Umhverfisstjórnun á Umhverfis-og samgöngusviði Reykjavíkurborgar í samræmi við ISO 14001 staðalinn

Dagsetning: 5.maí kl.08:15-09:30
Staðsetning: Borgartúni 12-14, 7.hæð fundarsalur Hof
Heiti fyrirlesturs: Umhverfisstjórnun á Umhverfis-og samgöngusviði Reykjavíkurborgar í samræmi við ISO 14001 staðalinn.
Fyrirlesari:  Guðmundur B. Friðriksson gæðastjóri Umhverfis-og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar
Efni:  Megin áherslan verður á umhverfisstjórnun á Umhverfis-og samgöngusivði Reykjavíkurborgar í samræmi við ISO 14001 staðalinn- innleiðing og reynsla.  Einnig verður farið yfir umhverfisstarf hjá Reykjavíkurborg - markmið í loftslags og gæðamálum, úrgangsstjórnun, vistvæn innkaup, græn skref o.fl.

Aðalfundur Stjórnvísi 2011

AÐALFUNDUR STJÓRNVÍSI 
Aðalfundur Stjórnvísi 2011 verður haldinn fimmtudaginn 5. maí kl. 16.00 til 18.00 í Ofanleiti 2. í fyrirlestrasal á fyrstu hæð. 
 
Dagskrá aðalfundar
 
Venjuleg aðalfundarstörf:
 
1.     Kjör fundarstjóra og ritara.
2.     Skýrsla formanns.
3.     Skýrsla framkvæmdastjóra.
4.     Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
5.     Breytingar á lögum félagsins.
6.     Kjör formanns.
7.     Kjör þriggja stjórnarmanna til næstu tveggja ára.
8.     Kjör tveggja varamanna í stjórn til næstu tveggja ára.
9.     Kjör fagráðs.
10.    Kjör skoðunarmanna reikninga.
11.    Önnur mál.
 
 
Allir félagsmenn eiga kost á að bjóða sig fram til formanns og í stjórn.
 
Þeir, sem áhuga hafa á að bjóða sig fram, eru vinsamlega beðnir um að tilkynna það í pósti til  stjornvisi@stjornvisi.is
 
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn.
 
Stjórnin.
 

Sköpunargleði: CCP

Faghópur um Sköpunargleði boðar til fundar þann 6.maí nk.
Fundarstaður: CCP
Tími:  08:30 - 10:00
 
Fyrirlesarar:  CCP mun kynna hvernig þeir nýta sköpunargleði í starfi sínu
Sigrún Jóhannesdóttir, Fræðslumiðstöð Atvinnulífsins mun fjalla um fræðin á bakvið sköpunargleði
Að efla skapandi hugsun í námi og starfi
Ásta Valdimarsdóttir, hlátursjógakennari og hlátursambassador 
Hernig hláturjóga getur aukið sköpunargleðina

Þróunarferill og hugbúnaðarþróun hjá Össuri

Fyrirlestur: Þróunarferill og hugbúnaðarþróun hjá Össuri
Dagsetning: 9. maí
Tímasetning: 09:00 – 10:00 
Nánari lýsing:
Ragnar Sverrisson byrjar á því að kynna lauslega þróunarferilinn hjá Össuri og í framhaldinu mun Rögnvaldur Sæmundsson fjalla um hugbúnaðarþróun hjá Össuri með sérstaka áherslu á ÍST EN ISO 62304-2006, Medical device software - Software life-cycle processes. 
Staðsetning fundar: Össur, Grjóthálsi 5 110 Rvk.  / 4 hæð
Framsögumenn: Ragnar Sverrisson, Platform Manager - Mechatronics, R&D
og Rögnvaldur Sæmundsson, R&D Engineer
 

Lean: Landsbankinn

 
Lean í Landsbankanum
 
Hulda Hallgrímsdóttir verkefnastjóri fjallar um hvað hefur gerst, er að gerast og mun vonandi gerast varðandi notkun á hugmynda- og aðferðafræði Lean í Landsbankanum.  Um er að ræða kynningu sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara, sérstaklega ekki þeir sem eru að velta fyrir sér að hefja innleiðingu eða eru að stíga sín fyrstu skref í notkun á Lean innan sinnan fyrirtækja.
 
Í lok kynningar verður aðalfundur Lean- faghópsins haldinn á örfáum mínútum. Dagskrá:
1)      Skýrsla stjórnar
2)      Kosning í stjórn
3)      Önnur mál
 
 
Fyrirlestrarsal fræðsludeildar Landsbankans, Thorvaldsensstræti 4, 5. hæð.
 
Kl. 08:30-10:00.

Wonka - Stjórnkerfi Spretts

 
 
Titill: Wonka - Stjórnkerfi Spretts 
Efni: Þann 25. maí ætlar Pétur Orri Sæmundsen að kynna stjórnkerfi Spretts [ http://sprettur.is/ ] með sérstaka áherslu á sjónstjórnun (visual management). 
Sprettur er ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í Lean og Agile upplýsingatækni. Sprettur er leiðandi afl í umbreytingu á íslenskri upplýsingatækni og hefur unnið með fjölmörgum fyrirtækjum bæði stórum og smáum í innleiðingu á Lean og Agile aðferðum. Í kynningunni verður farið yfir undirliggjandi hugmyndafræði stjórnkerfisins og kynntar helstu töflur sem Sprettur notar við stjórnun. 
 
Markmiðið með kynningunni er sýna nokkrar leiðir til þess að beita sjónstjórnun og sjónhugsun (visual thinking).
Fundurinn er haldinn í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík
 

Gæðastjórnunarhópur: Hvert skal haldið? Hvert skal stefnt? Hvaða leið? Hvaða hest?

Gæðastjórnunarhópur Stjórnvísi auglýsir:
Hvert skal haldið? Hvert skal stefnt? Hvaða leið? Hvaða hest?
Í innleiðingu stefnu og starfsáætlunar´Landsspítala á rannsóknarsviði.
Fimmtudaginn 26.maí 2011
kl. 08:00 - 09:30
Í Hringsal Landsspítalans
Salurinn er á jarðhæð Barnaspítala Hringsins

 Fundurinn er í umsjá Kristínar Jónsdóttur MSc gæðastjóra á rannsóknarsviði LSH.
Fjallað verður um gæðakerfi og gæðamarkmið Landspítalans.

Að kunna góðri lukku að stýra!

Sameiginlegur fundur mannauðs- og sköpunargleðisfaghóps verður haldinn fimmtudaginn 26. maí kl. 8:30 -10 hjá RÚV.
„Að kunna góðri lukku að stýra,“  
 
Berglind G. Bergþórsdóttir, mannauðsstjóri RÚV, mun segja okkur frá tengingu mannauðsstjórnunar og sköpunargleði – frá reynslu sinni og brillíant hugmyndum sem hún hefur náð að stýra.
 
Sigurður Ragnarsson, kennari við HR og doktorsnemi í leiðtogafræðum, ætlar að ræða um hlutverk leiðtogans í nýsköpun og sköpunargleði, hvernig leiðtogar geta plægt akur þar sem góðar hugmyndir spretta.
 
Teitur Helgason, forseti Aiesec á Íslandi,  fjallar um mismunandi leiðir til að koma með hugmyndir (brainstorma).
 
Fjöldatakmörkun er á fundinn

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?