20
ágú.
2026
20. ágú. 2026
12:00 - 13:00
/
Nauthóll
Fimmtudaginn 20.ágúst nk. mun 17 fyrirtækjum verða afhentar viðurkenningar fyrir stjórnarhætti sína ásamt nafnbótinni "Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum".
Markmið verkefnisins og viðurkenningarinnar er að stuðla að umræðum og aðgerðum sem efla góða stjórnarhætti.
Viðurkenningar byggja á úttektum á stjórnarháttum þeirra félaga/fyrirtækja sem eru þátttakendur í verkefninu og taka mið af leiðbeiningum sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi gefa út.
Á annan tug viðurkenndra aðila vinna úttektirnar á fyrirtækjunum en umsjón með verkefninu og viðurkenningarferlinu er í höndum Stjórnvísi.
Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands verður fundarstjóri.
Marta Guðrún Blöndal flytur erindi.
Jón Hreiðar Sigurðsson verkefnisstjóri Fyrirmyndarfyrirtækja flytur inngangsorð um verkefnið.
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins afhendir viðurkenningarnar.
Verkefnið er samstarfsverkefni Nasdaq á Íslandi, Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Stjórnvísi.