ágúst 2026

Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur Sunnudagur
27
  •  
28
  •  
29
  •  
30
  •  
31
  •  
01
  •  
02
  •  
03
  •  
04
  •  
05
  •  
06
  •  
07
  •  
08
  •  
09
  •  
10
  •  
11
  •  
12
  •  
13
  •  
14 15 16
  •  
17
  •  
18
  •  
19
  •  
20 21
  •  
22
  •  
23
  •  
24
  •  
25
  •  
26
  •  
27 28
  •  
29
  •  
30
  •  

Stjórnarfundur stjórn Stjórnvísi (lokaður fundur)

Stjórnarfundir Stjórnvísi eru haldnir fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl.11:00-12:00. Í stjórn félagsins eru 9 aðilar og eru fundir til skiptis á Teams og á vinnustöðum stjórnarfólks. Þema starfsársins er „ Manneskjan í miðju umbreytinga – 40 ára og áfram “. Á fyrsta vinnufundi stjórnar sem haldinn var í maí 2026 gerði stjórn með sér samskiptasáttmála þar sem m.a. var rætt um að:

  1. Mæta undirbúin á stjórnarfundi 2. Mæta tímalega 3. Taka ábyrgð á verkefnum 4. Hafa uppbyggilega gagnrýni 5. Samskipti séu opin og eðlileg 6. Vera á staðnum 7. Allt stjórnarfólk sé virkt í starfi stjórnar 8. Stjórn ákveði sameiginlega hvar og hvernig samskipti eiga sér stað; tölvupóstur sé hinn formlegi vettvangur utan funda, en að fundir og spjall eigi sér stað á Microsoft Teams.

Stjórn er komin með drög að áhersluverkefnum starfsársins 2026-2027 sem eru fjögur. Þau verða útfærð nánar og sett á þau mælikvarða til að fylgjast með framvindu.

Unnið verður í þessum áhersluverkefnum og fundað um þau sérstaklega milli fastra stjórnarfunda. Öll áhersluverkefni vísa til meginmarkmiða Stjórnvísi, eiga sér undirverkefni og mælikvarða. Formaður og/eða framkvæmdastjóri félagsins stýrir stjórnarfundum þar sem áhersluverkefni stjórnar eru rædd ásamt öðrum verkefnum. Stjórn hefur aðgengi að sameiginlegu svæði í skýinu. Fundargerðir stjórnar eru öllum opnar hér.

 

Áhersluverkefni 2026-2027

  1. Afmælisár Stjórnvísi (Svenni, Ingibjörg)
    1. Sagan sögð
  2. Heimasíða (Anna Kristín og Tinna)
    1. Endurhanna heimasíðuna með t.t. einfaldleika
    2. Heimsóknir á heimasíðu oo
    3. Innskráning af heimasíðu oo

 

  1. Stuðningur við stjórnir faghópa (Héðinn, Snorri)
  1. Viðburðir séu sýnilegir og auglýstir tímanlega ooo
  2. Aukning á virkni faghópa oo
  3. Ábendingar eigi sér skýran farveg ooo
  4. Stjórn sé í reglulegu og góðu sambandi við stjórnir faghópanna ooo
  5. Yfirfara leiðbeiningar til faghópa. Verkferlar félagsins fyrir stjórnir faghópa, faghópafundi og ráðstefnuhald eru skráðir og unnið eftir þeim. Ooo
  6. Festa reglulegar kannanir

  1. Sóknarfæri (Ásdís, Viktor, Matthías )
  1. Fjölgun fyrirtækja oo
        1. Fjölgun fyrirtækja með 200 eða fleiri starfsmenn oo
        2. Fjölgun fyrirtækja með 100-199 starfsmenn oo
  1. Fjölgun á heildarfjölda notenda (innri markaðssetning fyrirtækja) oo
  2. Fjölgun virkra félaga oo
  3. Fjölgun nýrra virkra félaga oo
  4. Fjölgun viðburða oo
  5. Fjölgun félaga á fundum oo
  6. Aukning á nýskráningum í mánuðinum oo
  7. Aukning á félagafjölda í faghópum oo
  8. Aukning á virkum fyrirtækjum oo
  9. Fjölgun nýrra háskólanema oo
  10. Fagmennska sé ávallt höfð að leiðarljósi í öllum störfum ooo
  11. Stjórnin efli og viðhaldi trausti á félagið með fagmennsku að leiðarljósi og starfi skv. stefnu félagsins ooo
  12. Stjórnvísi sé áhugaverður og sýnilegur vettvangur umfjöllunar um faglega stjórnun, miðlun þekkingar og reynslu ooo
  13. Stjórnvísi þróist í takt við við síbreytilegar áherslur og kröfur félagsmanna og atvinnulífsins ooo
  14. Framsæknir og hæfir einstaklingar starfi af heilindum fyrir félagið ooo
  15. Framkvæmdastjóri félagsins hafi leiðtogahæfileika, sé styðjandi og virkur ooo
  16. Dagskrá Stjórnvísi verði aðgengileg fyrir alla landsbyggðina
  17. Fjölgun fyrirtækja á landsbyggðinni
  18. Fjölgun kynninga og fyrirlesara af landsbyggðinni
  19. Fjölgun erlendra fyrirlesara
  20. Hækkun á NPS skori oo
  21. Félagar/stjórnendur faghópa upplifi sig auðugri af þekkingu um stjórnun og leiðtogafærni ooo
  22. Félagar öðlist aukið tengslanet með þátttöku í félaginu oo

 

Á aðalfundi haldinn 5. maí 2026 voru kosin í stjórn félagsins:

Stjórn Stjórnvísi 2026-2027.
Anna Kristín Kristinsdóttir, Engineering Manager Lead, JBT Marel, formaður (2026-2027)
Ásdís Sigurðardóttir gæða- og öryggisstjóri Dranga og dótturfélaga (2026-2028)
Héðinn Jónsson, Chief Product Officer hjá Helix health. (2025-2027)
Ingibjörg Loftsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsu og stjórnun, formaður faghóps um Heilsueflandi vinnuumhverfi (2023-2027)
Matthías Ásgeirsson, Bláa Lónið, stofnandi faghóps um aðstöðustjórnun kosinn í stjórn (2024-2027)
Snorri Páll Sigurðsson, deildarstjóri innkaupastýringar Alvotech, formaður faghóps um innkaupstýringu (2023-2027)
Sveinn Kjarval Internal Event Manager JBT Marel(2026-2028).
Tinna Jóhannsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni ON (2025-2027)
Viktor Freyr Hjörleifsson, mannauðssérfræðingur hjá Vegagerðinni. (2025-2027)

Kosið var í fagráð félagsins.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar (2025-2027)
Haraldur Agnar Bjarnason, forstjóri Auðkennis (2025-2027)
Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar (2026-2028)
Stefán Hrafn Hagalín, framkvæmdastjóri Þrettánellefu (2026-2028)
Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans (2026-2028)

Kosnir voru tveir skoðunarmenn til 2ja ára á síðasta aðalfundi:

Sigríður Soffía Sigurðardóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2024-2026)
Hjördís Ýr Ólafsdóttir, endurskoðunarsviði KPMG (2024-2026)

Ögrandi loftslags framtíðir

Vefmálstofa með dr. Tom Harris

Umsjón: David Wood

Hvað er í raun að gerast með loftslag jarðar? Erum við að nálgast vendimörk sem gætu valdið mun meiri og hraðari breytingum en áður hefur verið talið? Hvaða áhrif hefur El Niño á þróunina? Og hvernig getum við metið ólíkar framtíðarsviðsmyndir þegar vísindamenn eru ekki á einu máli?

Farið inn á þessa vefsíðu og skráið ykkur til þátttöku: https://www.meetup.com/london-futurists/events/315972609/?utm_medium=email&utm_source=braze_canvas&utm_campaign=mmrk_alleng_event_announcement_prod_unfiltered_v7_en&utm_term=promo&utm_content=lp_meetup&dispatch_id=6a71de511504bea2fec1c251173f59db

Í þessari áhugaverðu vefmálstofu verður leitast við að skoða loftslagsmálin út frá vísindalegum grunni. Fjallað verður um eðlisfræðina sem liggur að baki loftslagsbreytingum og þau stjórntæki sem mannkynið hefur til ráðstöfunar til að hafa áhrif á þróunina. Einnig verður rætt um þær hindranir sem standa í vegi fyrir breytingum og hvernig tækni, efnahagsmál, stofnanir, samfélagslegar frásagnir og grasrótarhreyfingar geta sameinast um að draga úr hættu á alvarlegum afleiðingum.

Meðal þeirra spurninga sem teknar verða fyrir eru:

  • Hvað segja nýjustu gögn um þróun loftslagsins?
  • Hvernig virka vendimörk?
  • Hvernig eigum við að bregðast við þegar vísindalegar ályktanir greinir á?
  • Hvaða leiðir standa okkur til boða til að hafa áhrif á framtíð loftslagsins?
  • Hversu brýnt er að grípa til aðgerða?

Fyrirlesari: dr. Tom Harris

Erindi: Ögrandi loftslags framtíðir – Eðlisfræðin, endurgjafarkerfin, stjórntækin og afleiðingar mögulegra viðbragða.

Að loknu erindinu verður opnað fyrir spurningar þátttakenda, umræður og opið samtal um eitt mikilvægasta viðfangsefni samtímans.

Fyrirmyndarfyrirtæki - afhending viðurkenninga (lokaður viðburður)

Fimmtudaginn 20.ágúst nk. mun 18 fyrirtækjum verða afhentar viðurkenningar fyrir stjórnarhætti sína ásamt nafnbótinni "Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum".

Markmið verkefnisins og viðurkenningarinnar er að stuðla að umræðum og aðgerðum sem efla góða stjórnarhætti.

Viðurkenningar byggja á úttektum á stjórnarháttum þeirra félaga/fyrirtækja sem eru þátttakendur í verkefninu og taka mið af leiðbeiningum sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi gefa út.
Á annan tug viðurkenndra aðila vinna úttektirnar á fyrirtækjunum en umsjón með verkefninu og viðurkenningarferlinu er í höndum Stjórnvísi.

 

Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands verður fundarstjóri.

Marta Guðrún Blöndal lögmaður og nefndarmaður í nefnd um stjórnarhætti fyrirtækja flytur erindi. 

Jón Hreiðar Sigurðsson verkefnisstjóri Fyrirmyndarfyrirtækja flytur inngangsorð um verkefnið.

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins afhendir viðurkenningarnar.

Verkefnið er samstarfsverkefni Nasdaq á Íslandi, Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Stjórnvísi.

Hefjum 40 ára afmælisár Stjórnvísi í Hvalasafninu - Kick off fundur - Excelskjal til útfyllingar - Húsið opnar 08:30 heitt kaffi og bakkelsi:

Kæru stjórnendur í faghópum Stjórnvísi.
Smellið hér til að fylla út í skjal á vefnum drög að dagskrá. (sýnishorn fylgir með)

Við ætlum að hefja 40 ára afmælisár Stjórvnísi  í Hvalasafninu fimmtudaginn 27.ágúst. Húsið opnar kl.08:30 og dagskrá hefst kl.09:00. Að fundi loknum gefst þátttakendum kostur á að skoða safnið og fræðast um stærstu spendýr jarðar í einstöku umhverfi. 

Valið á Hvalasafninu sem vettvangi fyrsta fundar starfsársins tengist vel afmælisþema Stjórnvísi "Manneskjan í miðju umbreytinga - 40 ára og áfram".   Hvalir hafa um aldir aðlagast breyttum aðstæðum, ferðast um víðáttumikil höf og lifað í öflugum samfélagögum þar sem samvinna, samskipti og leiðsögn skipta sköpum. Á sama hátt byggir starf Stjórnvísi á fólkinu sjálfu- þekkingu þess, reynslu og hæfni til að leiða breytingar og skapa verðmælti í síbreytilegu umhhverfi.

Tilgangur fundarins er að hefja nýtt starfsári af metnaði og samstöðu.

Farið verður yfir þau verkfæri og stuðning sem auðvelda stjórnum faghópa starfið framundan, skaðaður vettangur til að samræma hugmyndir og samstarf milli faghópa og rætt um helstu tækifæri og áskoranir starfsársins. Umfram allt er markmiðið að veita innblástur og styrkja tengsl þeirra sem leiða hið öfluga fagstarf Stjórnvísi. 

Stjórnir faghópa eru hvattar til að hittast í ágúst, njóta saman hádegisverðar í boði félagsins og  hefja undirbúning að dagskrá komandi starfsárs. Ágúst er jafnframt kjörinn tími til að tryggja þátttöku fyrirlesara og leggja grunn að öflugri viðburðarö' vetrarins. 

Stjórn vekur athygli á að stjórnum faghópa gefst tækifæri a.m.k. tvisvar á starfsárinu að hittast í hádegisverði hvar sem er í boði félagsins, hægt er að setja í reikning á Nauthól, Vox og á Kringlukránni. Mikilvægt er að kvitta undir reikninginn og skrifa nafn faghópsins. Ef aðrir staðir verða fyrir valinu er afrit af reikningi sent á Stjórnvísi og reikningurinn greiddur samdægurs.

Stefnt er að því að senda út fyrstu drög að dagskrá  til félaga í byrjun september. 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?