Þann 1. mars næstkomandi verður alþjóðlegi viðburðurinn World Futures Day haldinn í 13. sinn. Um er að ræða opið, 24 klukkustunda netsamtal þar sem framtíðarfræðingar og hugsuðir víðs vegar að úr heiminum ræða mögulegar sviðsmyndir um framtíð mannkyns.
Viðburðurinn hefst kl. 12 á hádegi að nýsjálenskum tíma (þá kl 23:00 þann 28 feb. hér heima) og lýkur sólarhring síðar á Hawaii. Þátttakendur geta komið inn í samtalið hvenær sem er og tekið þátt í opnum umræðum um þróun gervigreindar, loftslagsbreytingar, framtíð vinnunnar, lýðræði framtíðarinnar og fjölmörg önnur viðfangsefni.
Að viðburðinum standa The Millennium Project í samstarfi við fimm alþjóðleg félög á sviði framtíðarfræða. Í ár verður Vint Cerf, einn af frumkvöðlum internetsins, meðal þátttakenda.
Allir áhugasamir eru hvattir til að skrá sig og taka þátt í samtalinu.
Athugið: Skráning er nauðsynleg og fundartengill er persónubundinn.
Sjá viðburðinn undir faghóp framtíðarfræða og gervigreindar. Annar er einnig hægt að skrá sig hér:
https://us02web.zoom.us/meeting/register/y2IYg5T2SZiTojaXo_x94Q#/registration