Á þriðja hundrað manns mættu á vel heppnaða haustráðstefnu Stjórnvísi 2019. Tekið var á móti gestum með glæsilegu hlaðborði eins og Grand Hótel er einum lagið. Formaður stjórnvísi Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir setti ráðstefnuna. Guðfinna Bjarnadóttir ráðstefnustjóri setti sinn svip á ráðstefnuna með sinni einstöku faglegu, hlýju og léttu nærveru. Þau Antoine Merour og Steinunn Ketilsdóttir fluttu frábær erindi og að þeim loknum tóku ráðstefnugestir saman helstu punkta og settu þá inn á sli.do Forritið var notað til að senda inn spurningar til fyrirlesara, taka saman minnispunkta og að lokum til að svara þeirri spurningu hvort TRAUST væri mikilvægasti gjaldmiðill fyrirtækja.
Myndir af ráðstefnunni eru á facebooksíðu félagsins
Streymi af ráðstefnunni er á facebooksíðu félagsins
https://www.facebook.com/Stjornvisi/videos/2340386849422741/
https://www.facebook.com/Stjornvisi/videos/2441606046159222/
https://www.facebook.com/Stjornvisi/videos/2538146556249534/
https://www.facebook.com/Stjornvisi/videos/2401530076841726/