Febrúar 2027

Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
01
  •  
02
  •  
03
  •  
04
  •  
05
  •  
06
  •  
07
  •  
08
  •  
09
  •  
10
  •  
11
  •  
12
  •  
13
  •  
14
  •  
15
  •  
16
  •  
17
  •  
18
  •  
19
  •  
20
  •  
21
  •  
22
  •  
23
  •  
24
  •  
25
  •  
26
  •  
27
  •  
28
  •  
01
  •  
02
  •  
03
  •  
04
  •  
05
  •  
06
  •  
07
  •  

Að leiða í óvissu og óstöðugleika: Hvað getur Agile hugmyndafræðin kennt okkur um að rata í þoku?

Áætlanir eru gerðar fyrir heim sem er fyrirsjáanlegur, en sá heimur er að mestu horfinn. Breytingar koma hraðar, forsendur úreldast á meðan verkefnið er enn í gangi og leiðtogar standa oft frammi fyrir spurningum sem enginn hefur svarið við.

Hugmyndafræði Agile varð til einmitt við slíkar aðstæður. Hún snýst ekki fyrst og fremst um aðferðir og verkfæri heldur um hugarfar: að taka stutt skref, læra jafnóðum, treysta teyminu og halda stefnu án þess að sjá alla leiðina.

Í erindinu skoðum við hvað leiðtogar í öllum geirum geta lært af þessari nálgun, og af hverju óvissa kallar ekki bara á nýjar aðferðir. Hún kallar líka á að við þorum að líta inn á við og skoða hvernig við sjálf hugsum og bregðumst við, því hvernig við mætum óvissunni innra með okkur ræður því hvernig við leiðum aðra í gegnum hana.

Öll eru velkomin, hvort sem þið þekkið Agile í þaula eða hafið aldrei heyrt á það minnst. Það eina sem þarf í nesti er forvitni og vilji til að líta á óvissuna sem vegvísi frekar en ógn.

Viðburðurinn verður í stofu 216 í Opna háskólanum í HR en verður ekki í streymi. 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?