstöður fyrir sem póstþjónustufyrirtæki og nær þeim árangri að fá hæstu mælinguna í ár. Dropp var með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni 83,9 stig. Lægstu einkunn ársins hlaut Íslandsbanki með 53,9 stig.


Costco eldsneyti ekki lengur hæst

Costco eldsneyti hefur síðan 2017 verið hæst allra fyrirtækja en hlýtur nú annað sætið á eftir Dropp. Costco eldsneyti hefur fjórum sinnum verið með hærri stig en Dropp mælist með núna.


Nova ver titilinn 15. árið í röð

Nova hefur verið marktækt hæst, á sínum markaði, samtals í 15 ár í röð. Ekkert annað félag hefur sigrað svo oft á sínum markaði.


Níu fyrirtæki marktækt hæst á sínum markaði

Gyllta merkið er einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina á viðkomandi markaði, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina. Þessir sigurvegarar mega þar af leiðandi segjast vera með ánægðustu viðskiptavinina.

Sigurvegarar Íslensku ánægjuvogarinnar 2023 – Gullhafar

  • Dropp 83,9 stig meðal póstþjónustufyrirtækja
  • Costco eldsneyti 80,8 stig meðal eldsneytisstöðva
  • IKEA 76,6 stig meðal húsgagnaverslana
  • Icelandair 74,3 stig meðal flugfélaga
  • Nova 74,2 stig meðal fjarskiptafyrirtækja
  • Krónan 73,7 stig meðal matvöruverslana
  • Apótekarinn 73,6 stig meðal apóteka
  • A4 70,9 stig meðal ritfangaverslana
  • BYKO 70,3 stig meðal byggingavöruverslana

Vinningshafar í sinni atvinnugrein – Blátt merki

Efstu fyrirtæki á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti fengu einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur.

  • Heimilistæki 75,8 stig meðal raftækjaverslana
  • Orka náttúrunnar 68,0 stig meðal raforkusala
  • Sjóvá 67,5 stig meðal tryggingafélaga
  • Kringlan 67,2 stig meðal verslunarmiðstöðva
  • Landsbankinn 60,8 stig meðal banka

Hástökkvarinn í ár er Orkan

Orkan er það fyrirtæki sem hækkaði mest á milli ára og fær titilinn hástökkvarinn 2023. Orkan fékk 64,3 stig árið 2022 og hlaut nú 67,9 sem er hækkun um 3,6 stig.

Íslandsbanki í sögulegu lágmarki

Íslandsbanki mælist með lægstu einkunnina, sem er nú 53,9; sem er lægra en árið 2009 þegar einkunn Íslandsbanka var 54,5.

 

Kvartanir hafa áhrif á tryggð viðskiptavina
Ákveðið var að bæta við tveimur spurningum um kvartanir í líkanið. Annars vegar er spurt hvort að viðskiptavinir hafi kvartað eða haft ástæðu til að kvarta og hins vegar um hversu ánægðir þeir voru með úrlausn kvörtunarinnar. Samkvæmt bandarísku ánægjuvoginni hefur þessi málaflokkur mikil áhrif á tryggð viðskiptavina og því fleiri sem hafa kvartað því minni er tryggðin. Niðurstöður hérlendis sýna að hlutfall þeirra sem kvörtuðu voru 6% en 17% höfðu ástæðu til að kvarta en gerðu það ekki.

Íslenska Ánægjuvogin í aldarfjórðung

Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en mælingarnar byggja á erlendu líkani og aðferðafræði. Nokkrir þættir eru mældir sem hafa áhrif á ánægju viðskiptavina þ.e. væntingar, ímynd, mat á gæðum og virði þjónustu.

Mæling sem þessi er mjög mikilvæg þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á að því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækis eru því betri afkomu getur fyrirtækið gert sér vonir um.“

Segir Gunnhildur að lokum.

Einkunnir allra birtra fyrirtækja í hverri atvinnugrein

Bankar

2023

2022

2021

2020

 

Fjarskiptafyrirtæki

2023

2022

2021

2020

 

Matvöruverslanir

2023

2022

2021

2020

Landsbankinn

60,8

66,3

67,9

66,3*

 

Nova

74,2*

76,9*

78,7*

78,5*

 

Krónan

73,7*

74,4*

73,4*

74,2*

Arion banki

59,0

62,0

65,3

62,4

 

Síminn

68,1

71,0

73,5

70,4

 

Bónus

66,2

67,9

68,2

68,4

Íslandsbanki

53,9

64,5

66,1

63,3

 

Vodafone

67,4

70,0

69,5

67,2

 

Nettó

63,8

66,0

68,1

70,3

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tryggingafélög

2023

2022

2021

2020

 

Eldsneytisstöðvar

2023

2022

2021

2020

 

Verslanir

2023

2022

2021

2020

Sjóvá

67,5

69,5*

69,0

72,6*

 

Costco eldsneyti

80,8*

81,3*

85,0*

85,8*

 

IKEA

76,6

75,2

76,4

78,0

Vörður

64,8

65,3

66,5

65,3

 

ÓB

69,1

66,7

68,6

71,3

 

Heimilistæki

75,8

75,6

79,2

74,2

VÍS

63,5

61,5

62,8

60,9

 

Atlantsolía

68,8

66,0

69,4

72,5

 

ELKO

74,6

73,7

76,2

72,8

TM

60,0

63,8

65,0

63,6

 

Orkan

67,9

64,3

63,6

68,9

 

Krónan

73,7

74,4

73,8

74,2

 

 

 

 

 

 

N1

63,6

62,1

63,3

63,9

 

Apótekarinn

73,6

75,3

75,1

74,4

Raforkusölur

2023

2022

2021

2020

 

 

 

 

 

   

A4

70,9

71,7

72,8

72,8

Orka náttúrunnar

68,0

70,8*

65,7

67,2

 

Apótek

2023

2022

2021

2020

 

BYKO

70,3

70,5

68,3

68,2

HS Orka

65,1

66,9

65,0

63,5

 

Apótekarinn

73,6*

75,3*

75,1*

74,4

 

Lyfja

69,8

72,0

71,5

71,6

N1 Rafmagn

64,5

66,9

N/A

N/A

 

Lyfja

69,8

72,0

71,5

71,6

 

JYSK

69,4

68,0

69,5

69,1

Orkusalan

62,8

65,4

62,7

62,2

             

Vínbúðir ÁTVR

67,9

68,9

70,1

75,4

           

Raftækjaverslanir

2023

2022

2021

2020

 

Penninn Eymundsson

67,7

71,1

75,3

73,2

Ritfangaverslanir

2023

2022

2021

2020

 

Heimilistæki

75,8

75,6

79,2*

74,2

 

Bónus

66,2

67,9

68,2

68,4

A4

70,9*

71,7

72,8

72,8

 

ELKO

74,6

73,7

76,2

72,8

 

Húsasmiðjan

65,4

63,9

61,5

61,7

Penninn Eymundsson

67,7

71,1

75,3

73,2

             

Nettó

63,8

66,0

68,1

70,3

 

 

 

 

 

 

Húsgagnaverslanir

2023

2022

2021

2020

 

Costco

61,5

65,9

65,5

65,8

Byggingavöruverslanir

2023

2022

2021

2020

 

IKEA

76,6*

75,2*

76,4*

78,0*

 

 

 

 

 

 

BYKO

70,3*

70,5*

68,3*

68,2*

 

JYSK

69,4

68,0

69,5

69,1

 

Flugfélög

2023

2022

2021

2020

Húsasmiðjan

65,4

63,9

61,5

61,7

 

 

         

Icelandair

74,3*

71,7

N/A

N/A

 

         

Verslunarmiðstöðvar

2023

2022

2021

2020

 

Play

69,9

72,1

N/A

N/A

Póstþjónustufyrirtæki

2023

2022

2021

2020

 

Kringlan

67,2

66,9

66,1

70,7

 

 

 

 

 

 

Dropp

83,9*

N/A

N/A

N/A

 

Smáralind

67,1

68,3

67,8

71,6

 

 

 

 

 

 

Pósturinn

59,2

56,1

54,1

56,6

             

 

 

 

 

 

* Fyrirtæki sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein


 

Um framkvæmd rannsóknar

Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og sá Prósent um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni 2023. Gögnum var safnað frá apríl til desember árið 2023. Könnunin var send í tölvupósti á könnunarhóp Prósents. Um 3.000 manna úrtak á hverjum markaði; 200-1.000 svarendur fyrir hvert fyrirtæki. Niðurstöður voru vigtaðar með tilliti til kyns, aldurs og búsetu þýðisins.

Ánægjuvogin samanstendur af þremur spurningum:

  1. Á heildina litið, hversu ánæg(ð/ður/t) eða óánæg(ð/ður/t) ert þú með reynslu þína af [fyrirtæki]?
  2. Hugleiddu allar væntingar þínar til [fyrirtækis] annars vegar og reynslu þína af fyrirtækinu hins vegar. Að hve miklu leyti uppfyllir [fyrirtæki] væntingar þínar?
  3. Núna biðjum við þig um að ímynda þér hið fullkomna [fyrirtæki á viðkomandi markaði]. Hversu nálægt slíku fyrirtæki er [fyrirtæki]?

Ánægjuvogareinkunnin tekur gildi á kvarðanum 0-100, þar sem hærri einkunn gefur til kynna meiri ánægju.

Merki Íslensku ánægjuvogarinnar

Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem finna má á https://www.stjornvisi.is/is/anaegjuvogin ásamt öðrum upplýsingum um Íslensku ánægjuvogina.

Uppskeruhátíðin á Grand hótel

Íslenska ánægjuvogin 2023 var afhent með pompi og prakt á Grand hótel í morgun, föstudaginn 19. janúar 2024, klukkan 8:30-9:25. Beint streymi frá viðburðinum má nálgast hér https://www.youtube.com/watch?v=Dyw6945TTFQ

Nánari upplýsingar

Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi, sími 840 4990, netfang: gunnhildur@stjornvisi.is

Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents sími 546 1008 / 859 9130, netfang: trausti@prosent.is.

 

Fleiri fréttir og pistlar

Öflug starfsemi á vegum Millennium Project – Fréttastiklur af því nýjasta.

Alheimsvettvangur framtíðarfræðinga Millennium Project, gefur reglulega út fréttabréf um ýmsa viðburði. Þarna er fjallaðu um ráðstefnur, útgáfumál og námskeð. Í nýjasta fréttabréfinu er meðal annars fjallað um heimsókn Jerome Glenn hingað til lands, ásamt öðru sem tengdist þeim viðburði. Endilega gerist áskrifendur af fréttabréfinu ef þið viljið fylgjast með á þessu sviði. Farið inn á eftirfarandi vefslóð:

https://mailchi.mp/millennium-project/newsletter-june-2024

Þróun framtíðarfræða í mismunandi heimshlutum. Gjaldfrjáls bók.

Bókin „Our World of Futures Studies as a Mosaic“ er ritstýrð af Tero Villman, Sirkka Heinonen (formaður Helsinki Node) og Laura Pouru-Mikkola. Í bókinni er meðal annars framlag frá sérfræðingum Millennium Project, eins og Jerome Glenn, Mara Di Berardo (Comms Director og Italy Node Co-formaður), Fredy Vargas Lama (Colombia Node Co-formaður), Nicolas Balcom Raleigh (FEN forseti) og Sirkka Heinonen. Bókin er ókeypis og kynnir aðferðir við framtíðarfræði og framsýni frá mismunandi heimshlutum. Hægt er að halaða bókina niður af eftirfarandi vefslóð:

 https://www.millennium-project.org/our-world-of-futures-studies-as-a-mosaic/

 

Aðalfundur faghóps framtíðarfræða

Mánudaginn 10 júní var aðalfundur faghóps framtíðarfræða haldinn. Gestur fundarins var Jerome Glenn, forstjóri og stofnandi Millennium Project, sem er einn stærsti vettvangur framtíðarfræðinga á alþjóðavísu. Jerome ræddi almennt um þróun meginstrauma samfélaga, en um morguninn var hann með morgunverðarerindi á vegum Framtíðarseturs Íslands í Arion Banka. Á fundinum voru eftirfarandi tekin inn í stjórn faghópsins; Funi Magnússon, Embla Medical, Sverrir Heiðar Davíðsson, Orkuveitan og Ingibjörg Smáradóttir, Náttúrufræðistofnun. Fljótlega verður listi stjórnarmeðlima uppfærður á vefnum. 

Aðalfundur loftslagshóps 22. maí

Miðvikudaginn 22. maí 2024 kl. 9.00 var aðalfundur loftslagshóps haldinn á Teams. Fundarstjóri var Guðný Káradóttir formaður faghóps og fundarritari Íris Þórarinsdóttir stjórnarmaður í faghópnum. 

Guðný opnaði fundinn og kynnti dagskrá fundarins: 1.Uppgjör á starfsári 2.  Kosning til stjórnar 3.  Önnur mál. 

Í uppgjör starfsársins sagði Guðný frá hlutverki og starfi hópsins á árinu en nú eru 248 meðlimir í hópnum. Haldnir voru fjórir viðburðir auk aðalfundar, sumir í samstarfi við aðra hópa og einn í samstarfi við gæðastjóra í bygginga- og mannvirkjagerð innan SI. Upptökur af fundum eru birtar á Facebook síðu Stjórnvísis. 

  • 14. september -  Er áhættustjórnun - lífsnauðsynleg aðferðafræði fyrir allar skipulagsheildir?
  • 9. október –  Vísindaleg viðmið fyrir loftslagsmarkmið fyrirtækja - SBTi
  • 17. janúar – Svansvottaðar framkvæmdir – reynsla verktaka
  • 17. maí – Hverju skilar vottun skipulagsheilda með ISO stjórnunarkerfisstöðlum og í hverju liggur  ávinningurinn?

Stjórnarkjör:

Fráfarandi stjórn er þannig skipuð:

  • Guðný Káradóttir, VSÓ ráðgjöf, formaður – hættir í stjórn 
  • Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið – situr áfram í
  • stjórn 
  • Ásgeir Valur Einarsson, Iðan fræðusetur – situr áfram í stjórn
  • Gná Guðjónsdóttir, Versa vottun – hættir í stjórn
  • Ingibjörg Karlsdóttir, FlyPlay – hættir í stjórn
  • Íris Þórarinsdóttir, Reitir fasteignafélag – hættir í stjórn
  • Katrín Georgsdóttir, Elding hvalaskoðun – hættir í stjórn
  • Jennifer Lynn Schwalbenberg, lögfræðingur  – situr áfram í stjórn
  • Leó Sigursson, Örugg verkfræðistofa – situr áfram í stjórn 
  • Rannveig Anna Guicharnaud, Deloitte – situr áfram í stjórn 

Formaður og þrír stjórnarmenn ganga nú úr stjórn; Guðný Káradóttir, Gná Guðjónsdóttir, Katrín Georgsdóttir og Íris Þórarinsdóttir.

Eitt nýtt framboð barst í stjórn, Grace Achieng, og Leó Sigurðsson bauð sig fram sem formann. Þau voru kosin. Ný stjórn er þannig skipuð:

  • Leó Sigursson, Örugg verkfræðistofa, formaður
  • Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið  
  • Ásgeir Valur Einarsson, Iðan fræðusetur 
  • Grace Achieng, Gracelandic ehf.
  • Jennifer Lynn Schwalbenberg, lögfræðingur 
  • Rannveig Anna Guicharnaud, Deloitte 

Guðný óskaði nýrri stjórn velfarnaðar á nýju starfsári og birti lista yfir tillögur að efni funda sem fráfarandi stjórn hafði sett niður á blað og ný stjórn getur unnið áfram með ef vill.

Undir önnur mál: Leó þakkaði Guðnýju fyrir hennar störf og þakkar traustið semnýr formaður. Ákveðið að ný og fráfarandi stjórn hittist fljótlega. Einnig rætt um áhuga á samstarfi loftslagshóps og hóps um sjálfbærni.  

 

Gervigreindar umbreyting rétt að hefjast og strax árangur

Gervigreindar umbreyting er rétt að hefjast og við sjáum strax árangur: "The types of business which are most likely to use artificial intelligence are seeing growth in workers' productivity that is almost five times faster than elsewhere, raising hopes for a boost to the broader economy, accountancy firm PwC said."

Hér er fréttin á Reuters:
https://www.reuters.com/technology/ai-intensive-sectors-are-showing-productivity-surge-pwc-says-2024-05-20/

Hér er skýrsla PWC sem vísað er í:
https://www.pwc.com/gx/en/issues/artificial-intelligence/ai-jobs-barometer.html

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?