Grein eftir Vilhjálm Kára Haraldsson "Hvað gefst vel í Stjónun" birtist í Viðskiptablaði Mbl. nýlega. Að mati margra er eftirsóknarvert að stjórna. Flestum finnst það krefjandi en umfram allt gefandi og stjórnendur eru alla ævi að móta sinn stjórnunarstíl. Í stjórnunarnámi mínu opnaðist mér fjársjóðskista full verkfæra til að nýta í stjórnunarstarfinu. Þegar síðan á hólminn var komið og stjórnunarstarfið tók við kom margt í ljós, það sem átti að gefast vel virkaði ekki alltaf. Ég hef fengið tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og þróun þjónustu- og mannauðsmála hjá sveitarfélaginu Garðabæ og langar að deila reynslu minni um hvað hefur gefist vel?
Margar stofnanir setja sér gildi til að starfa eftir en það er ekki nóg, gildin þurfa að vera skýr, endurspegla menningu vinnustaðarins og vera sýnileg. Flestum tekst vel upp við gerð gilda en oft er erfitt að fá starfsmenn til að lifa gildin. Hvort sem verið er að innleiða gildi eða huga að öðrum þáttum stjórnunar er mikilvægt að hlusta á raddir fólksins. Árangursrík leið til að hlusta á þessar raddir eru mælingar.
Mælingar eru öflugt tæki til að hafa áhrif á stjórnun. Mælt er með því að leggja fyrir kannanir eða hafa rýnihópa en stærsta áskorunin felst í hvað gera eigi við niðurstöðurnar?
Í fræðslumálum þarf að nýta vel fjármuni og skilgreina þarfir því margt er í boði. Að nýta þekkinguna sem býr í starfsmannahópnum er ein leið sem hægt er að fara því allir einstaklingar búa yfir hæfileikum og geta miðlað því sem þeir eru góðir í til hinna í hópnum. Miklum fjármunum er varið í námskeið en sjaldan er það krufið til mergjar hvort námskeiðið skilar einhverju til starfsmannahópsins. Mikilvægt er að hafa markmiðin skýr, kerfisbundnar mælingar fari fram og málum sé fylgt eftir til að tryggja árangursríka stjórnun.
Þrátt fyrir ógrynni verkfæra til að bæta stjórnun kemur ekkert í staðinn fyrir hið mannlega innsæi, því þegar öllu er á botninn hvolft þá er verkefni stjórnanda að stýra fólki sem hefur tilfinningar.
Vilhjálmur Kári Haraldsson
mannauðsstjóri Garðabæjar
Grein eftir Vilhjálm Kára Haraldsson:Hvað gefst vel í stjórnun?
Fleiri fréttir og pistlar
Aðalfundur faghóps um markþjálfun verður haldinn fimmtudaginn 16. apríl klukkan 13:30 til 13:45 eftir viðburð í húsakynnum HR.
Fundardagskrá:
- Uppgjör á starfsári - haldnir voru
- 9 stjórnarfundir
- 9 viðburðir
- Kosning til stjórnar - núverandi stjórn gaf kost á sér áfram.
- Lilja Gunnarsdóttir formaður
- Anna María Þorvaldsdóttir
- Anna H. Þorsteinsdóttir
- Áslaug Þ. Guðjónsdóttir
- Guðbjörg Jóhannsdóttir
- Kosning formanns
- Lilja Gunnarsdóttir formaður
- Önnur mál
- Engin önnur mál
Fundi var slitið kl 13:45
Í dag hélt ný stjórn Stjórnvísi undirbúningsfund fyrir komandi starfsár 2026-2027. Full mæting var á fundinn sem haldinn var í Marel: Ásdís Sigurðardóttir, Anna Kristín Kristinsdóttir,Gunnhildur Arnardóttir, Héðinn Jónsson, Ingibjörg Loftsdóttir, Matthías Ásgeirsson, Snorri Páll Sigurðsson, Sveinn Kjarval, Viktor Freyr Hjörleifsson, Tinna Jóhannsdóttir.
Á þessum fundi var m.a. tekið fyrir eftirfarandi:
Yfirferð áframtíðarsýn, stefnu, gildum, lögum og siðareglum. Anna Kristín Kristinsdóttir formaður Stjórnvísi fór yfir samskiptareglur sjtórnar. Við ætlum að eiga opin, heiðarleg og uppbyggileg samskipti sem stuðla að trausti, virðingu og góðu samstarfi. Einnig var farið yfir framtíðarsýn, stefnu, gildi, meginmarkmið lög og siðareglur. Stefnumótun verður unnin á þessu ári . Í þeirri vinnu verður boðið fulltrúa frá hverjum faghópi. Nýlega voru lög félagsins yfirfarin og síðast breytt á aðalfundi 2025. Farið var yfir þær breytingar ásamt því að siðareglur voru kynntar.
Umræður urðu um hvar stjórn vill eiga samskipti og var ákveðið að halda áfram að eiga samræður í tölvupóstum og á Teams.
Áætlun og lykilmælikvarðar. Áætlun félagsins stenst og eru tekjur á áætlun. Áætlun félagsins er uppfærð reglulega allt árið og er aðgengileg stjórnarfólki í Sharepoint. Stjórn var hvött af framkvæmdastjóra félagsins til að fara inn á Sharepoint reglulega.
Farið var yfir aðganga stjórnar að Sharepoint, Teams, Facebook og skráning stjórnar í faghópinn „stjórn Stjórnvísi“.
Þema ársins 2026-2027 ákveðið og útfærsla. Nýkjörin stjórn kom með fjölda hugmynda að þema ársins. Fyrir 40 árum, hvað var að gerast þá? Niðurstaðan var sú að stjórn sammæltist um að þema ársins yrði „Manneskjan í miðju umbreytinga – 40 ára og áfram“. Farið verður betur yfir útfærsluna í haust.
Varaformaður Stjórnvísi og ritari verða kosin á fyrsta stjórnarfundi í haust.
Fundartími og staðsetningu stjórnarfunda. Niðurstaðan var sú að stjórnarfundir verða haldnir fyrsta fimmtudag í mánuði kl.11:00-12:00. Stjórn mun skiptast á að bjóða heim, ef eitthvað kemur upp á er alltaf hægt að halda fundi í Innovation House og á Teams. Ef áhugi er að bjóða í mat eða skoðunarferð um vinnustað gestgjafa er það gert um leið og fundi lýkur kl.12:00.
Fundur hófst 12:30 og á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf:
Farið var yfir liðið starfsár, viðburði ársins og samvinnu með öðrum fahópum.
Næst kom að kosningu stjórnar.
Tveir stjórnarmeðlimir sóttust ekki eftir áframsetu, Auður Íris og Friðbjörn. Er þeim þakkað kærlega fyrir þeirra störf.
Nýr aðili sóttist eftir setu í stjórn, Andri Örn hjá Reykjanesbæ. Var hann sjálfkjörinn og boðinn velkominn í hópinn.
Að lokum voru önnur mál. Rætt var um fyrirkomulag stjórnar faghópsins, hugmyndir að frekari samvinnu og önnur mál.
Fundi slitið 13:00
Aðalfundur innkaupa-og vörustýringar fyrir starfsárið 2025-2026 var haldinn 6.maí síðastliðinn.
Starfsárið 2025-2026 var gert upp, farið yfir hugmyndir að viðburðum næsta árs og var kosið í nýja stjórn fyrir starfsárið 2026-2027 sem er eftirfarandi:
Eva Lillý Bjarndal Einarsdóttir N1
Faghópurinn þakkar öllum meðlimum fyrir þátttökuna starfsárinu sem var að ljúka og hlökkum til þess næsta! Viljum endilega hvetja þá sem hafa tillögur að erindum á dagskrá fyrir næsta vetur að vera í sambandi við formann stjórnar og varaformann.
Á aðalfundi hópsins, sem haldin var 7 maí, kom fram að faghópurinn hefur staðið fyrir alls 10 viðburðum, auk þess að benda á áhugaverðar fréttir af framtíðarmálum. Eins og gefur að skilja nær framtíðaráskoranir til alla þátta stjórnunar og reksturs, og því hefur verið þó nokkuð um samstarf við aðra faghópa félagsins og þó sérstaklega faghóps um gervigreind. Félagar í hópnum eru núna alls 561 og fer fjölgandi.
Helstu viðburðir á seinasta starfstíma voru eftirfarandi:
- Árlega samantekt Jeromy Clenn, forstjóri Milliennium Project, um áhugaverða viðburði liðin árs.
- Alþjóðleg stjórnun gervigreindar – valmöguleikar. Sameiginlegur fundur faghópa um gervigreind og framtíðarfræði.
- Gervigreindarstraumar – beint frá San Francisco. Sameiginlegur fundur faghópa um gervigreind og framtíðarfræði
- Er þjálfun gervigreindar brot á höfundarétti?. Sameiginlegur fundur faghópa um gervigreind og framtíðarfræði
- Framtíðar-samfélagsrými í þágu velsældar. Sameiginlegur fundur faghópa um Heilsueflandi vinnuumhverfi, Framtíðarfræði, Sjálfbæra þróun, Loftslagsmál og umhverfi.
- Síungir karlmenn – kynning á jólabókinni í ár og aðferð til að móta æskileg framtíðaráform.
- Alþjóðlegir viðburðir á árinu 2025. Útfrá hugarheimi framtíðarfræðinga. Samantekt á heimsviðburðum á árinu 2025.
- Nýársmálastofa faghópa framtíðarfræða og gervigreindar. Hvað er það sem koma skal? Sameiginlegur fundur faghópa um framtíðarfræði og gervigreind.
- Slæmar framtíðir í samstarfi við London Futurist
- World Futures Day 2026. Taktu þátt í samtali um framtíða mannkyns 1.mars. Sameiginlegur fundur faghópa um framtíðarfræði og gervigreind.
- Framtíðarsamfélag án aldursfordóma. Vinnustofan er samstarfssvefnefni Framtíðarseturs Íslands og þekkingarmiðstöðvarinnar Farsæl öldrun og er hluti af verkefninu Northern Futures Hub.
- Að rýna í græn umskipti og ólíkar framtíðir. Sameiginlegur fundur faghópa um framtíðarfræði, gervigreind, sjálfbæra þróun, loftslagsmál og umhverfi.
Stjórn faghópsins
Karl Friðriksson Framtíðarsetur Íslands, formaður.
Anna Sigurborg Ólafsdóttir Framtíðarnefnd Alþingis.
Dögg Sigmarsdóttir Framtíðarsetur Íslands.
Funi Magnússon Össur.
Guðjón Þór Erlendsson Skipulagsstofnun.
Gunnar Haugen CCP hf.
Ingibjörg Smáradóttir Náttúrufræðistofnun
Kolfinna Tómasdóttir Rannís
Sigurður B. Pálsson BYKO.
Sævar Kristinsson KPMG.
Þór Garðar Þórarinsson Háskóli Íslands