Staðsetning mannauðsstjóra í skipuriti fyrirtækja
Mikil umræða hefur verið um stöðu mannauðsstjóra í skipuriti fyrirtækja undanfarin misseri. Þessi umræða er alls ekki ný af nálinni og segja má að tilvistarbarátta mannauðsstjóra undanfarna áratugi hafi snúist um það að eiga sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækja. Rökin fyrir því eru einföld, starfsmannamál eru fyrirferðamikill þáttur í rekstri og stjórnun fyrirtækja og það er nánast sama hvaða ákvörðun er tekin varðandi rekstur, sú ákvörðun tengist á einhvern hátt starfsmönnum. Því er mikilvægt að mannauðsstjóri eigi sæti í framkvæmdastjórn og sé þannig næst vettvangi í allri ákvörðunartöku. Eftir efnahagshrunið hér á landi má sjá ákveðna tilhneigingu hjá fyrirtækjum að breyta skipulaginu þannig að yfirmaður eða framkvæmdastjóri mannauðssmála sé færður niður í skipuriti, tekinn út úr framkvæmdastjórn og settur undir þjónustu, rekstrar- eða fjármálasvið. Erfitt er að átta sig á því hvaða rök liggja hér að baki en þessi þróun hefur ekki átt sér stað annars staðar með jafn ríkum hætti. Hugsanleg skýring er að fjöldi nýrra æðstu stjórnenda sem hefur tekið við stjórnartaumum fyrirtækja hefur þann bakgrunn að þeir þekki ekki til mikilvægi mannauðsstjórnunar. Það eru aðallega þrjú svið sem mannauðsstjórnun kemur inn á með einum eða öðrum hætti. Í fyrsta lagi þekking á samskiptum aðila vinnumarkaðarins, gerð kjarasamninga og túlkun þeirra og lausn ágreinings. Í öðru lagi þekking á rekstri og viðskiptum og helstu lykilkennitölum sem tengjast þeim svo sem fjármál og fjárhagsbókhald. Í þriðja lagi mannlegi þátturinn svo sem samskipti, virk hlustun, leiðtogafærni og breytingastjórnun. Hugsanlega er þessi þróun tímabundin og innan skamms munum við sjá þessa þróun snúast við. Það eru ekki eingöngu framkvæmdastjórar framleiðslu, markaðsmála, rannsókna og þróunar eða fjármála og rekstrar sem eru ábyrgir fyrir árangri fyrirtækja ef ætlunin er að ná árangri og þá er mikilvægt að rödd mannauðsstjórans heyrist á réttum stöðum.
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent HÍ
Staðsetning mannauðsstjóra í skipuriti fyrirtækja. grein í Viðskiptabl.Mbl. höf: Gylfi Dalmann
Fleiri fréttir og pistlar
Aðalfundur faghóps um góða stjórnarhætti var haldinn á Teams mánudaginn 20. apríl.
Fundardagskrá:
- Uppgjör á starfsári
- Kosning til stjórnar
- Önnur mál
Formaður fór yfir viðburði starfsársins 2025-2026 sem voru:
- Fyrirmyndarfyrirtæki – afhending viðurkenninga (22. ágúst 2025)
- Hvaða áhrif hefur NIS2 á íslensk fyrirtæki og stofnanir? (18. sept. 2025)
- Eru tilnefninganefndir lykill að fagmennsku? (26. nóv. 2025)
- Stjórnarhættir, gagnsæi og sjálfbærni (20. mars 2026)
Ný stjórn var kosin: Sigurjón G. Geirsson (formaður), Baldur Thorlacius, Hrönn Ingólfsdóttir og Rut Gunnarsdóttir.
Aðalfundur faghópsins Gæðastjórnun og ISO staðlar, fyrir árið 2026, verður haldinn 22. maí kl. 12.00-13:00.
Staðsetning: VOX Brasseria, Suðurlandsbraut 2.
Þeir sem hafa áhuga á að mæta á fundinn vinsamlegast sendi tölvupóst á formann faghópsins á netfangið sigarnar@live.com
Dagskrá aðalfundar faghóps Stjórnvísi: Gæðastjórnun og ISO staðlar:
- Framsaga formans - um starf ársins
- Umræður um starf ársins
- Kosning til stjórnar / upplýsingar um nýja stjórn fyrir tímabilið 2026-2027
- Ákvörðun um fyrsta fund nýrrar stjórnar
- Önnur mál
---
F.h. faghópsins
Sigurður Arnar Ólafsson
Stjórn Öryggishóps vekur áhuga á áhugaveðri ráðstefnu sem Öryggisráð Samorku stendur fyrir, miðvikudaginn 15. apríl 2026, kl. 9:00–12:00, á Reykjavík Natura.
Ráðstefnan fjallar um hvernig hugmyndafræði Human and Organisational Performance (HOP) styður við öryggi og áreiðanleika í flóknum og áhættusömum rekstri. Umfjöllun verður meðal annars um raunverulega vinnu, samspil kerfa og aðstæðna, markvissan lærdóm og hvernig byggja má upp varnarlög sem draga úr líkum á alvarlegum atvikum.
Fyrirlesarar eru:
Kristian Gould, sérfræðingur í mannlegum þáttum og skipulagsöryggi hjá Equinor.
Guðmundur Ben Þorsteinsson, leiðtogi Human and Organisational Performance (HOP) hjá Tesla.
Hér er hægt að skrá sig og fá nánari upplýsingar:
https://samorka.is/utgafa-og-midlun/vidburdir/radstefna-um-human-and-organisational-performance-hop/
Stjórn faghóps um leiðtogafærni vekur athygli félaga á þessu áhugaverða námskeiði sem haldið verður í HR þann 6. mars nk. og ber yfirskriftina "Að lyfta upp breytingum".
Hefur þú lent í erfiðleikum með að koma hugmynd í framkvæmd? Þetta er vandamál sem við öll glímum við, óháð því hvaða faghóp við tilheyrum. Góðar hugmyndir stranda ekki á því að þær séu slæmar — heldur á því að við vitum ekki hvernig á að ná fólki með okkur í vegferðina.
Námskeiðið Að lyfta upp breytingum snýst einmitt um þetta: að búa þig undir að verða sá einstaklingur sem fær hlutina til að gerast.
Á námskeiðinu færðu:
- Skilning á mannlegri hegðun — grunninn að öllum árangri í breytingum
- Hagnýtar leiðir til að verða leiðtogi breytinga, með áherslu á tengsl, samskipti, greiningu, sögugerð og þolinmæði
- Kynni af þekktum aðferðum við að leiða farsælar breytingar, með m.a. ADKAR og SWITCH
- Verkfæri til að lyfta upp vinnustaðnum þínum, með viljandi stjórnun og menningaruppbyggingu
Um kennarann
Ágúst Kristján Steinarrsson er stjórnunarráðgjafi sem hefur helgað sig breytingum og umbótum. Hann starfar daglega við að lyfta upp og efla vinnustaði landsins og hefur þróað eigin hugmyndafræði sem mótast hefur af endurteknum sigrum og áföllum fjölmargra umbótavegferða. Námskeiðið er í stöðugri þróun og efnið hefur vaxið töluvert þetta árið eftir krefjandi, gefandi og lærdómsrík verkefni undanfarinna missera.
Stjórnvísimeðlimir ættu að kannast við Ágúst — hann heldur reglulega erindi fyrir faghópa félagsins og var áður formaður faghóps um breytingastjórnun. Það gleður okkur að sjá hvað hann hefur vaxið og dafnað síðan þá og við hlökkum alltaf til að fá hann í heimsókn.
Allar nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér: https://www.oh.ru.is/namskeid/ad-lyfta-upp-breytingum/363812
Stjórnvísimeðlimir fá 15% afslátt með kóðanum StjornOH15 við bókun.
Þann 1. mars næstkomandi verður alþjóðlegi viðburðurinn World Futures Day haldinn í 13. sinn. Um er að ræða opið, 24 klukkustunda netsamtal þar sem framtíðarfræðingar og hugsuðir víðs vegar að úr heiminum ræða mögulegar sviðsmyndir um framtíð mannkyns.
Viðburðurinn hefst kl. 12 á hádegi að nýsjálenskum tíma (þá kl 23:00 þann 28 feb. hér heima) og lýkur sólarhring síðar á Hawaii. Þátttakendur geta komið inn í samtalið hvenær sem er og tekið þátt í opnum umræðum um þróun gervigreindar, loftslagsbreytingar, framtíð vinnunnar, lýðræði framtíðarinnar og fjölmörg önnur viðfangsefni.
Að viðburðinum standa The Millennium Project í samstarfi við fimm alþjóðleg félög á sviði framtíðarfræða. Í ár verður Vint Cerf, einn af frumkvöðlum internetsins, meðal þátttakenda.
Allir áhugasamir eru hvattir til að skrá sig og taka þátt í samtalinu.
Athugið: Skráning er nauðsynleg og fundartengill er persónubundinn.
Sjá viðburðinn undir faghóp framtíðarfræða og gervigreindar. Annar er einnig hægt að skrá sig hér:
https://us02web.zoom.us/meeting/register/y2IYg5T2SZiTojaXo_x94Q#/registration