Johan Rönning - Fyrirtæki ársins 2015 - Lykillinn að þessum einstaka árangri

Johan Rönning - Fyrirtæki ársins 2015 tók vel á móti rúmlega 30 stjórnvísisfélögum að Klettagörðum 25 með góðum og innhaldsríkum fyrirlestrum og glæsilegum veitingum, í morgun.
Bogi Þór Siguroddsson, stjórnarformaður, fór yfir söguna frá því að Johan Rönning var stofnað árið 1933 og spannar því reksturinn yfir rúmlega 80 ára tímabil.
Eigendaskipti urðu árið 2003 og með nýjum eigendum var ráðist í umfangsmikla stefnumótunarvinnu með tilheyrandi áherslubreytingum og sameiningum við systurfélög. Í dag starfa rúmlega 70 starfsmenn en fyrirtækið rekur starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Norðurlandi og Austurlandi.
Johan Rönning er Fyrirtæki ársins 2015 í könnun VR og er þetta fjórði sigur Rönning á jafnmörgum árum. Einnig fékk það titilinn Fyrirmyndarfyrirtæki VR fyrir árið 2015 en fyrirtækið hefur verið í þeim hópi, fimm ár í röð. Þá hlaut Johan Rönning jafnlaunavottun VR árið 2013, eitt af fyrstu fyrirtækjum landsins til að hljóta slíka viðurkenningu.
Forstjóri fyrirtækisins, Haraldur Líndal Pétursson fór yfir það hvernig tekist hefði verið á við ýmsar áskoranir í rekstrinum s.s. starfsmannamálin en starfsemi fyrirtækisins er á tíu stöðum. Mikil samvinna er milli starfsmanna og stjórnenda og mikið lagt upp úr hlutverki einstaklingsins sem hluta af heildinni. Leitast er við að leysa úr öllum málum strax hvort sem það lítur að starfsmönnum eða viðskiptavinum. Vel er hlustað á ábendingar þeirra og má sem dæmi nefna að nýlega var opnunartíma breytt í 7:30. Hefur það gefist mjög vel.
Það er mikilvægt að hafa gaman í vinnunni og því skipta persónulegu hlutirnir mjög miklu máli og að vel sé tekið á þeim og unnið með þá.
Eftir að fundinum lauk gáfu eigendur og stjórnendur sér góðan tíma til að ræða við fundargesti sem vildu ræða málin nánar og njóta góðra veitinga í leiðinni.

Fleiri fréttir og pistlar

Aðalfundur faghóps um gæðastjórnun og ISO staðla - 2026

Aðalfundur faghópsins Gæðastjórnun og ISO staðlar, fyrir árið 2026, verður haldinn 22. maí kl. 12.00-13:00.
Staðsetning: VOX Brasseria, Suðurlandsbraut 2. 
Þeir sem hafa áhuga á að mæta á fundinn vinsamlegast sendi tölvupóst á formann faghópsins á netfangið sigarnar@live.com

Dagskrá aðalfundar faghóps Stjórnvísi: Gæðastjórnun og ISO staðlar:

  • Framsaga formans - um starf ársins
  • Umræður um starf ársins
  • Kosning til stjórnar / upplýsingar um nýja stjórn fyrir tímabilið 2026-2027
  • Ákvörðun um fyrsta fund nýrrar stjórnar
  • Önnur mál

---

F.h. faghópsins
Sigurður Arnar Ólafsson

Áhugaverð ráðstefna, Human and organisational performance - HOP

Stjórn Öryggishóps vekur áhuga á áhugaveðri ráðstefnu sem Öryggisráð Samorku stendur fyrir, miðvikudaginn 15. apríl 2026, kl. 9:00–12:00, á Reykjavík Natura.

Ráðstefnan fjallar um hvernig hugmyndafræði Human and Organisational Performance (HOP) styður við öryggi og áreiðanleika í flóknum og áhættusömum rekstri. Umfjöllun verður meðal annars um raunverulega vinnu, samspil kerfa og aðstæðna, markvissan lærdóm og hvernig byggja má upp varnarlög sem draga úr líkum á alvarlegum atvikum.

Fyrirlesarar eru:

Kristian Gould, sérfræðingur í mannlegum þáttum og skipulagsöryggi hjá Equinor.
Guðmundur Ben Þorsteinsson, leiðtogi Human and Organisational Performance (HOP) hjá Tesla.

Hér er hægt að skrá sig og fá nánari upplýsingar:
https://samorka.is/utgafa-og-midlun/vidburdir/radstefna-um-human-and-organisational-performance-hop/

Áhugavert námskeið: Hefur þú lent í erfiðleikum með að koma hugmynd í framkvæmd?

Stjórn faghóps um leiðtogafærni vekur athygli félaga á þessu áhugaverða námskeiði sem haldið verður í HR þann 6. mars nk.  og ber yfirskriftina "Að lyfta upp breytingum".

Hefur þú lent í erfiðleikum með að koma hugmynd í framkvæmd? Þetta er vandamál sem við öll glímum við, óháð því hvaða faghóp við tilheyrum. Góðar hugmyndir stranda ekki á því að þær séu slæmar — heldur á því að við vitum ekki hvernig á að ná fólki með okkur í vegferðina.

Námskeiðið Að lyfta upp breytingum snýst einmitt um þetta: að búa þig undir að verða sá einstaklingur sem fær hlutina til að gerast.

Á námskeiðinu færðu:

  • Skilning á mannlegri hegðun — grunninn að öllum árangri í breytingum
  • Hagnýtar leiðir til að verða leiðtogi breytinga, með áherslu á tengsl, samskipti, greiningu, sögugerð og þolinmæði
  • Kynni af þekktum aðferðum við að leiða farsælar breytingar, með m.a. ADKAR og SWITCH
  • Verkfæri til að lyfta upp vinnustaðnum þínum, með viljandi stjórnun og menningaruppbyggingu

Um kennarann

Ágúst Kristján Steinarrsson er stjórnunarráðgjafi sem hefur helgað sig breytingum og umbótum. Hann starfar daglega við að lyfta upp og efla vinnustaði landsins og hefur þróað eigin hugmyndafræði sem mótast hefur af endurteknum sigrum og áföllum fjölmargra umbótavegferða. Námskeiðið er í stöðugri þróun og efnið hefur vaxið töluvert þetta árið eftir krefjandi, gefandi og lærdómsrík verkefni undanfarinna missera.

Stjórnvísimeðlimir ættu að kannast við Ágúst — hann heldur reglulega erindi fyrir faghópa félagsins og var áður formaður faghóps um breytingastjórnun. Það gleður okkur að sjá hvað hann hefur vaxið og dafnað síðan þá og við hlökkum alltaf til að fá hann í heimsókn.

Allar nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér: https://www.oh.ru.is/namskeid/ad-lyfta-upp-breytingum/363812

Stjórnvísimeðlimir fá 15% afslátt með kóðanum StjornOH15 við bókun.

 

 

World Futures Day 2026 – Alþjóðlegt samtal um framtíð mannkyns 1. mars

Þann 1. mars næstkomandi verður alþjóðlegi viðburðurinn World Futures Day haldinn í 13. sinn. Um er að ræða opið, 24 klukkustunda netsamtal þar sem framtíðarfræðingar og hugsuðir víðs vegar að úr heiminum ræða mögulegar sviðsmyndir um framtíð mannkyns.

Viðburðurinn hefst kl. 12 á hádegi að nýsjálenskum tíma (þá kl 23:00 þann 28 feb. hér heima) og lýkur sólarhring síðar á Hawaii. Þátttakendur geta komið inn í samtalið hvenær sem er og tekið þátt í opnum umræðum um þróun gervigreindar, loftslagsbreytingar, framtíð vinnunnar, lýðræði framtíðarinnar og fjölmörg önnur viðfangsefni.

Að viðburðinum standa The Millennium Project í samstarfi við fimm alþjóðleg félög á sviði framtíðarfræða. Í ár verður Vint Cerf, einn af frumkvöðlum internetsins, meðal þátttakenda.

Allir áhugasamir eru hvattir til að skrá sig og taka þátt í samtalinu.

Athugið: Skráning er nauðsynleg og fundartengill er persónubundinn.

Sjá viðburðinn undir faghóp framtíðarfræða og gervigreindar. Annar er einnig hægt að skrá sig hér:

https://us02web.zoom.us/meeting/register/y2IYg5T2SZiTojaXo_x94Q#/registration

Þau hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2026

Hér má sjá myndir, upptökur, rökstuðning, vb.is, 24stundir, visir.is.
Fimm einstaklingar hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2026 sem veitt voru í dag við hátíðlega athöfn á Grand Hótel að viðstöddum forseta Íslands.
Verðlaunin voru veitt í þremur flokkum auk þess sem veitt voru sérstök heiðursverðlaun en þetta er í sautjánda sinn sem Stjórnunarverðlaunin eru afhent.
Handhafar Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2026 eru eftirtaldir: Í flokki yfirstjórnenda
Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, í flokki millistjórnenda þau Óttar Örn Sigurbergsson
framkvæmdastjóri ELKO og Helga Halldórsdóttir forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka. Í flokki
frumkvöðla Þór Sigfússon stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans. Auk þess hlaut
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi sérstök heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til stjórnunar.

Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru árlega veitt stjórnendum fyrirtækja sem þykja hafa skarað
fram úr á sínu sviði. Yfirlýst markmið verðlaunanna er að stuðla að aukinni fagmennsku á sviði
stjórnunar á Íslandi. Einnig er þeim ætlað að vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda og
frumkvöðla auk þess að örva umræðu um faglega stjórnun.

Í dómnefnd sátu
Salóme Guðmundsdóttir, formaður dómnefndar, framkvæmdastjóri Ísorku og stjórnarformaður
Kadeco.
Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar.
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá.
Katrín S. Óladóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hagvangs.
Margrét Guðmundsdóttir, fyrrverandi forstjóri Icepharma og stjórnarkona.
Þröstur Olaf Sigurjónsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Ritari dómnefndar er Gunnhildur Arnardóttir framkvæmdastjóri Stjórnvísi

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?