Heildstætt nám í Lean í fyrsta sinn á Íslandi

Núna eftir áramót er í fyrsta sinn boðið upp á heildstætt nám í aðferðum Lean (straumlínustjórnunar) á vegum háskólanna. Þetta er mikill áfangi fyrir okkur Lean áhugafólk en hingað til hefur umfjöllun um Lean í háskólunum verið felld inn í námskeið sem hluti af öðrum námslínum. Haldinn verður kynningarfundur um námið þann 10. janúar kl. 09:00. Hér fyrir neðan er kynning frá HR á náminu.

ÞRÓUN VIÐSKIPTAFERLA - STÖÐUGAR FRAMFARIR

Opni háskólinn í HR býður nú í vor í fyrsta sinn upp á heildstætt nám í aðferðafræðum straumlínustjórnunar, stöðugra umbóta og þróun viðskiptaferla.
Kynningarfundur fyrir námið verður haldinn 10. janúar nk. í Opna háskólanum í HR kl. 9.00. Skráning og nánari upplýsingar um kynningarfundinn er að finna á heimasíðu HR. Boðið verður upp á léttan morgunverð.

NÁMSKEIÐSLÝSING
Markmið námsins er að þátttakendur fái innsýn í hvernig vinna megi að stöðugum umbótum og þróun viðskiptaferla. Með viðskiptaferlum er átt við þau ferli innan fyrirtækisins sem notuð eru til koma virði (vöru eða þjónustu) til viðskiptavina fyrirtækisins.

Skoðaðar verða helstu aðferðir og tól sem notuð eru við þróun viðskiptaferla þar sem sérstök áhersla verður lögð á straumlínustjórnun (e. Lean management) og stöðugar umbætur almennt (e. Continuous improvement). Farið verður yfir sögu og megin inntak þessara aðferða og sérstaklega skoðað hvernig þessar aðferðir eru innleiddar og hvað þurfi til að ná árangri.
Markmið námskeiðsins er jafnframt að sýna fram á hvernig nýsköpun í viðskiptaferlum og stjórnunarkerfi fyrirtækisins er grundvöllur þess að fyrirtækið á árangursríkan hátt geti stundað nýsköpun fyrir viðskiptavini sína.
Nokkrar af þeim aðferðum sem farið verður yfir eru;
• Continuous improvement.
• Visual management.
• Value stream mapping.
• Pull.
• PDCA.
• A3.
• Policy deployment.•
• System thinking.
• Change management o.fl.

LEIÐBEINENDUR
Pétur Arason, M.Sc. í rekstrarverkfræði frá háskólanum í Álaborg 2002. Pétur hefur sl. átta ár starfað hjá Marel sem rekstrarverkræðingur og global manufacturing strategy manager. Sérsvið hans eru straumlínustjórnun (e. Lean management) og aðferðir tengdar ferlastjórnun, umbótum á ferlum og stefnumótun og innleiðing stefnu.

Pétur Orri Sæmundsen, B.Sc í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. Pétur starfar sem framkvæmdarstjóri Spretts sem sérhæfa sig í ráðgjöf í stjórnun og hugbúnaðarþróun.

Þórunn María Óðinsdóttir, MSc. í stjórnun frá Bifröst. Sjálfstætt starfandi stjórnunarráðgjafi frá 2007 og hefur einna helst verið að innleiða hugmynda- og aðferðafræði lean management.

Viktoría Jensdóttir, M.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Viktoría starfar sem deildarstjóri umbóta og öryggis hjá Össur.

Björgvin Víkingsson, M.Sc. í supply chain management frá tækniháskólanum í Zurich. Björgvin starfar sem strategic purchasing manager hjá Marel.

KENNSLUFYRIRKOMULAG
Námið er samtals 64 klst. og samanstendur af fjórum tveggja daga lotum. Námið hefst 31. janúar 2013 og lýkur 19. apríl 2013. Hver lota er kennd á fimmtudegi og föstudegi með u.þ.b. mánaðarlegu millibili og fer kennsla fram á milli kl. 9.00-17.00 alla dagana.

Námskeiðið er byggt upp á fyrirlestrum, hópverkefnum, opnum umræðum, tilraunum/ heimaverkefnum, myndefni og heimsókn í fyrirtæki sem unnið hefur að innleiðingu þessara aðferða í fjölda ára.
Verð: 490.000 kr.

Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni : http://www.opnihaskolinn.is/fagmennt/eventnr/565

Fleiri fréttir og pistlar

Einn heimur: Stafræn bylting og tilkoma alþjóðlegrar vitundar

Myndband til fróðleiks og skemmtunar.

Í þessu myndbandi ræðir Gerd leonhard við framtíðarfræðingnum William (Bill) Halal, sem er 93 ára, en „ungur“, um nýju bókina hans: One World: Digital Revolution and the Rise of Global Consciousness.

https://vimeo.com/1232593588?share=copy&fl=sv&fe=ci 

Í dag þróum við tækni sem getur svarað nánast hverju sem er. En hver ákveður hvaða svör skipta máli – og hvers konar framtíð þau þjóna? Þér félagar taka fyrir brýnan vanda tengdan gervigreind, gerum greinarmun á greind og meðvitund – sem er lykilatriði – og skoðum hvers vegna gnægð þekkingar hjá AI gerir mannlega dómgreind, ímyndunarafl, siðfræði og tilgang mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Ef við höldum áfram að fjárfesta í sífellt gáfaðri AGI en vanrækjum um leið að efla visku mannfólksins, stefnum við beint í dýrkeyptan ósigur.

Sérstæðan — framtíð án líkama (e.singularity)

Hvað verður um vitundina þegar líkaminn hverfur? Getum við upplifað heiminn án snertingar, sársauka eða nautnar?

Viðfangsefni verksins er mörgum framtíðarfræðingum umhugsunarefni, og því vildum við kynna það sérstaklega hér að þessum vetvangi.

Sérstæðan eftir Rósu Ómarsdóttur verður sýnd í Tjarnarbíó 11. nóvember á Reykjavík Dance Festival og Iceland Moves. Verkið byggir á hugleiðingum um framtíð án líkama, eftir að tæknileg sérstæða (e. singularity) hefur átt sér stað.

Vera úr framtíðinni segir frá því hvernig hún gufaði upp og sameinaðist gervigreind í skýjunum. Hún hverfur svo sjálf og sviðsmyndin tekur við: vatn, reykur, ljós og myndvörpun flytja verkið áfram ásamt texta, tónlist og söng.

Þarna er tonn af vatni, fjórar tegundir af rigningu, regnbogi og endalaus sápufroða. Verkið er eins konar óður til líkamans og skynjunarinnar — og vangaveltur um hvað tapast ef við skiljum líkamann eftir.

Inga Huld Hákonardóttir kemur frá Belgíu til að flytja verkið. Allur hljóðheimurinn er unninn úr söng hennar og settur saman af Sveinbirni Thorarensen, aka Hermigervill.

Sérstæðan var frumsýnd fyrir ári og hlaut meðal annars fjórar Grímutilnefningar.

Félagsfólk Stjórnvísi fær 20% afslátt af miðum með kóðanum Gervigreind, sem er sleginn inn við miðakaup á Tix.

Miðar og nánari upplýsingar

Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum

Stjórnvísi og Kjarkur ráðgjöf stóðu fyrir opnum morgunverðarfundi föstudaginn 16. október. Það voru stjórnendaráðgjafarnir Berglind Björk Hreinsdóttir og Harpa Þrastardóttir sem stigu á stokk og héldu fyrirlestra dagsins. Yfirskriftin var ,,Þegar markaðurinn kólnar – mennska, fagleg vinnubrögð og ferlar".

Í sífellt flóknari og hraðari heimi er mikilvægt að efla vinnuvernd og bæta vinnustaðamenningu. Fjallað var um hvernig stjórnendur geta tekist á við samdráttartíma af yfirvegun með skilvirkum ferlum og skýrri greiningu þar sem markviss samskipti og og umhyggja fyrir fólki eru rauði þráðurinn.

Stjórnvísi 40 ára - vertu með í vetur!

Nú býðst nýjum félögum 50% afsláttur af félagsgjöldum.
Vertu með í vetur!

Alþjóðleg Delphi rannsókn. AGI og samfélagsleg samheldni

Lokað hefur verið fyrir þátttöku í þessari rannsókn. Þökkum áhugann og þátttökuna. Níðurstöður verða kynntar á þessum vettvangi þegar þar að kemur. Frekari upplýsingar veitir Karl Friðriksson, karlf@framtidarsetur.is

Fyrir hönd The Millennium Project og Framtíðarseturs Íslands er þér boðið að taka þátt í alþjóðlegri rannsóknar – sem byggist á „Real-Time Delphi“-spurningakönnun – um efnið:

Almenn gervigreind (AGI) og samfélagsleg samheldni árið 2035

Í rannsókninni verður kannað hvernig auka megi líkurnar á því að almenn gervigreind (AGI) hvetji til samfélagslega samheldni fremur en að draga úr henni fyrir árið 2035. 

You will receive the results of this study. You do not have to fill out the whole questionnaire on one visit. You are encouraged to come back to read other panelists’ comments, and edit your own at any time until the deadline of December 15, 2026. Register for the survey using a social account or email address. If you choose email, you will receive an access code. When returning, please make sure to log in with the exact same account you used to register. The demographic questions are only asked once; you will not see them again when you return.

All comments are anonymous; no attributions will be made. However, if you want a specific comment attributed to you in the final report, include the tag [please attribute] within your text. Do not type your name in the comment box.

The results will be used to create alternative scenarios that will be given to The Millennium Project Node Chairs and Co-chairs around the world as inputs to the national workshops on these issues. The strategies recommended by the workshops to address future AGI impacts on social coherence will be the subject of additional RTDelphi studies to assess their effectiveness. All phases of this research will be combined into a report that will be sent to you and distributed to political, business, academic, NGO, and UN leadership around the world.

This study assumes that a more coherent world has enough common narrative, that people feel they belong to the same humanity. This does not require cohesion, uniformity, and sameness; the elements of an opera are quite different, but make a coherent performance. Human interactions and perceptions of reality are affected by current AI and likely to be far more so by AGI by 2035. 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?