Þú bókar þig með því að smella hér. FRÍR AÐGANGUR - ALLIR VELKOMNIR. Bæði á Grand Hótel og í beinu streymi. Haustráðstefna Stjórnvísi hefur undanfarin ár farið fram á netinu við góðar viðtökur. Við höldum því áfram og sendum dagskrána út í beinu streymi og bjóðum alla þá sem áhuga hafa velkomna á Grand hótel meðan húsrúm leyfir.
Linkur á streymið er hér.
Fyrir hvern: Fyrir alla Stjórnvísifélaga. Mikilvægt er að velja við skráningu hvort þú mætir á staðinn eða fylgist með í streymi. Boðið upp á glæsilegt morgunverðarhlaðborð frá kl.08:30 og einnig í hléi.
Þema ráðstefnunnar: "GRÓSKA - Vöxtur, þroski, árangur"
Ráðstefnustjóri: Salóme Guðmundsdóttir, stjórnarmaður hjá Eyri Ventures og Viðskiptaráði Íslands.
Pallborðsstjórnandi: Haraldur Agnar Bjarnason, framkvæmdastjóri Auðkennis.
Dagskrá:
09:00 Formaður stjórnar Stjórnvísi Sigríður Harðardóttir, sviðsstjóri mannauðs- og gæðasviðs Strætó setur ráðstefnuna.
09:10 FYRIRLESTUR: Gísli Herjólfsson, forstjóri Controlant.
09:30 SPJALL: Haraldur Bjarnason ræðir við Andra Þór Guðmundsson forstjóra Ölgerðarinnar og Hrund Rudolfsdóttur forstjóra Veritas
09:55 FYRIRLESTUR: Berglind Ósk Bergsdóttir, notendamiðaður textasmiður. - Hefurðu upplifað loddaralíðan? (Imposter syndrome)
10:15 FYRIRLESTUR: Matti Ósvald Stefánsson, heildrænn heilsufræðingur og atvinnumarkþjálfi. - Fjórar stoðir persónulegs vaxtar/grósku.
10:35 FYRIRLESTUR: Þórhildur Helgadóttir, forstjóri Póstsins.
Sigríður Harðardóttir sviðsstjóri mannauðs-og gæðasviðs Strætó, formaður stjórnar Stjórnvísi setur ráðstefnuna kl. 09:00. Því næst munu verða flutt erindi og pallborðsumræður.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Aðgangur er frír.