Ráðstefna "Know Your rights" (KYR)

Boðið er á lokaráðstefnu ”Know Your Rights” verkefnisins sem verður haldinn í Þjóðminjasafninu, Suðurgötu 41 102 Reykjavík,  miðvikudaginn 20. október kl. 13-16.  Ráðstefnan er á ensku, forskráning er ekki skilyrði en okkur þætti vænt um að vita af þér.  Sjá meðfylgjandi dagskrá.

Erasmus+ styrkir verkefnið sem Einurð leiðir og vinnur í samstarfi við Jafnréttishús, Compass Austurríki, Center for social innovation í Kýpur, Social Innovation Fund Litháen Acción Laboral og Asociaación Camions á Spáni.  Markmið verkefnisins er að auka vitund erlendra starfsmanna um þau réttindi, stuðning og þjónustu sem þeir geta nýtt sér í samstarfslöndunum og samkvæmt Evrópskri vinnulöggjöf.

Afurðir verkefnisins eru þarfagreining á stöðu erlendra starfsmanna í þátttökulöndunum, námskrá og námsefni fyrir jafningjafræðslu, fræðslumyndbönd og upplýsingasíður um réttindi og stuðning við erlenda starfsmenn á 3-5 tungumálum í hverju landi.  Opið menntaefni og fræðslumyndbönd voru unnin um: lágmarkslaun og skattaumhverfi, vinnuaðstæður og öryggismál, heilsugæslu og sjúkratryggingar, verkalýðsfélög og ráðningasamninga. 

Á Íslandi var unnið fræðsluefni og myndbönd á spænsku, taílensku, rússnesku, arabísku og ensku en horft er til þess að nýta og aðlaga fræðsluefni og myndbönd fyrir fleiri tungumálahópa í framtíðinni.   

Fleiri fréttir og pistlar

Hver er stjórnandinn sem þú vilt tilnefna? Tilnefningar til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2027 eru opnar — allir geta tilnefnt.

Til að tilnefna fyrir árið 2027 smellið hér
Óskað er eftir tilnefningum til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2027 Sjá myndband.

Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2027 verða veitt í átjánda sinn í febrúar næstkomandi við hátíðlega athöfn á Grand hótel, Háteigi, kl.16:00-17:10. Forseti Íslands Frú Halla Tómasdóttir afhendir verðlaunin og flytur stutt ávarp.

Við hvetjum alla landsmenn til að taka þátt með því að tilnefna og rökstyðja 1. millistjórnendur 2. yfirstjórnendur 3.frumkvöðla/brautryðjendur í fyrirtækjum innan sem utan raða Stjórnvísi sem þeim þykir hafa skarað framúr á sínu sviði.

Dómnefnd birtir lista yfir þá sem hljóta tilnefningu.
Frestur til að tilnefna rennur út 17.desember 2026.
Hver og einn getur tilnefnt og rökstutt eins marga og hann vill innan sem utan síns fyrirtækis.
Dómnefnd tekur við öllum tilnefningum, vinnur úr þeim og útnefnir verðlaunahafa.


Viðmið við tilnefningu:
Að stjórnandinn hafi í starfi sínu eða einstöku verkefni sýnt af sér forystu, bæði í stjórnun og nýjum hugmyndum ásamt því að stuðla að auknum árangri í starfsemi þess fyrirtækis eða stofnunar sem hann starfar hjá.


Markmið Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi er að vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda, örva umræðu um faglega stjórnun og hvetja félagsfólk til að auka þekkingu sína, hæfni og færni sem stjórnendur. Þannig vill Stjórnvísi stuðla að aukinni fagmennsku á sviði stjórnunar á Íslandi.

Dómnefnd.
Það er Stjórnvísi mikið í mun að verðlaunin séu byggð á faglegu mati og því eru viðmið og ferli verðlaunanna vel skilgreind og dómnefnd er skipuð sérfræðingum og reynslumiklum stjórnendum.
Dómnefnd 2027 skipa eftirtaldir:

Salóme Guðmundsdóttir, formaður dómnefndar.
Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar.
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár.
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Katrín S. Óladóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hagvangs.
Margrét Guðmundsdóttir, fyrrverandi forstjóri Icepharma hf.,og stjórnarkona.
Þröstur Olaf Sigurjónsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Ritari dómnefndar er Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi.

Nánari upplýsingar um Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi er að finna á heimasíðu félagsins: https://www.stjornvisi.is/is/stjornunarverdlaun

Vel heppnaður viðburður um Afleggjarann

Fyrsti viðburður vetrarins hjá faghópnum fór vel af stað með virkilega góðum hádegisfundi í Háskólanum í Reykjavík í gær, þar sem Eva Jakobsdóttir og Valý Þórsteinsdóttir sögðu frá Afleggjaranum, nýsköpunarhraðli Reykjavíkurborgar.
 
Þær gáfu okkur innsýn í hvernig Afleggjarinn hefur þróast, hvernig skapa má starfsfólki svigrúm til að prófa nýjar hugmyndir og nálgast áskoranir með aðferðum þjónustuhönnunar. Einnig fengum við að sjá dæmi um verkefni sem hafa farið í gegnum Afleggjarann og þann lærdóm sem hefur orðið til á vegferðinni.

 

Takk Eva og Valý fyrir frábæra kynningu og takk öll sem mættu og tóku þátt í góðum umræðum.

 

 

Öryggisþing Háskóla Íslands

Stjórn faghóps um öryggisstjórnun vekur athygli á öryggisþingi öryggisnefnda Háskóla Íslands

Á öryggisþingi er fjallað um öryggis-, heilsu- og vinnuverndarmál.

Fyrirlesarar koma bæði úr háskóla- og atvinnulífi og þar gefst tækifæri til að styrkja samstöðu og samvinnu í þessum málaflokki og um leið bæta öryggisbrag á vinnustaðnum.

Öryggisþingið verður haldið þriðjudaginn 17. nóvember 2026 kl. 13:00 í Eddu stofa E 103

sjá hlekk á öryggisþingið

https://oryggi.hi.is/is/oryggisthing-2026/

Einn heimur: Stafræn bylting og tilkoma alþjóðlegrar vitundar

Myndband til fróðleiks og skemmtunar.

Í þessu myndbandi ræðir Gerd leonhard við framtíðarfræðingnum William (Bill) Halal, sem er 93 ára, en „ungur“, um nýju bókina hans: One World: Digital Revolution and the Rise of Global Consciousness.

https://vimeo.com/1232593588?share=copy&fl=sv&fe=ci 

Í dag þróum við tækni sem getur svarað nánast hverju sem er. En hver ákveður hvaða svör skipta máli – og hvers konar framtíð þau þjóna? Þér félagar taka fyrir brýnan vanda tengdan gervigreind, gerum greinarmun á greind og meðvitund – sem er lykilatriði – og skoðum hvers vegna gnægð þekkingar hjá AI gerir mannlega dómgreind, ímyndunarafl, siðfræði og tilgang mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Ef við höldum áfram að fjárfesta í sífellt gáfaðri AGI en vanrækjum um leið að efla visku mannfólksins, stefnum við beint í dýrkeyptan ósigur.

Sérstæðan — framtíð án líkama (e.singularity)

Hvað verður um vitundina þegar líkaminn hverfur? Getum við upplifað heiminn án snertingar, sársauka eða nautnar?

Viðfangsefni verksins er mörgum framtíðarfræðingum umhugsunarefni, og því vildum við kynna það sérstaklega hér að þessum vetvangi.

Sérstæðan eftir Rósu Ómarsdóttur verður sýnd í Tjarnarbíó 11. nóvember á Reykjavík Dance Festival og Iceland Moves. Verkið byggir á hugleiðingum um framtíð án líkama, eftir að tæknileg sérstæða (e. singularity) hefur átt sér stað.

Vera úr framtíðinni segir frá því hvernig hún gufaði upp og sameinaðist gervigreind í skýjunum. Hún hverfur svo sjálf og sviðsmyndin tekur við: vatn, reykur, ljós og myndvörpun flytja verkið áfram ásamt texta, tónlist og söng.

Þarna er tonn af vatni, fjórar tegundir af rigningu, regnbogi og endalaus sápufroða. Verkið er eins konar óður til líkamans og skynjunarinnar — og vangaveltur um hvað tapast ef við skiljum líkamann eftir.

Inga Huld Hákonardóttir kemur frá Belgíu til að flytja verkið. Allur hljóðheimurinn er unninn úr söng hennar og settur saman af Sveinbirni Thorarensen, aka Hermigervill.

Sérstæðan var frumsýnd fyrir ári og hlaut meðal annars fjórar Grímutilnefningar.

Félagsfólk Stjórnvísi fær 20% afslátt af miðum með kóðanum Gervigreind, sem er sleginn inn við miðakaup á Tix.

Miðar og nánari upplýsingar

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?