Við viljum vekja athygli á áhugaverðu námskeiði - Mótaðu framtíðina með sviðsmyndagreiningu

Mótaðu framtíðina með sviðsmyndagreiningum

- skapaðu þér og þínu fyrirtæki ný tækifæri

Hvenær: Fim. 26. jan. kl. 13:00 - 16:00 og fös. 27. jan. kl. 9:00 - 12:00

Frekari upplýsingar og skráning: https://endurmenntun.is/namskeid/137V23

Lýsing

Sérhver ákvörðun sem tekin er í dag hefur áhrif á framtíðina. Á það jafnt við hvort sem hún er tekin af einstaklingi eða af starfsmönnum fyrirtækja eða stofnana. Því er rökrétt að skoða og reyna að skilja þá áhrifaþætti sem skipta máli við ákvarðanatökuna áður en til hennar kemur.

Framtíðin verður ekki eins og fortíðin og því skiptir máli að kunna skil á þeim aðferðum sem mest eru notaðar í heiminum í dag til að horfa með faglegum og markvissum hætti til framtíðar. Meðal þeirra eru greining drifkrafta og sviðsmyndir.

Fyrri hluti námskeiðsins fjallar um það hvernig þú getur mótað eigin framtíð með því að nýta  framtíðarhugsun og kynnast framtíðarlæsi. Þátttakendur kynnast ólíkum aðferðum til að greina framtíðartækifæri og byggja upp færni og getu til að takast á við áður óþekktar áskoranir í lífi og starfi.
Í seinni hluta námskeiðsins er fjallað um mótun sviðsmynda og notkun þeirra sem og hagnýtt gildi fyrir ólík svið rekstrar og stjórnunar í fyrirtækjum og stofnunum. Þátttakendur öðlast grunnþekkingu í mótun sviðsmynda og notkun þeirra í stjórnun og rekstri.

Á námskeiðinu er fjallað um

Framtíðarlæsi.
Mótun sviðsmynda.
Notkun sviðsmynda í stjórnun og rekstri.
Framtíðarfræði almennt og greiningu drifkrafta og óvissuþátta sem leggja grunn að sviðsmyndagreiningu.
Mótun sviðsmynda, notkun þeirra og hagnýti fyrir ólík svið rekstrar og stjórnunar.

Ávinningur þinn

Öðlast færni til að nýta framtíðaráskoranir í lífi og starfi.
Skilningur á drifkröftum og straumum í rekstrarumhverfinu.
Þekking á helstu aðferðum sviðsmyndagreininga.
Öðlast grunnþekkingu við gerð og nýtingu sviðsmynda til notkunar í fyrirtækjum og stofnunum.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað starfsmönnum og stjórnendum sem fást við stefnumótun og þróunarmál innan fyrirtækja og stofnana, sem vilja jafnframt nýta sviðsmyndir til að auka  persónulega hæfni og frama.

Nánar um kennara

Karl Friðriksson er stjórnarformaður Framtíðarseturs Íslands. Hann er hagfræðingur frá University of London og hefur að undanförnu stundað rannsóknir á sviði framtíðarfræða.
Sævar Kristinsson er rekstrar- og stjórnendaráðgjafi á ráðgjafasviði KPMG með stefnumótun og sviðsmyndagerð sem sérsvið. Hann er með cand. oecon. gráðu frá HÍ og MBA frá HR.
Sævar og Karl eru höfundar bókarinnar Framtíðin frá óvissu til árangurs sem fjallar um notkun sviðsmynda (e. scenarios) m.a. við stefnumótun. Þeir hafa auk þess komið að gerð fjölda sviðsmynda fyrir stjórnvöld, fyrirtæki og sveitarfélög.

 

Fleiri fréttir og pistlar

Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum

Stjórnvísi og Kjarkur ráðgjöf stóðu fyrir opnum morgunverðarfundi föstudaginn 16. október. Það voru stjórnendaráðgjafarnir Berglind Björk Hreinsdóttir og Harpa Þrastardóttir sem stigu á stokk og héldu fyrirlestra dagsins. Yfirskriftin var ,,Þegar markaðurinn kólnar – mennska, fagleg vinnubrögð og ferlar".

Í sífellt flóknari og hraðari heimi er mikilvægt að efla vinnuvernd og bæta vinnustaðamenningu. Fjallað var um hvernig stjórnendur geta tekist á við samdráttartíma af yfirvegun með skilvirkum ferlum og skýrri greiningu þar sem markviss samskipti og og umhyggja fyrir fólki eru rauði þráðurinn.

Stjórnvísi 40 ára - vertu með í vetur!

Nú býðst nýjum félögum 50% afsláttur af félagsgjöldum.
Vertu með í vetur!

Alþjóðleg Delphi rannsókn. AGI og samfélagsleg samheldni

Fyrir hönd The Millennium Project og Framtíðarseturs Íslands er þér boðið að taka þátt í alþjóðlegri rannsóknar – sem byggist á „Real-Time Delphi“-spurningakönnun – um efnið:

Almenn gervigreind (AGI) og samfélagsleg samheldni árið 2035

Í rannsókninni verður kannað hvernig auka megi líkurnar á því að almenn gervigreind (AGI) hvetji til samfélagslega samheldni fremur en að draga úr henni fyrir árið 2035.Þátttakendur fá niðurstöður rannsóknarinnar senda að henni lokinni. Takið þátt hér er vefslóðinn að spurningarvagninum, auk viðbótar texta um rannsóknina: accessing the questionnaire here.

You will receive the results of this study. You do not have to fill out the whole questionnaire on one visit. You are encouraged to come back to read other panelists’ comments, and edit your own at any time until the deadline of December 15, 2026. Register for the survey using a social account or email address. If you choose email, you will receive an access code. When returning, please make sure to log in with the exact same account you used to register. The demographic questions are only asked once; you will not see them again when you return.

All comments are anonymous; no attributions will be made. However, if you want a specific comment attributed to you in the final report, include the tag [please attribute] within your text. Do not type your name in the comment box.

The results will be used to create alternative scenarios that will be given to The Millennium Project Node Chairs and Co-chairs around the world as inputs to the national workshops on these issues. The strategies recommended by the workshops to address future AGI impacts on social coherence will be the subject of additional RTDelphi studies to assess their effectiveness. All phases of this research will be combined into a report that will be sent to you and distributed to political, business, academic, NGO, and UN leadership around the world.

This study assumes that a more coherent world has enough common narrative, that people feel they belong to the same humanity. This does not require cohesion, uniformity, and sameness; the elements of an opera are quite different, but make a coherent performance. Human interactions and perceptions of reality are affected by current AI and likely to be far more so by AGI by 2035. You are welcome to challenge these assumptions in the comment sections of the questionnaire. If you have any difficulties with this Real-Time Delphi questionnaire, contact the 4CF HalnyX team at support@halnyx.com.

Kick off fundur Stjórnvísi var haldinn í Hvalasafninu fimmtudaginn 27.ágúst 2026.

Hér má sjá myndir af fundinum

Í dag hittust stjórnir faghópa Stjórnvísi í Hvalasafninu þar sem nýju 40 ára starfafmælisári var startað. Þema starfsársins er "Manneskjan í miðju umbreytinga - 40 ára og áfram". Farið var yfir ýmis atriði með stjórnendum faghópa starfið í vetur og gafst góður tími til að sameinast um viðburði, skerpt var á stefnu og gildum félagsins og boðið var upp á morgunkaffi í einstaklega fallegu og notalegu umhverfi. .

Krafturinn í stjórnum faghópanna er mikill eins  og sjá má í meðfylgjandi excelskjali þar sem sjá má drög að fjölda viðburða. 

Átján fyrirmyndarfyrirtækjum í stjórnarháttum veitt viðurkenning

Hlekkur á myndir. 18 íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025–2026 við hátíðlega athöfn á Nauthóli í dag. Viðurkenningarnar eru veittar af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland.

Fyrirtækin sem hlutu viðurkenningu í ár eru: Alvotech, Arion banki, Bera, Drangar, Eik fasteignafélag, Heimar, Icelandair Group, Íslandssjóðir, Kvika banki, Orkan IS, Reiknistofa bankanna, Reitir fasteignafélag, Sjóvá, Skagi, Stefnir, Styrkás, VÍS og Vörður tryggingar.

Þrjú fyrirtækjanna hljóta nafnbótina í fyrsta sinn, en það eru Bera, Drangar og Styrkás.

Markmið verkefnisins er að efla traust í viðskiptalífinu og styrkja innviði fyrirtækja með því að hvetja til skýrra vald- og ábyrgðarskipta meðal stjórna og stjórnenda. Fylgni við góða stjórnarhætti stuðlar að faglegri ákvarðanatöku, ábyrgari rekstri og bættri samskiptamenningu innan fyrirtækja. Þannig verður stjórnarstarf bæði skilvirkara og traustara í augum almennings. Liður í því er meðal annars útgáfa, og regluleg uppfærsla, leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja sem sjá má á www.leidbeiningar.is.

Fyrirmyndarfyrirtækin 18 eru afar fjölbreytt en þar má nefna fjármála- og tryggingastarfsemi, fasteignafélög, lyfjaframleiðslu, ferðaþjónustu, upplýsingatækni, eignaumsýslu, iðnað og eldsneytis- og orkusölu. Fyrirtækin þykja öll vel að nafnbótinni komin enda eru starfshættir stjórna þeirra vel skipulagðir og framkvæmd stjórnarstarfa til fyrirmyndar.

Jón Hreiðar Sigurðsson, verkefnisstjóri Fyrirmyndarfyrirtækja, flutti inngangsorð um verkefniðog Marta Guðrún Blöndal, lögmaður og nefndarmaður í nefnd um stjórnarhætti fyrirtækja flutti erindi. Viðurkenningarnar voru afhentar af Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Fundarstjóri var Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?