Stjórnvísi býður Vörð tryggingafélag hjartanlega velkomið í hóp Stjórnvísifélaga. Hlutverk Varðar er að tryggja fjárhagslegt öryggi viðskiptavina sinna með viðeigandi vátryggingavern. Vörður leggur áherslu á lipra og ábyggilega þjónustu með einfaldleika að leiðarljósi. Gildi félagsins eru;
Frumkvæði
Við komum með nýjar hugmyndir að bættri þjónustu við viðskiptavini.
Við leitum leiða til að bæta og einfalda verkferla. Höfum einfaldleika að leiðarljósi.
Sýnum frumkvæði í öllum okkar störfum, veitum ráðgjöf og leysum aðkallandi vandamál þegar þau koma upp.
Snerpa
Einkennandi fyrir okkur eru hröð en fagleg og traust vinnubrögð.
Við setjum okkur markmið m.t.t. hraða og gæða er varðar afgreiðslu erinda og verklag.
Við þróum vinnusparandi verkferla og höfum góða þekkingu á verkefnum okkar.
Heilindi
Við erum traust og sýnum viðskiptavinum áhuga og ráðum fólki heilt.
Við styðjum hvort annað. Við hrósum fyrir það sem vel er gert og umberum mistök.
Heiðarleiki einkennir samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk