10
nóv.
2026
10. nóv. 2026
09:00 - 11:00
Faghópar Stjórnvísi um gæðastjórnun og verkefnastjórnun ásamt Verkefnastjórnunarfélagi Íslands (VSF) bjóða til sameiginlegs Kaffis og kafað á dýptina – lifandi morgunfundar þar sem við ætlum að skoða snertifleti gæðastjórnunar og verkefnastjórnunar. Verkefna- og gæðastjórnun eiga margt sameiginlegt, umbætur verða að verkefnum, verkefni þurfa skýr markmið og eftirfylgni, áhættur þarf að greina og stýra og lærdómur skilar litlu ef hann kemst ekki aftur inn í starfsemina.
En hvernig gerum við þetta vel í praktík?
Við ætlum ekki að eyða morgninum í langa fyrirlestra heldur kafa beint í samtalið. Sett verða upp umræðuborð með mismunandi viðfangsefnum þar sem þátttakendur velja sér það sem þeir hafa mestan áhuga á að ræða.
Umræðuefni gætu meðal annars verið:
- Umbótaverkefni – hvernig förum við frá góðri hugmynd yfir í raunverulegan og varanlegan árangur?
- Áhættustjórnun – hvað geta verkefnastjórnun og gæðastjórnun lært hvor af annarri?
- Lærdómur og þekking – hvernig tryggjum við að reynsla úr verkefnum nýtist í næsta verkefni og daglegum rekstri?
- Ferlar og verkefni – hvar tekur annað við af hinu og hvernig tryggjum við gott samspil?
- Mælingar og árangur – erum við að mæla það sem raunverulega skiptir máli?
- Fólkið, breytingar og innleiðing – hvernig tryggjum við að umbætur og verkefni lifi áfram eftir að verkefninu lýkur?
Og kannski kemur besta umræðuefnið frá þátttakendum sjálfum!
Á hverju borði verður umræðustjórnandi sem heldur utan um samtalið, en áherslan er á reynslu, spurningar, áskoranir og hugmyndir þátttakenda. Gert verður ráð fyrir að fólk geti fært sig á milli borða og þannig kafað ofan í fleiri en eitt viðfangsefni.
Í lokin tökum við stutta sameiginlega samantekt og deilum helstu lærdómum og hugmyndum frá borðunum – svo allir fari heim með aðeins meira í farteskinu en þeir komu með.
☕ Og auðvitað verða kaffi og kleinur með þessu öllu saman.
Komdu með áskorun, reynslusögu eða bara forvitni. Markmiðið er að læra hvert af öðru, tengja saman fagheima og ræða það sem virkar – og það sem mætti virka betur.
Hlökkum til að kafa á dýptina með ykkur!
Staðsetning fundarins er Engjateigur 9, kjallari