Indó mælist hæst fyrirtækja í Sjálfbærniásnum annað árið í röð

17 fyrirtæki hlutu viðurkenningu Sjálfbærniássins 2026
Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins fór fram í dag í Gestastofu Elliðaárstöðvar, þar sem 17 fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir árangur í sjálfbærni. Þetta er í þriðja sinn sem niðurstöður Sjálfbærniássins eru kynntar, en mælikvarðinn byggir á mati almennings á frammistöðu íslenskra fyrirtækja í sjálfbærni.

Sjálfbærni nær í dag langt út fyrir umhverfismál. Hún snertir stjórnarhætti, mannauð, upplýsingagjöf, jafnrétti, samfélagsþjónustu, ábyrga fjármálastjórnun, tækni og nýsköpun – og ekki síst traust og gagnsæi. Þess vegna taka fjölbreytt fyrirtæki þátt í verkefninu; úr ólíkum atvinnugreinum en með sameiginlega sýn á samfélagslega ábyrgð. Sjálfbærni er ekki lengur sérsvið – heldur heildræn nálgun á starfsemi og tengsl við
samfélagið.

Mælingin er svar við vaxandi kröfum viðskiptavina og annarra hagaðila um aukna ábyrgð fyrirtækja. Sjálfbærniásinn er samstarfsverkefni Prósents, Langbrókar og Stjórnvísi, með það að markmiði að efla meðvitund og hvetja til framfara í sjálfbærni. Að þessu sinni mælist indó efst allra fyrirtækja samkvæmt niðurstöðum almenningskönnunar.

Á viðurkenningarhátíðinni kynnti Trausti Heiðar Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents, einnig
valdar niðurstöður úr íslensku kynslóðamælingunni 2026:
● 54% einstaklinga telja að áhersla fyrirtækja á sjálfbærni hafi mjög eða frekar mikil áhrif
á viðhorf þeirra.

54% segja sjálfbærni hafi áhrif


„Það er áhugavert að sjá skýrt afstöðu þjóðarinnar til sjálfbærnimála en 46% þjóðarinnar eru
líkleg til að sniðganga fyrirtæki ef þau uppfylla ekki kröfur þeirra um samfélagslega ábyrgð og
sjálfbærni. Með þessari mælingu erum við að varpa ljósi á það hvernig almenningur upplifir
áherslur fyrirtækja í sjálfbærnimálum. Sjálfbærniásinn gefur þeim tækifæri til að sjá hvernig þau
mælast í samanburði við önnur fyrirtæki og geta tekið upplýstar ákvarðanir um framhaldið.
Jafnframt viljum við styrkja stöðu neytenda sem áhrifaaðila í þessari vegferð,“ segir Trausti
Haraldsson, framkvæmdastjóri Prósents.“
— Trausti Heiðar, framkvæmdastjóri Prósents.

Markmið Sjálfbærniássins:

● Veita hlutlausar og samanburðarhæfar upplýsingar um viðhorf almennings til þess
hvernig íslensk fyrirtæki standa sig í sjálfbærnimálum.
● Hvetja fyrirtæki til að leggja meiri áherslu á sjálfbærni og miðla aðgerðum sínum með
skýrari hætti.
● Auka vitund neytenda um mikilvægi sjálfbærni og hvernig þeir geta haft áhrif með eigin
kauphegðun.

Niðurstöður

Kvarðinn er á bilinu 0 til 100 stig þar sem 0-49 stig er talin slæm frammistaða, 50-59 stig
meðalgóð frammistaða, 60-69 stig er góð frammistaða og 70 stig og yfir er afbragðsgóð
frammistaða.

mynd 1. viðmið copy


Mynd 1. Viðmið Sjálfbærniássins

Sá markaður sem fékk heilt yfir flest stig var fyrirtæki á alþjóðamarkaði og sá markaður sem fékk heilt yfir fæst stig var sjávarútvegsfyrirtæki.

sjálfbærniásinn 2026 markaðir 3jpg

Mynd 2. Heildarmeðaltal markaða.



Það fyrirtæki sem hlaut flest stig allra mældra fyrirtækja er indó með 82 stig. Össur mældist
með næsthæstu einkunn, 81 stig og Íslensk erfðagreining sem var sigurvegari Sjálfbærniássins
2024 með þriðju hæstu einkunnina, 80 stig. Stigalægsta fyrirtækið Isavia hlaut 34 stig af 100 mögulegum.

sjálfbærniásinn 2026 öll fyrirtæki transparent

Mynd 3. Meðaltal fyrirtækja.

sjálfbærniásinn 2026 pr markaður transparent

Mynd 4. Meðaltal fyrirtækja eftir mörkuðum.

Framkvæmd og þátttakendur

Rannsóknin er framkvæmd af rannsóknarfyrirtækinu Prósenti. Framkvæmdatími var frá janúar til
apríl 2026 og var um að ræða netkannanir sem voru sendar á könnunarhóp Prósents.

Rannsóknarmódelið á bak við Sjálfbærniásinn

Módelið mælir þá 4 þætti sem The World Economic Forum telja að muni leiða heiminn á
sjálfbærari stað. Þessir 4 þættir eru; jörðin, fólkið, stjórnarhættir og velsæld. Spurningar eru úr
módeli sem þróað er og sannprófað af Qualtrics, byggt á 27.000 svörum frá 26 löndum og 16
mörkuðum.

Lykilmælikvarði
Ég er ánæg(ð/ður/t) með framlag [fyrirtækis] til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið.

Jörðin
[Fyrirtækið] leitast við að lágmarka sóun og losun við framleiðslu og afhendingu á
vöru/þjónustu.

Fólkið
[Fyrirtækið] hugar að velferð viðskiptavina sinna við þróun og afhendingu á vörum sínum
og þjónustu.

Stjórnarhættir
Stjórnendur [fyrirtækis] eru meðvitaðir um að þeir verði að grípa til aðgerða til að auka
sjálfbærni.

Velsæld
[Fyrirtækið] grípur til aðgerða til að vera samfélagslega ábyrgt fyrirtæki.

 

Um viðburðinn

Sjálfbærniásinn 2026 viðurkenningarhátíð, 6. maí í Elliðaárstöð.

Sjálfbærniásinn er samræmdur mælikvarði sem mælir viðhorf íslenskra neytenda til frammistöðu íslenskra fyrirtækja í sjálfbærnimálum og gerir samanburð á stöðu og þróun. Þessi mæling er svar við aukinni kröfu frá viðskiptavinum og hagaðilum á fyrirtæki að leggja áherslu á sjálfbærni. Að verkefninu standa Prósent, Langbrók og Stjórnvísi

Viðurkenningarhátíð í beinu streymi miðvikudaginn 6. maí 2026, kl. 9.15-10.00

Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins þar sem fjöldi fyrirtækja fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni verður haldin miðvikudaginn 6. maí klukkan 9.15 til 10.00 í Gestastofu, Elliðaárstöð.
Hægt verður að fylgjast með dagskrá í beinu streymi á visi.is og mbl.is.

Dagskrá

9.15 – 9.45 – Trausti Haraldsson framkvæmdastjóri Prósents kynnir rannsóknarmódelið og veitir þeim fyrirtækjum viðurkenningu sem hæst eru á sínum markaði.
9.45 – 10.00 – Soffía S. Sigurgeirsdóttir ,
Langbrók stýrir pallborðsumræðum

Sjálfbærniásinn er mikilvægt skref í átt að aukinni sjálfbærni í íslensku samfélagi og hvetur fyrirtæki til að standa sig enn betur í þessum mikilvægu málum. Nánar um Sjálfbærniásinn

Niðurstöður verður hægt að eignast að viðurkenningarhátíð lokinni

Sjálfbærniásinn inniheldur 5 spurningar ásamt aukaspurningu um áhrif sjálfbærni sem eru greindar niður á bakgrunnsbreytur. Niðurstöður eru settar fram í rafrænu mælaborði og eru mæld fyrirtæki pr markað kynnt saman. Prósent sér um sölu og kynningu á niðurstöðum.

Fleiri fréttir og pistlar

Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum

Stjórnvísi og Kjarkur ráðgjöf stóðu fyrir opnum morgunverðarfundi föstudaginn 16. október. Það voru stjórnendaráðgjafarnir Berglind Björk Hreinsdóttir og Harpa Þrastardóttir sem stigu á stokk og héldu fyrirlestra dagsins. Yfirskriftin var ,,Þegar markaðurinn kólnar – mennska, fagleg vinnubrögð og ferlar".

Í sífellt flóknari og hraðari heimi er mikilvægt að efla vinnuvernd og bæta vinnustaðamenningu. Fjallað var um hvernig stjórnendur geta tekist á við samdráttartíma af yfirvegun með skilvirkum ferlum og skýrri greiningu þar sem markviss samskipti og og umhyggja fyrir fólki eru rauði þráðurinn.

Stjórnvísi 40 ára - vertu með í vetur!

Nú býðst nýjum félögum 50% afsláttur af félagsgjöldum.
Vertu með í vetur!

Alþjóðleg Delphi rannsókn. AGI og samfélagsleg samheldni

Fyrir hönd The Millennium Project og Framtíðarseturs Íslands er þér boðið að taka þátt í alþjóðlegri rannsóknar – sem byggist á „Real-Time Delphi“-spurningakönnun – um efnið:

Almenn gervigreind (AGI) og samfélagsleg samheldni árið 2035

Í rannsókninni verður kannað hvernig auka megi líkurnar á því að almenn gervigreind (AGI) hvetji til samfélagslega samheldni fremur en að draga úr henni fyrir árið 2035.Þátttakendur fá niðurstöður rannsóknarinnar senda að henni lokinni. Takið þátt hér er vefslóðinn að spurningarvagninum, auk viðbótar texta um rannsóknina: accessing the questionnaire here.

You will receive the results of this study. You do not have to fill out the whole questionnaire on one visit. You are encouraged to come back to read other panelists’ comments, and edit your own at any time until the deadline of December 15, 2026. Register for the survey using a social account or email address. If you choose email, you will receive an access code. When returning, please make sure to log in with the exact same account you used to register. The demographic questions are only asked once; you will not see them again when you return.

All comments are anonymous; no attributions will be made. However, if you want a specific comment attributed to you in the final report, include the tag [please attribute] within your text. Do not type your name in the comment box.

The results will be used to create alternative scenarios that will be given to The Millennium Project Node Chairs and Co-chairs around the world as inputs to the national workshops on these issues. The strategies recommended by the workshops to address future AGI impacts on social coherence will be the subject of additional RTDelphi studies to assess their effectiveness. All phases of this research will be combined into a report that will be sent to you and distributed to political, business, academic, NGO, and UN leadership around the world.

This study assumes that a more coherent world has enough common narrative, that people feel they belong to the same humanity. This does not require cohesion, uniformity, and sameness; the elements of an opera are quite different, but make a coherent performance. Human interactions and perceptions of reality are affected by current AI and likely to be far more so by AGI by 2035. You are welcome to challenge these assumptions in the comment sections of the questionnaire. If you have any difficulties with this Real-Time Delphi questionnaire, contact the 4CF HalnyX team at support@halnyx.com.

Kick off fundur Stjórnvísi var haldinn í Hvalasafninu fimmtudaginn 27.ágúst 2026.

Hér má sjá myndir af fundinum

Í dag hittust stjórnir faghópa Stjórnvísi í Hvalasafninu þar sem nýju 40 ára starfafmælisári var startað. Þema starfsársins er "Manneskjan í miðju umbreytinga - 40 ára og áfram". Farið var yfir ýmis atriði með stjórnendum faghópa starfið í vetur og gafst góður tími til að sameinast um viðburði, skerpt var á stefnu og gildum félagsins og boðið var upp á morgunkaffi í einstaklega fallegu og notalegu umhverfi. .

Krafturinn í stjórnum faghópanna er mikill eins  og sjá má í meðfylgjandi excelskjali þar sem sjá má drög að fjölda viðburða. 

Átján fyrirmyndarfyrirtækjum í stjórnarháttum veitt viðurkenning

Hlekkur á myndir. 18 íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026 við hátíðlega athöfn á Nauthóli í dag. Viðurkenningarnar eru veittar af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland.

Fyrirtækin sem hlutu viðurkenningu í ár eru: Alvotech, Arion banki, Bera, Drangar, Eik fasteignafélag, Heimar, Icelandair Group, Íslandssjóðir, Kvika banki, Orkan IS, Reiknistofa bankanna, Reitir fasteignafélag, Sjóvá, Skagi, Stefnir, Styrkás, VÍS og Vörður tryggingar.

Þrjú fyrirtækjanna hljóta nafnbótina í fyrsta sinn, en það eru Bera, Drangar og Styrkás.

Markmið verkefnisins er að efla traust í viðskiptalífinu og styrkja innviði fyrirtækja með því að hvetja til skýrra vald- og ábyrgðarskipta meðal stjórna og stjórnenda. Fylgni við góða stjórnarhætti stuðlar að faglegri ákvarðanatöku, ábyrgari rekstri og bættri samskiptamenningu innan fyrirtækja. Þannig verður stjórnarstarf bæði skilvirkara og traustara í augum almennings. Liður í því er meðal annars útgáfa, og regluleg uppfærsla, leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja sem sjá má á www.leidbeiningar.is.

Fyrirmyndarfyrirtækin 18 eru afar fjölbreytt en þar má nefna fjármála- og tryggingastarfsemi, fasteignafélög, lyfjaframleiðslu, ferðaþjónustu, upplýsingatækni, eignaumsýslu, iðnað og eldsneytis- og orkusölu. Fyrirtækin þykja öll vel að nafnbótinni komin enda eru starfshættir stjórna þeirra vel skipulagðir og framkvæmd stjórnarstarfa til fyrirmyndar.

Jón Hreiðar Sigurðsson, verkefnisstjóri Fyrirmyndarfyrirtækja, flutti inngangsorð um verkefniðog Marta Guðrún Blöndal, lögmaður og nefndarmaður í nefnd um stjórnarhætti fyrirtækja flutti erindi. Viðurkenningarnar voru afhentar af Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Fundarstjóri var Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?