Háskólinn í Reykjavík stofa M217 Menntavegi, Nauthólsvík
Stefnumótun og árangursmat,
Faghópur Stjórnvísi um „stefnumótun og árangursmat“ býður til viðburðar í samstarfi við forsætisráðuneyti þar sem Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnar, fjallar um mótun atvinnustefnu Íslands, eftirfylgni og mat á árangri í framkvæmd.
Dagskrá:
Davíð Lúðvíksson, Rekstrarverkfræðingur, um faghópinn og mikilvægi stefnu og árangursmælinga í uppbyggingu atvinnulífs.
Sveinbjörn Finnsson, aðstoðarmaður ríkisstjórnar, um atvinnustefnu þjóðar, eftirfylgni og árangursmat.
Að erindinu loknu verður opnað fyrir spurningar og samtal þátttakenda undir stjórn fundarstjóra. Bjarki/Rósbjörg
Viðburðurinn er kjörið tækifæri til að skiptast á reynslu og mynda tengsl aðila sem koma að stefnumótunarstarfi, eftirfylgni og árangursmati áhersluverkefna.
Hægt er að mæta á staðinn og hitta kollega eða fylgjast með viðburðinum á Teams.
https://www.stjornarradid.is/verkefni/atvinnuvegir/atvinnustefna-islands/