Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur eftirfarandi gildi að leiðarljósi:
Fagmennska - Heiðarleiki - Traust
MARKMIÐ LÖGREGLUSTJÓRANS Á SUÐURNESJUM (LSS)
Embættið hefur þá sérstöðu að starfsemin skiptist annars vegar í hefðbundna löggæslu þar sem markmiðið er að tryggja öryggi almennings í umdæminu og hins vegar í löggæslu á alþjóðaflugvelli, þar sem markmiðið er að tryggja löggæslu gagnvart flugfarþegum og sinna landamæraeftirliti.
LÖGREGLUSTJÓRINN Á SUÐURNESJUM LEGGUR ÁHERSLU Á
- Að tryggja öryggi íbúa og þeirra sem leið eiga um umdæmið og halda uppi lögum og reglu.
- Að veita íbúum og þeim sem leið eiga um umdæmið greiðan aðgang að þjónustu lögreglu.
- Að halda úti skilvirku landamæraeftirliti.
- Að rannsóknir sakamála við embættið séu faglegar og hraðar.
- Að íbúar hafi greiðan aðgang að lögreglu með hverfastöðvum og grenndarlöggæslu.
- Að halda úti markvissu forvarnarstarfi í umdæminu
- Að almannavarnir séu öflugar í embættinu og áætlanir raunhæfar og nýlegar.
- Að miðla upplýsingum og eiga gott samstarf við íbúa og atvinnulíf á svæðinu, sem og erlenda samstarfsaðila.