Activity based work.

Kristinn Jóhannesson sviðsstjóri framkvæmda og tæknisviðs Háskóla Íslands, segir okkur frá skipulagningu húsnæðis Hótel Sögu fyrir Menntavísindasvið m.t.t verkefnamiðaðrar vinnu. En þau fengu til liðs við sig Tim de Vos-Donkers frá Hollandi til aðstoðar.

 

Tim de Vos-Donkers is a senior consultant at Veldhoen company, Netherlands he is a specialist in activity based work. 

 

 

Staðsetning viðburðar

Tengdir viðburðir

Aðalfundur faghóps um Aðstöðustjórnun.

Aðalfundur faghóps um Aðstöðustjórnun verður haldin þann 8. maí kl 12:00

Staðsetning: Tívoli bistro, Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík.

Farið verður yfir viðburði líðandi starfsárs og kosið til stjórnar faghóps og formennsku.

Öll sem hafa áhuga að mæta vinsamlegast hafið samband við formann hópsins Katrín Ólöf Egilsdóttir, katrin@managull.is

 

Eldri viðburðir

Húsnæði og velferð – mikilvægi algildrar hönnunar

Húsnæði og velferð – mikilvægi algildrar hönnunar

Hlekkur á fundinn. 

Harpa Cilia Ingólfsdóttir, byggingafræðingur ætlar að ræða um algilda hönnun og aðgengi í atvinnumannvirkjum, þ.m.t. skrifstofum, opinberum stofnunum, ferðamennsku og íþróttamannvirkjum. Hvað þurfum við að hafa í huga til að umhverfi starfsfólks, gesta og viðskiptavina sé sem hentugast og best útfært til að allir komist um og líði sem best.
Harpa Cilia stofnaði m.a. Aðgengi ehf. árið 2005 og rak það til ársins 2017 og nú starfar Harpa Cilia sem verkefnastjóri á hönnunar- og framkvæmdadeild Landspítalans. 

Við munum einnig heyra frá þeim Birnu Ágústsdóttur verkefnastjóra aðstöðustýringar FSRE og Sólborgu Indíönu Guðjónsdóttur, verkefnastjóra hjá FSRE.
Heiti erindis þeirra er Aðgengi í byggingum – áskoranir og tækifæri en þar fjalla þær um aðgengi í byggingum og mikilvægi þess að hönnun og framkvæmdir taki mið af fjölbreyttum þörfum notenda. Farið verður yfir helstu áskoranir sem geta komið upp í framkvæmdum og hvernig hægt er að bæta aðgengi með markvissri hönnun og góðu samstarfi þeirra sem koma að verkefnum.

Einnig verða tekin dæmi úr endurbótarverkefnum þar sem farið verður yfir raunverulegar aðstæður og þær áskoranir sem geta komið upp þegar bæta á aðgengi í eldri byggingum. Fjallað verður um þær lausnir sem hafa verið nýttar og hvernig nálgast má verkefni af þessu tagi út frá hugmyndafræði algildrar hönnunar með það að markmiði að skapa aðgengilegt og notendavænt umhverfi fyrir sem flesta.

Hljóðvist í skrifstofum

Hlekkur á viðburðinn smelltu til að tengjast

Kristín Ómarsdóttir hljóðráðgjafi hjá Brekke & Strand Akustikk ehf. fer yfir þá þætti hljóðvistar sem geta haft áhrif á vinnuumhverfi í skrifstofum, stutt yfirlit um reglugerðaumhverfið og fjallar síðan um nokkur raundæmi.

Kristín er M.Sc. Umhverfis- og byggingarverkfræðingur, sérhæfing í hljóðverkfræði. Hún hefur 15 ára starfsreynsla sem hljóðráðgjafi og er formaður Íslenska hljóðvistarfélagsins og situr í stjórn Nordic Acoustics Association. Í starfi sínu sinni hún m.a. hljóðhönnun nýbygginga, hljóðhönnun breytinga á eldri byggingum og hönnun úrbóta vegna hljóðvistar.

 

Ólafur Hjálmarsson fjallar um hljóðhönnun og menningu á vinnustöðum.

Ólafur er byggingarverkfræðingur með sérhæfingu í hljóðhönnun/hljóðeðlisfræði og 38 ára reynslu af verkfræðiráðgjöf, hönnun og verkefnastýringu – sérstaklega sem hljóðráðgjafi fyrir flókin byggingarverkefni. Meðal verkefna hans undanfarin ár hafa verið hljóðhönnun í stórum verkefnum svo sem í nýjum Landspítala, í stækkun Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Veröld – Húsi Vigdísar.

 

Fundarstjóri er Sverrir Bollason.

Sverrir er sérfræðingur í fasteignaþróun hjá FSRE og meðlimur í faghópnum um aðstöðustjórnun.

 

 

Í ljósi skynseminnar

Hlekkur á viðburðinn smelltu til að tengjast

 

Fyrsti viðburður faghóps í aðstöðustjórnun haustið 2025 er um lýsingu og áhrif hennar á fólk og byggingar.

Áhrif lýsingar á lífverur og byggingar. Er góð lýsingarhönnun arðbær fyrir fyrirtæki og stofnanir?

Kristján Kristjánsson lýsingarhönnuður MSLL fjallar um lýsingu á vinnustöðum. Kristján vinnur hjá Hildiberg sem er skapandi hönnunarstofa með áherslu á lýsingarhönnun. 

Fundarstjóri er Katrín Ólöf Egilsdóttir, eigandi fyrirtækisins Mánagull plöntuveggir. Katrín er formaður stjórnar faghópsins um aðstöðustjórnun.

Tökum flugið með Icelandair - Heimsókn í nýtt húsnæði Icelandair

Hér undir má finna slóð á streymi fyrir viðburðinn.

Sameiginlegur viðburður faghópa um aðstöðustjórnun og heilsueflandi vinnuumhverfi

Hvernig er vinnustaður framtíðarinnar hannaður í miðjum heimsfaraldri?

Elísabet Helgadóttir, framkvæmdastjóri People & Culture, og Sigrún Össurardóttir, deildarstjóri Workplace Services, hjá Icelandair fara yfir ferðalagið frá ákvörðun um flutning höfuðstöðva úr Vatnsmýri, í upphafi árs 2021, að flutningum í Icelandair húsið í Hafnarfirði í lok árs 2024.

Farið verður yfir áherslur í þarfagreiningu, gagnasöfnun og greiningu sem hönnun hússins byggir á, samtöl og upplýsingagjöf sem spiluðu lykilhlutverk í breytingastjórnun og einnig þá óvissuþætti og áskoranir sem komu upp.   

Viðburðurinn hefst kl.9 og verður haldinn í Icelandair húsinu, Flugvöllum 1, í Hafnarfirði.  Húsið opnar 8:40 og boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.

Streymi á viðburðinn má nálgast hér.

 

Aðalfundur faghóps í Aðstöðustjórnun

Aðalfundur Aðstöðustjórnun

Join the meeting now

 

Þriðjudagur 6. maí kl 13:00

Dagskrá

1.Uppgjör líðandi starfsárs
2.Stjórn 2025-2026
3.Kosning formanns
4.Áherslur næsta árs
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?