Öflugt starfsár hjá faghópi Umbóta og ferlastjórnunar

Aðalfundur faghóps Umbóta og ferlastjórnunar – yfirlit starfsársins 2025–2026

Faghópur Umbóta og ferlastjórnunar starfaði áfram af krafti á árinu með áherslu á miðlun þekkingar, reynslu og hagnýtra lausna á sviði umbóta, ferlastjórnunar og þjónustuhönnunar. Áhersla ársins var á stöðugar umbætur, skilvirkni í rekstri og mannmiðaða þróun þjónustu og skipulagsheilda.

Á árinu var boðið upp á fjölbreytta og vel sótta viðburði á vegum faghópsins þar sem sjónum var beint að nýjum nálgunum, reynslusögum og hagnýtum lausnum úr atvinnulífi og opinberri starfsemi.

  • Hvernig vinna LEAN og HSE saman?
    Fjallað var um hvernig Lean-hugmyndafræði og HSE (Health, Safety & Environment) geta stutt hvort annað til að skapa öruggari, skilvirkari og sjálfbærari vinnustaði. Áhersla var lögð á að samþætta umbótamenningu, öryggi starfsfólks og stöðugar umbætur í daglegum rekstri.
  • Dulda verksmiðjan – áskoranir og lausnir í að ná bættum árangri í starfseminni
    Farið var yfir hvernig greina má „dulda sóun“ í starfsemi fyrirtækja og stofnana. Lögð var áhersla á mikilvægi þess að kortleggja ferla, greina flöskuhálsa og bæta yfirsýn til að auka árangur og skilvirkni í rekstri.
  • Frá ferlum til fólks: Hönnun nýs spítala
    Viðburðurinn fjallaði um hvernig hönnun nýs spítala tekur mið af bæði verkferlum og þörfum fólks – starfsfólks, sjúklinga og annarra notenda. Áhersla var lögð á samspil þjónustuhönnunar, ferlahugsunar og mannmiðaðrar nálgunar við þróun framtíðarheilbrigðisþjónustu.
  • Frá pöntun til afhendingar: Uppbygging og þróun Wolt á Íslandi
    Fjallað var um hraðan vöxt og þróun rekstrarferla hjá Wolt á Íslandi með sérstakri áherslu á þjónustuflæði, stafræna upplifun viðskiptavina og mikilvægi skilvirkra afhendingarferla í ört vaxandi starfsemi.
  • Hver er ávinningurinn með Lean Six Sigma vottun fyrir þig og starfsemina?
    Kynntur var ávinningur Lean Six Sigma aðferðafræðinnar fyrir einstaklinga og skipulagsheildir, meðal annars hvernig markviss umbótaverkefni geta stuðlað að aukinni skilvirkni, minni sóun og sterkari umbótamenningu. Einnig var farið yfir mikilvægi færniuppbyggingar og vottunar í umbótastarfi.

Aðalfundur faghópsins var haldinn 6. maí 2026. Á fundinum var samþykkt að halda sömu stjórn og síðasta ár. Stjórn faghópsins helst því óbreytt yfir á næsta starfsár, en jafnframt er vilji til að bæta við nýjum aðilum í stjórn til að efla starf hópsins enn frekar.

Stjórn faghópsins var endurkjörin og skipa hana eftirtalin:

  • Hrafnhildur Birgisdóttir, formaður
  • Erla Jóna Einarsdóttir
  • Jónína Guðný Magnúsdóttir
  • Magnús Bergur Magnússon
  • Magnús Ívar Guðfinnsson
  • Súsanna Magnúsdóttir
  • Þóra Kristín Sigurðardóttir

Stjórn faghópsins þakkar fyrir góða þátttöku og áhuga á starfsemi hópsins á árinu og hlakkar til áframhaldandi samstarfs og fræðslu á komandi starfsári.

Fleiri fréttir og pistlar

Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum

Stjórnvísi og Kjarkur ráðgjöf stóðu fyrir opnum morgunverðarfundi föstudaginn 16. október. Það voru stjórnendaráðgjafarnir Berglind Björk Hreinsdóttir og Harpa Þrastardóttir sem stigu á stokk og héldu fyrirlestra dagsins. Yfirskriftin var ,,Þegar markaðurinn kólnar – mennska, fagleg vinnubrögð og ferlar".

Í sífellt flóknari og hraðari heimi er mikilvægt að efla vinnuvernd og bæta vinnustaðamenningu. Fjallað var um hvernig stjórnendur geta tekist á við samdráttartíma af yfirvegun með skilvirkum ferlum og skýrri greiningu þar sem markviss samskipti og og umhyggja fyrir fólki eru rauði þráðurinn.

Stjórnvísi 40 ára - vertu með í vetur!

Nú býðst nýjum félögum 50% afsláttur af félagsgjöldum.
Vertu með í vetur!

Alþjóðleg Delphi rannsókn. AGI og samfélagsleg samheldni

Fyrir hönd The Millennium Project og Framtíðarseturs Íslands er þér boðið að taka þátt í alþjóðlegri rannsóknar – sem byggist á „Real-Time Delphi“-spurningakönnun – um efnið:

Almenn gervigreind (AGI) og samfélagsleg samheldni árið 2035

Í rannsókninni verður kannað hvernig auka megi líkurnar á því að almenn gervigreind (AGI) hvetji til samfélagslega samheldni fremur en að draga úr henni fyrir árið 2035.Þátttakendur fá niðurstöður rannsóknarinnar senda að henni lokinni. Takið þátt hér er vefslóðinn að spurningarvagninum, auk viðbótar texta um rannsóknina: accessing the questionnaire here.

You will receive the results of this study. You do not have to fill out the whole questionnaire on one visit. You are encouraged to come back to read other panelists’ comments, and edit your own at any time until the deadline of December 15, 2026. Register for the survey using a social account or email address. If you choose email, you will receive an access code. When returning, please make sure to log in with the exact same account you used to register. The demographic questions are only asked once; you will not see them again when you return.

All comments are anonymous; no attributions will be made. However, if you want a specific comment attributed to you in the final report, include the tag [please attribute] within your text. Do not type your name in the comment box.

The results will be used to create alternative scenarios that will be given to The Millennium Project Node Chairs and Co-chairs around the world as inputs to the national workshops on these issues. The strategies recommended by the workshops to address future AGI impacts on social coherence will be the subject of additional RTDelphi studies to assess their effectiveness. All phases of this research will be combined into a report that will be sent to you and distributed to political, business, academic, NGO, and UN leadership around the world.

This study assumes that a more coherent world has enough common narrative, that people feel they belong to the same humanity. This does not require cohesion, uniformity, and sameness; the elements of an opera are quite different, but make a coherent performance. Human interactions and perceptions of reality are affected by current AI and likely to be far more so by AGI by 2035. You are welcome to challenge these assumptions in the comment sections of the questionnaire. If you have any difficulties with this Real-Time Delphi questionnaire, contact the 4CF HalnyX team at support@halnyx.com.

Kick off fundur Stjórnvísi var haldinn í Hvalasafninu fimmtudaginn 27.ágúst 2026.

Hér má sjá myndir af fundinum

Í dag hittust stjórnir faghópa Stjórnvísi í Hvalasafninu þar sem nýju 40 ára starfafmælisári var startað. Þema starfsársins er "Manneskjan í miðju umbreytinga - 40 ára og áfram". Farið var yfir ýmis atriði með stjórnendum faghópa starfið í vetur og gafst góður tími til að sameinast um viðburði, skerpt var á stefnu og gildum félagsins og boðið var upp á morgunkaffi í einstaklega fallegu og notalegu umhverfi. .

Krafturinn í stjórnum faghópanna er mikill eins  og sjá má í meðfylgjandi excelskjali þar sem sjá má drög að fjölda viðburða. 

Átján fyrirmyndarfyrirtækjum í stjórnarháttum veitt viðurkenning

Hlekkur á myndir. 18 íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026 við hátíðlega athöfn á Nauthóli í dag. Viðurkenningarnar eru veittar af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland.

Fyrirtækin sem hlutu viðurkenningu í ár eru: Alvotech, Arion banki, Bera, Drangar, Eik fasteignafélag, Heimar, Icelandair Group, Íslandssjóðir, Kvika banki, Orkan IS, Reiknistofa bankanna, Reitir fasteignafélag, Sjóvá, Skagi, Stefnir, Styrkás, VÍS og Vörður tryggingar.

Þrjú fyrirtækjanna hljóta nafnbótina í fyrsta sinn, en það eru Bera, Drangar og Styrkás.

Markmið verkefnisins er að efla traust í viðskiptalífinu og styrkja innviði fyrirtækja með því að hvetja til skýrra vald- og ábyrgðarskipta meðal stjórna og stjórnenda. Fylgni við góða stjórnarhætti stuðlar að faglegri ákvarðanatöku, ábyrgari rekstri og bættri samskiptamenningu innan fyrirtækja. Þannig verður stjórnarstarf bæði skilvirkara og traustara í augum almennings. Liður í því er meðal annars útgáfa, og regluleg uppfærsla, leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja sem sjá má á www.leidbeiningar.is.

Fyrirmyndarfyrirtækin 18 eru afar fjölbreytt en þar má nefna fjármála- og tryggingastarfsemi, fasteignafélög, lyfjaframleiðslu, ferðaþjónustu, upplýsingatækni, eignaumsýslu, iðnað og eldsneytis- og orkusölu. Fyrirtækin þykja öll vel að nafnbótinni komin enda eru starfshættir stjórna þeirra vel skipulagðir og framkvæmd stjórnarstarfa til fyrirmyndar.

Jón Hreiðar Sigurðsson, verkefnisstjóri Fyrirmyndarfyrirtækja, flutti inngangsorð um verkefniðog Marta Guðrún Blöndal, lögmaður og nefndarmaður í nefnd um stjórnarhætti fyrirtækja flutti erindi. Viðurkenningarnar voru afhentar af Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Fundarstjóri var Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?