Titill: Wonka - Stjórnkerfi Spretts
Efni: Þann 25. maí ætlar Pétur Orri Sæmundsen að kynna stjórnkerfi Spretts [ http://sprettur.is/ ] með sérstaka áherslu á sjónstjórnun (visual management).
Sprettur er ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í Lean og Agile upplýsingatækni. Sprettur er leiðandi afl í umbreytingu á íslenskri upplýsingatækni og hefur unnið með fjölmörgum fyrirtækjum bæði stórum og smáum í innleiðingu á Lean og Agile aðferðum. Í kynningunni verður farið yfir undirliggjandi hugmyndafræði stjórnkerfisins og kynntar helstu töflur sem Sprettur notar við stjórnun.
Markmiðið með kynningunni er sýna nokkrar leiðir til þess að beita sjónstjórnun og sjónhugsun (visual thinking).
Fundurinn er haldinn í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík
Gæðastjórnunarhópur: Hvert skal haldið? Hvert skal stefnt? Hvaða leið? Hvaða hest?
Gæðastjórnunarhópur Stjórnvísi auglýsir:
Hvert skal haldið? Hvert skal stefnt? Hvaða leið? Hvaða hest?
Í innleiðingu stefnu og starfsáætlunar´Landsspítala á rannsóknarsviði.
Fimmtudaginn 26.maí 2011
kl. 08:00 - 09:30
Í Hringsal Landsspítalans
Salurinn er á jarðhæð Barnaspítala Hringsins
Fundurinn er í umsjá Kristínar Jónsdóttur MSc gæðastjóra á rannsóknarsviði LSH.
Fjallað verður um gæðakerfi og gæðamarkmið Landspítalans.
Sameiginlegur fundur mannauðs- og sköpunargleðisfaghóps verður haldinn fimmtudaginn 26. maí kl. 8:30 -10 hjá RÚV.
„Að kunna góðri lukku að stýra,“
Berglind G. Bergþórsdóttir, mannauðsstjóri RÚV, mun segja okkur frá tengingu mannauðsstjórnunar og sköpunargleði – frá reynslu sinni og brillíant hugmyndum sem hún hefur náð að stýra.
Sigurður Ragnarsson, kennari við HR og doktorsnemi í leiðtogafræðum, ætlar að ræða um hlutverk leiðtogans í nýsköpun og sköpunargleði, hvernig leiðtogar geta plægt akur þar sem góðar hugmyndir spretta.
Teitur Helgason, forseti Aiesec á Íslandi, fjallar um mismunandi leiðir til að koma með hugmyndir (brainstorma).
Fjöldatakmörkun er á fundinn