Verðmætasti hæfileikinn meðal stjórnenda - grein í Viðskiptabl.Mbl. höf: Ragnheiður Aradóttir, Dale

Verðmætasti hæfileikinn meðal stjórnenda
„Meira, betur , hraðar og ódýrar“ virðast vera þulur sem eru sífellt endurteknar í nútímaviðskiptum. Hvernig getum við fylgst með öllum breytingum og tileinkað okkur áhrifaríkar aðferðir til að taka á þeim?
Menn hafa um langt skeið rannsakað á margvíslegan hátt hæfileikann til nýsköpunar og leitast við að uppgötva og skilja hvað það er sem gerir einstakling skapandi. Hvers konar umhverfi örvar sköpunargáfu fólks og leyfir henni að blómstra? Fólk hefur um aldaraðir heillast af sköpunarferlinu - þessari röð ákveðinna skrefa þar sem einstaklingur eða hópur notar lögmál skapandi hugsunar til að skilgreina vandamál eða tækifæri á kerfisbundinn, hlutlausan og óhefðbundinn hátt. Þessi aukna meðvitund og skilningur hefur náð taki á ímyndunarafli þeirra stjórnenda sem hugsa um gæði og skilja hversu gífurlegan hag það hefur í för með sér að þróa hæfileika starfsfólks til sköpunar og úrlausna vandamála. Kannanir hafa sýnt að hæfileikinn til að hugsa skapandi - til að skilgreina vandamál og tækifæri á nýjan og fumlegan hátt er - talinn verðmætasti hæfileikinn meðal stjórnenda fyrirtækja sem leggja mesta áherslu á stöðuga framþróun. Hvers vegna? Vegna þess að frumlegar hugmyndir geta af sér nýjar uppgötvanir, betri leiðir, minni kostnað og bætta frammistöðu - allt atriði sem eru lífsnauðsynleg fólki í nútímaviðskiptum. Því má segja að nýsköpun sé auðlind sem við stjórnum.
Leiðtogar notfæra sér því aflið sem felst í mannlegum hæfileikum því þeir vita að þeir hafa ekki svör við öllu. Öflugt nýsköpunarferli hjálpar stjórnendum að stíga skrefin sem nauðsynleg eru til að breyta visku í veruleika.

Fleiri fréttir og pistlar

Aðalfundur 2026

Aðalfundur faghóps um góða stjórnarhætti var haldinn á Teams mánudaginn 20. apríl.

Fundardagskrá:

  1. Uppgjör á starfsári
  2. Kosning til stjórnar
  3. Önnur mál

Formaður fór yfir viðburði starfsársins 2025-2026 sem voru:

  • Fyrirmyndarfyrirtæki – afhending viðurkenninga (22. ágúst 2025)
  • Hvaða áhrif hefur NIS2 á íslensk fyrirtæki og stofnanir? (18. sept. 2025)
  • Eru tilnefninganefndir lykill að fagmennsku? (26. nóv. 2025)
  • Stjórnarhættir, gagnsæi og sjálfbærni (20. mars 2026)

Ný stjórn var kosin: Sigurjón G. Geirsson (formaður), Baldur Thorlacius, Hrönn Ingólfsdóttir og Rut Gunnarsdóttir.

Aðalfundur faghóps um gæðastjórnun og ISO staðla - 2026

Aðalfundur faghópsins Gæðastjórnun og ISO staðlar, fyrir árið 2026, verður haldinn 22. maí kl. 12.00-13:00.
Staðsetning: VOX Brasseria, Suðurlandsbraut 2. 
Þeir sem hafa áhuga á að mæta á fundinn vinsamlegast sendi tölvupóst á formann faghópsins á netfangið sigarnar@live.com

Dagskrá aðalfundar faghóps Stjórnvísi: Gæðastjórnun og ISO staðlar:

  • Framsaga formans - um starf ársins
  • Umræður um starf ársins
  • Kosning til stjórnar / upplýsingar um nýja stjórn fyrir tímabilið 2026-2027
  • Ákvörðun um fyrsta fund nýrrar stjórnar
  • Önnur mál

---

F.h. faghópsins
Sigurður Arnar Ólafsson

Áhugaverð ráðstefna, Human and organisational performance - HOP

Stjórn Öryggishóps vekur áhuga á áhugaveðri ráðstefnu sem Öryggisráð Samorku stendur fyrir, miðvikudaginn 15. apríl 2026, kl. 9:00–12:00, á Reykjavík Natura.

Ráðstefnan fjallar um hvernig hugmyndafræði Human and Organisational Performance (HOP) styður við öryggi og áreiðanleika í flóknum og áhættusömum rekstri. Umfjöllun verður meðal annars um raunverulega vinnu, samspil kerfa og aðstæðna, markvissan lærdóm og hvernig byggja má upp varnarlög sem draga úr líkum á alvarlegum atvikum.

Fyrirlesarar eru:

Kristian Gould, sérfræðingur í mannlegum þáttum og skipulagsöryggi hjá Equinor.
Guðmundur Ben Þorsteinsson, leiðtogi Human and Organisational Performance (HOP) hjá Tesla.

Hér er hægt að skrá sig og fá nánari upplýsingar:
https://samorka.is/utgafa-og-midlun/vidburdir/radstefna-um-human-and-organisational-performance-hop/

Áhugavert námskeið: Hefur þú lent í erfiðleikum með að koma hugmynd í framkvæmd?

Stjórn faghóps um leiðtogafærni vekur athygli félaga á þessu áhugaverða námskeiði sem haldið verður í HR þann 6. mars nk.  og ber yfirskriftina "Að lyfta upp breytingum".

Hefur þú lent í erfiðleikum með að koma hugmynd í framkvæmd? Þetta er vandamál sem við öll glímum við, óháð því hvaða faghóp við tilheyrum. Góðar hugmyndir stranda ekki á því að þær séu slæmar — heldur á því að við vitum ekki hvernig á að ná fólki með okkur í vegferðina.

Námskeiðið Að lyfta upp breytingum snýst einmitt um þetta: að búa þig undir að verða sá einstaklingur sem fær hlutina til að gerast.

Á námskeiðinu færðu:

  • Skilning á mannlegri hegðun — grunninn að öllum árangri í breytingum
  • Hagnýtar leiðir til að verða leiðtogi breytinga, með áherslu á tengsl, samskipti, greiningu, sögugerð og þolinmæði
  • Kynni af þekktum aðferðum við að leiða farsælar breytingar, með m.a. ADKAR og SWITCH
  • Verkfæri til að lyfta upp vinnustaðnum þínum, með viljandi stjórnun og menningaruppbyggingu

Um kennarann

Ágúst Kristján Steinarrsson er stjórnunarráðgjafi sem hefur helgað sig breytingum og umbótum. Hann starfar daglega við að lyfta upp og efla vinnustaði landsins og hefur þróað eigin hugmyndafræði sem mótast hefur af endurteknum sigrum og áföllum fjölmargra umbótavegferða. Námskeiðið er í stöðugri þróun og efnið hefur vaxið töluvert þetta árið eftir krefjandi, gefandi og lærdómsrík verkefni undanfarinna missera.

Stjórnvísimeðlimir ættu að kannast við Ágúst — hann heldur reglulega erindi fyrir faghópa félagsins og var áður formaður faghóps um breytingastjórnun. Það gleður okkur að sjá hvað hann hefur vaxið og dafnað síðan þá og við hlökkum alltaf til að fá hann í heimsókn.

Allar nánari upplýsingar um námskeiðið má finna hér: https://www.oh.ru.is/namskeid/ad-lyfta-upp-breytingum/363812

Stjórnvísimeðlimir fá 15% afslátt með kóðanum StjornOH15 við bókun.

 

 

World Futures Day 2026 – Alþjóðlegt samtal um framtíð mannkyns 1. mars

Þann 1. mars næstkomandi verður alþjóðlegi viðburðurinn World Futures Day haldinn í 13. sinn. Um er að ræða opið, 24 klukkustunda netsamtal þar sem framtíðarfræðingar og hugsuðir víðs vegar að úr heiminum ræða mögulegar sviðsmyndir um framtíð mannkyns.

Viðburðurinn hefst kl. 12 á hádegi að nýsjálenskum tíma (þá kl 23:00 þann 28 feb. hér heima) og lýkur sólarhring síðar á Hawaii. Þátttakendur geta komið inn í samtalið hvenær sem er og tekið þátt í opnum umræðum um þróun gervigreindar, loftslagsbreytingar, framtíð vinnunnar, lýðræði framtíðarinnar og fjölmörg önnur viðfangsefni.

Að viðburðinum standa The Millennium Project í samstarfi við fimm alþjóðleg félög á sviði framtíðarfræða. Í ár verður Vint Cerf, einn af frumkvöðlum internetsins, meðal þátttakenda.

Allir áhugasamir eru hvattir til að skrá sig og taka þátt í samtalinu.

Athugið: Skráning er nauðsynleg og fundartengill er persónubundinn.

Sjá viðburðinn undir faghóp framtíðarfræða og gervigreindar. Annar er einnig hægt að skrá sig hér:

https://us02web.zoom.us/meeting/register/y2IYg5T2SZiTojaXo_x94Q#/registration

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?