Fyrsta starfsári lokið hjá faghópi þjónustu og markaðsstjórnunar

Fyrsta starfsári faghóps þjónustu og markaðsstjórnunar er nú lokið eftir endurvakningu hópsins, sem hafði legið í dvala um nokkurt skeið. Aðalfundur var haldinn 4. maí þar sem farið var yfir starf vetrarins og kosið í stjórn fyrir komandi starfsár.

Litlar breytingar urðu á stjórn milli ára. Silja lét af störfum í stjórn og Magnús Haukur kemur inn í hennar stað. Við þökkum Silju kærlega fyrir samstarfið í vetur og bjóðum Magnús hjartanlega velkominn til starfa.

Ný stjórn skipa:

  • María Ágústsdóttir - formaður
  • Hildur Ottesen - varaformaður
  • Heiðrún Grétarsdóttir
  • Ingibjörg Magnúsdóttir
  • Sædís Jónasdóttir
  • Unnur Líndal Karlsdóttir
  • Þórhallur Guðlaugsson
  • Hjördís María Ólafsdóttir
  • Magnús Haukur Ásgeirsson
  • Ásdís Gislason

 

Hugmyndir fyrir nýtt starfsár eru þegar komnar í vinnslu og hvetjum við félagsmenn til að hafa samband ef þeir hafa hugmyndir að efni eða vilja sjálfir miðla reynslu og verkefnum, agustsdottirmaria@gmail.com

Við viljum skapa vettvang fyrir opna, fjölbreytta og hagnýta umræðu um þjónustu og markaðsmál. Þar er pláss fyrir alls konar reynslu, hugmyndir og verkefni, bæði það sem hefur gengið vel og það sem fór öðruvísi en lagt var upp með, ásamt þeim lærdómi sem því fylgdi.

Við hlökkum til næsta starfsárs og áframhaldandi samtals um þjónustu, markaðsmál, upplifun, þróun og umbætur með öflugu fólki úr faginu.

Fleiri fréttir og pistlar

Öflugt starfsár hjá faghópi Umbóta og ferlastjórnunar

Aðalfundur faghóps Umbóta og ferlastjórnunar – yfirlit starfsársins 2025–2026

Faghópur Umbóta og ferlastjórnunar starfaði áfram af krafti á árinu með áherslu á miðlun þekkingar, reynslu og hagnýtra lausna á sviði umbóta, ferlastjórnunar og þjónustuhönnunar. Áhersla ársins var á stöðugar umbætur, skilvirkni í rekstri og mannmiðaða þróun þjónustu og skipulagsheilda.

Á árinu var boðið upp á fjölbreytta og vel sótta viðburði á vegum faghópsins þar sem sjónum var beint að nýjum nálgunum, reynslusögum og hagnýtum lausnum úr atvinnulífi og opinberri starfsemi.

  • Hvernig vinna LEAN og HSE saman?
    Fjallað var um hvernig Lean-hugmyndafræði og HSE (Health, Safety & Environment) geta stutt hvort annað til að skapa öruggari, skilvirkari og sjálfbærari vinnustaði. Áhersla var lögð á að samþætta umbótamenningu, öryggi starfsfólks og stöðugar umbætur í daglegum rekstri.
  • Dulda verksmiðjan – áskoranir og lausnir í að ná bættum árangri í starfseminni
    Farið var yfir hvernig greina má „dulda sóun“ í starfsemi fyrirtækja og stofnana. Lögð var áhersla á mikilvægi þess að kortleggja ferla, greina flöskuhálsa og bæta yfirsýn til að auka árangur og skilvirkni í rekstri.
  • Frá ferlum til fólks: Hönnun nýs spítala
    Viðburðurinn fjallaði um hvernig hönnun nýs spítala tekur mið af bæði verkferlum og þörfum fólks – starfsfólks, sjúklinga og annarra notenda. Áhersla var lögð á samspil þjónustuhönnunar, ferlahugsunar og mannmiðaðrar nálgunar við þróun framtíðarheilbrigðisþjónustu.
  • Frá pöntun til afhendingar: Uppbygging og þróun Wolt á Íslandi
    Fjallað var um hraðan vöxt og þróun rekstrarferla hjá Wolt á Íslandi með sérstakri áherslu á þjónustuflæði, stafræna upplifun viðskiptavina og mikilvægi skilvirkra afhendingarferla í ört vaxandi starfsemi.
  • Hver er ávinningurinn með Lean Six Sigma vottun fyrir þig og starfsemina?
    Kynntur var ávinningur Lean Six Sigma aðferðafræðinnar fyrir einstaklinga og skipulagsheildir, meðal annars hvernig markviss umbótaverkefni geta stuðlað að aukinni skilvirkni, minni sóun og sterkari umbótamenningu. Einnig var farið yfir mikilvægi færniuppbyggingar og vottunar í umbótastarfi.

Aðalfundur faghópsins var haldinn 6. maí 2026. Á fundinum var samþykkt að halda sömu stjórn og síðasta ár. Stjórn faghópsins helst því óbreytt yfir á næsta starfsár, en jafnframt er vilji til að bæta við nýjum aðilum í stjórn til að efla starf hópsins enn frekar.

Stjórn faghópsins var endurkjörin og skipa hana eftirtalin:

  • Hrafnhildur Birgisdóttir, formaður
  • Erla Jóna Einarsdóttir
  • Jónína Guðný Magnúsdóttir
  • Magnús Bergur Magnússon
  • Magnús Ívar Guðfinnsson
  • Súsanna Magnúsdóttir
  • Þóra Kristín Sigurðardóttir

Stjórn faghópsins þakkar fyrir góða þátttöku og áhuga á starfsemi hópsins á árinu og hlakkar til áframhaldandi samstarfs og fræðslu á komandi starfsári.

Indó mælist hæst fyrirtækja í Sjálfbærniásnum annað árið í röð

17 fyrirtæki hlutu viðurkenningu Sjálfbærniássins 2026
Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins fór fram í dag í Gestastofu Elliðaárstöðvar, þar sem 17 fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir árangur í sjálfbærni. Þetta er í þriðja sinn sem niðurstöður Sjálfbærniássins eru kynntar, en mælikvarðinn byggir á mati almennings á frammistöðu íslenskra fyrirtækja í sjálfbærni.

Sjálfbærni nær í dag langt út fyrir umhverfismál. Hún snertir stjórnarhætti, mannauð, upplýsingagjöf, jafnrétti, samfélagsþjónustu, ábyrga fjármálastjórnun, tækni og nýsköpun – og ekki síst traust og gagnsæi. Þess vegna taka fjölbreytt fyrirtæki þátt í verkefninu; úr ólíkum atvinnugreinum en með sameiginlega sýn á samfélagslega ábyrgð. Sjálfbærni er ekki lengur sérsvið – heldur heildræn nálgun á starfsemi og tengsl við
samfélagið.

Mælingin er svar við vaxandi kröfum viðskiptavina og annarra hagaðila um aukna ábyrgð fyrirtækja. Sjálfbærniásinn er samstarfsverkefni Prósents, Langbrókar og Stjórnvísi, með það að markmiði að efla meðvitund og hvetja til framfara í sjálfbærni. Að þessu sinni mælist indó efst allra fyrirtækja samkvæmt niðurstöðum almenningskönnunar.

Á viðurkenningarhátíðinni kynnti Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents, einnig
valdar niðurstöður úr íslensku kynslóðamælingunni 2026:
● 54% einstaklinga telja að áhersla fyrirtækja á sjálfbærni hafi mjög eða frekar mikil áhrif
á viðhorf þeirra.

54% segja sjálfbærni hafi áhrif


„Það er áhugavert að sjá skýrt afstöðu þjóðarinnar til sjálfbærnimála en 46% þjóðarinnar eru
líkleg til að sniðganga fyrirtæki ef þau uppfylla ekki kröfur þeirra um samfélagslega ábyrgð og
sjálfbærni. Með þessari mælingu erum við að varpa ljósi á það hvernig almenningur upplifir
áherslur fyrirtækja í sjálfbærnimálum. Sjálfbærniásinn gefur þeim tækifæri til að sjá hvernig þau
mælast í samanburði við önnur fyrirtæki og geta tekið upplýstar ákvarðanir um framhaldið.
Jafnframt viljum við styrkja stöðu neytenda sem áhrifaaðila í þessari vegferð,“ segir Trausti
Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents.“
Trausti Heiðar, framkvæmdastjóri Prósents.

Markmið Sjálfbærniássins:

● Veita hlutlausar og samanburðarhæfar upplýsingar um viðhorf almennings til þess
hvernig íslensk fyrirtæki standa sig í sjálfbærnimálum.
● Hvetja fyrirtæki til að leggja meiri áherslu á sjálfbærni og miðla aðgerðum sínum með
skýrari hætti.
● Auka vitund neytenda um mikilvægi sjálfbærni og hvernig þeir geta haft áhrif með eigin
kauphegðun.

Niðurstöður

Kvarðinn er á bilinu 0 til 100 stig þar sem 0-49 stig er talin slæm frammistaða, 50-59 stig
meðalgóð frammistaða, 60-69 stig er góð frammistaða og 70 stig og yfir er afbragðsgóð
frammistaða.

mynd 1. viðmið copy


Mynd 1. Viðmið Sjálfbærniássins

Sá markaður sem fékk heilt yfir flest stig var fyrirtæki á alþjóðamarkaði og sá markaður sem fékk heilt yfir fæst stig var sjávarútvegsfyrirtæki.

sjálfbærniásinn 2026 markaðir 3jpg

Mynd 2. Heildarmeðaltal markaða.



Það fyrirtæki sem hlaut flest stig allra mældra fyrirtækja er indó með 82 stig. Össur mældist
með næsthæstu einkunn, 81 stig og Íslensk erfðagreining sem var sigurvegari Sjálfbærniássins
2024 með þriðju hæstu einkunnina, 80 stig. Stigalægsta fyrirtækið Isavia hlaut 34 stig af 100 mögulegum.

sjálfbærniásinn 2026 öll fyrirtæki transparent

Mynd 3. Meðaltal fyrirtækja.

sjálfbærniásinn 2026 pr markaður transparent

Mynd 4. Meðaltal fyrirtækja eftir mörkuðum.

Framkvæmd og þátttakendur

Rannsóknin er framkvæmd af rannsóknarfyrirtækinu Prósenti. Framkvæmdatími var frá janúar til
apríl 2026 og var um að ræða netkannanir sem voru sendar á könnunarhóp Prósents.

Rannsóknarmódelið á bak við Sjálfbærniásinn

Módelið mælir þá 4 þætti sem The World Economic Forum telja að muni leiða heiminn á
sjálfbærari stað. Þessir 4 þættir eru; jörðin, fólkið, stjórnarhættir og velsæld. Spurningar eru úr
módeli sem þróað er og sannprófað af Qualtrics, byggt á 27.000 svörum frá 26 löndum og 16
mörkuðum.

Lykilmælikvarði
Ég er ánæg(ð/ður/t) með framlag [fyrirtækis] til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið.

Jörðin
[Fyrirtækið] leitast við að lágmarka sóun og losun við framleiðslu og afhendingu á
vöru/þjónustu.

Fólkið
[Fyrirtækið] hugar að velferð viðskiptavina sinna við þróun og afhendingu á vörum sínum
og þjónustu.

Stjórnarhættir
Stjórnendur [fyrirtækis] eru meðvitaðir um að þeir verði að grípa til aðgerða til að auka
sjálfbærni.

Velsæld
[Fyrirtækið] grípur til aðgerða til að vera samfélagslega ábyrgt fyrirtæki.

 

Faghópur um leiðtogafærni - tækifæri til að taka þátt í stjórn

Aðalfundur faghóps um leiðtogafærni fór fram í dag 6. Maí. Sjá kynningu í ítarefni hér

Á fundinum var farið yfir viðburði starfsársins sem voru 10 talsins. Stjórn faghópsins helst óbreytt yfir á næsta starfsár en við viljum gjarnan bæta við okkur einum aðila í stjórn. 

Stjórn faghópsins sér um hugmyndavinnu, skipulagningu og fundarstjórnun á viðburðum á vegum faghópsins. Það er einstaklega gefandi og skemmtilegt að vera í stjórn. Þannig er hægt að hafa áhrif á dagskrá faghópsins og fá tækifæri til að kynnast bæði öðrum stjórnarmeðlimum og flottum fyrirlesurum.
 
Þau sem vilja bjóða sig fram til stjórnar vinsamlegast sendið tölvupóst á formann faghópsins, thorhildur.thorkelsdottir@marel.com.


Það er einn viðburður eftir á starfsárinu en hann verður mánudaginn næsta. Hvetjum öll áhugasöm til að taka þátt, sjá hér

Stjórn faghópsins þakkar fyrir gott Stjórnvísi ár og hlakkar til þess næsta. 

Ný stjórn Stjórnvísi 2026-2027 kosin á aðalfundi í dag.

Á aðalfundi Stjórnvísi sem haldinn var í dag 5. maí 2026 á Kringlukránni var kosin stjórn félagsins.
Stjórn Stjórnvísi 2026-2027.
Anna Kristín Kristinsdóttir, Engineering Manager Lead, JBT Marel, formaður (2026-2027)
Héðinn Jónsson, Chief Product Officer hjá Helix health. (2025-2027)
Viktor Freyr Hjörleifsson, mannauðssérfræðingur hjá Vegagerðinni. (2025-2027)
Tinna Jóhannsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni ON (2025-2027)
Ingibjörg Loftsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsu og stjórnun, formaður faghóps um Heilsueflandi vinnuumhverfi (2023-2027)
Matthías Ásgeirsson, forstöðumaður fasteignasviðs hjá Bláa Lóninu. Stofnandi faghóps um aðstöðustjórnun kosinn í stjórn (2024-2027)
Snorri Páll Sigurðsson, deildarstjóri innkaupastýringar Alvotech, formaður faghóps um innkaupstýringu (2023-2027)
Ásdís Sigurðardóttir gæða- og öryggisstjóri Dranga og dótturfélaga (2026-2028)
Sveinn Kjarval Internal Event Manager JBT Marel(2026-2028)

Kosið var í fagráð félagsins.

Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga hf (2026-2028)
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar (2025-2027)
Haraldur Agnar Bjarnason, forstjóri Auðkennis (2025-2027)
Stefán Hrafn Hagalín, framkvæmdastjóri Þrettánellefu (2026-2028)
Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans (2026-2028)

Kosnir voru tveir skoðunarmenn til 2ja ára. 

Sigríður Soffía Sigurðardóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2025-2027)
Hjördís Ýr Ólafsdóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2025-2027

Dagskrá aðalfundar
Venjuleg aðalfundarstörf:

  1. Kjör fundarstjóra og ritara.
  2. Skýrsla formanns.
  3. Skýrsla framkvæmdastjóra.
  4. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
  5. Breytingar á lögum félagsins*
  6. Kjör formanns.
  7. Kjör stjórnarmanna til næstu ára
  8. Kjör fagráðs.
  9. Kjör skoðunarmanna reikninga.
  10. Önnur mál.

Ársreikningurinn verður aðgengilegur á vefsíðu félagsins strax að loknum aðalfundi. Þeir sem óska eftir útprentuðum ársreikningi er bent á að óska eftir því sérstaklega við framkvæmdastjóra félagsins gunnhildur@stjornvisi.is

Ný stjórn Stjórnvísi kosin á aðalfundi í dag 5.maí 2026.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?