Ánægjuvogin 2021

Mikill munur er á ánægju hjá þeim 37 fyrirtækjum sem voru mæld, einkunnir voru frá 54,1 til 85,0 af 100 mögulegum

Þann 21. janúar voru niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2021 kynntar og er þetta tuttugasta og þriðja árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.

Að vinna Ánægjuvogina er eftirsóknavert fyrir fyrirtæki

Mikill heiður er að vera hæstur á sínum markaði í Íslensku ánægjuvoginni. Íslenska ánægjuvogin er mælikvarði á ánægju viðskiptavina sem er mæld reglulega yfir árið og gagnast fyrirtækjum sem mælikvarði á þeirra frammistöðu á milli ára og í samanburði við helstu samkeppnisaðila. Þau fyrirtæki sem vinna sinn flokk fá að nota merki Íslensku ánægjuvogarinnar á sínu markaðsefni sem og njóta heiðursins. 

37 fyrirtæki í 13 atvinnugreinum voru mæld

Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 37 fyrirtæki í 13 atvinnugreinum. Prósent (áður Zenter rannsóknir) sá um framkvæmd mælingarinna sem fór fram yfir árið 2021. Könnunin var send í tölvupósti á könnunarhóp Prósents. Um 3.000 manna úrtak á hverjum markaði. 200-1.000 svarendur fyrir hvert fyrirtæki. Niðurstöður voru vigtaðar með tilliti til kyns, aldurs og búsetu þýðisins.

Sjö fyrirtæki marktækt hæst á sínum markaði 

Líkt og undanfarin sjö ár er viðurkenning einungis veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina.

Þau fyrirtæki sem fengu viðurkenningu að þessu sinni voru eldsneytissala Costco var hæst á eldsneytismarkaði með 85,0 stig af 100 mögulegum, Heimilistæki með 79,2 stig hjá raftækjaverslunum, Nova fékk 78,7 á fjarskiptamarkaði, IKEA var hæst húsgagnaverslana með 76,4 stig, Apótekarinn var hæstur á lyfsölumarkaði með 75,1, Krónan var hæst allra á matvörumarkaði með 73,4 stig, BYKO fékk 68,3 á byggingavörumarkaði og var Heimilistæki hæst allra fyrirtækja á smásölumarkaði með 79,2 stig.

Costco eldsneyti var með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni þetta árið og eru viðskiptavinir eldsneytissölu Costco þar af leiðandi þeir ánægðustu á Íslandi. Hins vegar ber að taka fram að Costco er ekki með ánægðustu viðskiptavinina á smásölumarkaði en þar var Costco með þriðju lægstu einkunnina eða 65,5 stig.

Efstu fyrirtækjum á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti fengu einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur; Penninn Eymundsson var með 75,3 stig á ritfangamarkaði, Sjóvá fékk 68,9 stig á tryggingamarkaði, Landsbankinn var með 67,9 stig á bankamarkaði, Smáralind með 67,8 hjá verslunarmiðstöðum og hjá raforkusölum var Orka náttúrunnar hæst með 65,7 stig.

Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og sá Prósent (áður Zenter rannsóknir) um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni 2021.


Einkunnir allra birtra fyrirtækja í hverri atvinnugrein má sjá í töflunni hér að neðan. 



Bankar

2021

2020

2019

 

Farsímamarkaður

2021

2020

2019

 

Smásöluverslun

2021

2020

2019

Landsbankinn

 67,9

 66,3

 67,5

 

Nova

 78,7*

 78,5*

 75,1*

 

Heimilistæki

 79,2*

 74,2

 N/A

Íslandsbanki

 66,1

 63,3

 66,2

 

Síminn

 73,5

 70,4

 70,6

 

IKEA

 76,4

 78,0*

 N/A

Arion banki

65,3 

62,4 

62,8 

 

Vodafone

 69,5

 67,2

 63,4

 

ELKO

 76,2

 72,8

 N/A

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Penninn Eymundsson

 75,3

 73,2

 71,2

Tryggingafélög

2021

2020

2019

 

Eldsneytisfélög

2021

2020

2019

 

Apótekarinn

 75,1

 74,4

 74,0

Sjóvá

68,9 

72,6* 

67,0* 

 

Costco bensín

85,0* 

85,8* 

85,9* 

 

Krónan

 73,4

 74,2

 74,7

Vörður

 66,5

 65,3

 62,4

 

Atlantsolía

 69,4

 72,5

 71,9

 

A4

 72,8

 72,8

 70,5

TM

 65,0

 63,6

 60,9

 

ÓB

 68,6

 71,3

 69,3

 

Lyfja

 71,5

 71,6

 70,1

VÍS

 62,8

 60,9

 60,1

 

Olís

 62,9 

 71,3 

 71,4 

 

Vínbúðin

 70,1

 75,4

 74,3

 

 

 

 

 

Orkan

 63,6 

 68,9 

 65,7 

 

Rúmfatalagerinn

 69,5

 69,1

 N/A

Raforkusölur

2021

2019

2018

 

N1

 63,3

 63,9

 64,6

 

Byko

 68,3 

 68,2 

 71,3 

Orka náttúrunnar

 65,7

 67,2

 65,3

 

 

 

 

 

 

Bónus

 68,2 

 68,4 

 68,6 

HS Orka

 65,0

 63,5

 62,7

 

Apótek

2021

2020

2019

 

Nettó

 68,1

 70,3

 70,0

Orkusalan

 62,7

 62,2

 64,1

 

Apótekarinn

 75,1

 74,4

 74,0*

 

Smáralind

 67,8

 71,6

 N/A

 

 

 

 

 

Lyfja

 71,5

 71,6

 70,1

 

Kringlan

 66,1

 70,7

 N/A

Matvöruverslanir

2021

2020

2019

 

           

Costco

 65,5

 65,8

 65,8

Krónan

 73,4*

 74,2*

 74,7*

 

Raftækjaverslanir

2021

2020

2019

 

Húsasmiðjan

 61,5

 61,7

 62,5

Nettó

 68,1 

 70,3 

 70,0 

 

Heimilistæki

 79,2*

 74,2

 N/A

 

Pósturinn

 54,1

 56,6

 46,7

Bónus

 68,2

 68,4

 68,6

 

Elko

 76,2 

 72,8 

 N/A 

         

 

 

 

 

 

 

 

 

 

         

Byggingavöruverslanir

2021

2020

2019

 

Húsgagnaverslanir

2021

2020

2019

         

Byko

 68,3*

 68,2*

 71,3*

 

IKEA

 76,4*

 78,0*

 N/A

         

Húsasmiðjan

 61,5

 61,7

 62,5

 

Rúmfatalagerinn

 69,5

 69,1

 N/A

         

 

 

 

 

 

 

 

 

 

         

Ritfangaverslanir

2021

2020

2019

 

Verslunarmiðstöðvar

2021

2020

2010

         

Penninn Eymundsson

 75,3

 73,2

 71,2

 

Smáralind

 67,8

 71,6

 N/A

         

A4

 72,8

 72,8

 70,5

 

Kringlan

 66,1

 70,7

 N/A

         
                             

 

Ánægjuvogin samanstendur af þremur spurningum:

 

  1. Á heildina litið, hversu ánægður(ur) eða óánægð(ur) ert þú með reynslu þína af [fyrirtæki]?
  2. Hugleiddu allar væntingar þínar til [fyrirtækis] annars vegar og reynslu þína af fyrirtækinu hins vegar. Að hve miklu leyti uppfyllir [fyrirtæki] væntingar þínar?
  3. Núna biðjum við þig um að ímynda þér hið fullkomna [fyrirtæki á viðkomandi markaði]. Hversu nálægt slíku fyrirtæki er [fyrirtæki]?

 

Ánægjuvogareinkunnin tekur gildi á kvarðanum 0-100, þar sem hærri einkunn gefur til kynna meiri ánægju. Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem finna má á http://stjornvisi.is/anaegjuvogin ásamt öðrum upplýsingum um Íslensku ánægjuvogina.

Íslenska ánægjuvogin er í eigu Stjórnvísi og sáu Zenter rannsóknir um framkvæmd á Íslensku ánægjuvoginni.

 


Nánari upplýsingar veitir
Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi, Sími:  8404990 , 
gunnhildur@stjornvisi.is
www.stjornvisi.is

Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Zenter rannsókna, Sími  859 9130, 
trausti@zenter.is
www.zenter.is

  

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?