Glæstar vonir - Háskólinn í Reykjavík og Controlant segja frá

Click here to join the meeting

Dagskrá:

09:00 – 09:05  Bryndís Pjetursdóttir, stjórnarmeðlimur faghóps um breytingastjórnun kynnir faghópinn og stýrir fundinum

09:05 – 09:20  Þóranna Jónsdóttir, stjórnendaráðgjafi og lektor við HR fjallar um breytingaþarfir, væntingastýringu og hvernig athygli á mannlega áhættustýringu í breytingaferlum getur aukið árangur

09:20 – 09:50   Aðalheiður Pálmadóttir, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Controlant fjallar um stigveldisbreytingar hjá fyrirtækinu á tímum farsóttar og fjarvinnu

09:50 – 10:00  Umræður og spurningar

Staðsetning viðburðar

Eldri viðburðir

Aðalfundur faghóps um breytingastjórnun

Aðalfundur faghóps um breytingastjórnun verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl kl 12:00-12:30. Við verðum með fjarfund og hvetjum áhugasama til þess að vera með. Einnig geta áhugasamir haft samband (brynjarrafn@live.com) vakni spurningar eða hafi þeir áhuga á að taka þátt í starfinu.

Farið verður yfir starfsárið og viðburði þess. Tengill á viðburð: 

Dagskrá:

Yfirferð á starfsári

Kosning til stjórnar og formensku

Önnur mál

From project management to change leadership - you can´t KPI your way out of this.

english below!

Faghópur Stjórnvísi um breytingastjórnun býður ykkur velkomin til staðfundar þriðjudaginn 24. mars kl 8:30-10:00 í húsnæði Isavia ohf. Dalshrauni 3 (1.hæð) í Hafnarfirði. Þar munu Arna Ósk Arnarsdóttir mannauðsstjóri Isavia Innanlandsflugvalla og Lisa Richardsson ráðgjafi og partner hjá Conscious Consulting segja okkur frá stóru og umfangsmiklu umbreytingaverkefni sem þær unnu að með stjórnendum öryggisleitar Keflavíkurflugvallar, en öryggisleitin er fjölmennasta deild flugvallarins. Erindið verður á ensku.
 
Lisa and Arna share with us their experience of working with one of the most regulated and high-pressure environments imaginable, passenger security at KEF Airport, in changing the culture.
Despite solid project delivery, clear governance, and strong operational control, change repeatedly stalled. Not because the plan was wrong but because the leadership lens was too narrow. The breakthrough came when leadership stopped treating culture as a side-effect of systems and processes, and instead began to lead the whole system:
people’s experience, behaviour under pressure, relationships, trust, and the structures shaping everyday decisions.


Hlökkum til að sjá sem flesta.
Faghópur um breytingastjórnun

Endurmörkun vörumerkis - Ferðalag Heima

Faghópur Stjórnvísi í Breytingastjórnun býður til fundar þar sem Pétur Rúnar Heimisson, markaðs- og samskiptastjóri Heima, fjallar um eitt umfangsmesta breytingaverkefni sem skráð félag getur ráðist í: heildarendurmörkun og endurskilgreiningu vörumerkis.
 
Pétur fer yfir vegferðina frá Regin yfir í Heima og rýnir í hvernig nýtt nafn, ný ásýnd og ný frásögn voru mótuð og framkvæmd – bæði út á við og innan félagsins. Þá verður einnig fjallað um hvernig Heimar hóf að starfa í auknum mæli í takt við kjarnastefnu félagsins og hvernig ákvarðanataka, forgangsröðun og rekstrarlegar áherslur voru stilltar af til að styðja við stefnuna í verki.
Erindið verður praktískt og lærdómsríkt: hvað reyndist vel, hverjar helstu áskoranirnar voru og hvaða atriði skipta mestu máli þegar taka á fólk og markað með í svona stórt ferðalag.
 
Fyrirlesari:
Pétur Rúnar Heimisson fer fyrir markaðsmálum, samskiptum og viðskiptavinaupplifun hjá Heimum en áður starfaði hann sem markaðsstjóri Borgarleikhússins og við markaðsmál hjá Nova.
Staðsetning:
Skrifstofa Heima, Hagasmári 1 (Smáralind), gengið inn í vesturenda suðurhliðar.
 

Fáum fólkið með - Lykillinn að árangursríku ferðalagi

Faghópur Stjórnvísi í breytingarstjórnun og Isavia bjóða til fundar þar sem Ásta Lára Jónsdóttir, deildarstjóri verkefnahúss UT og Þröstur Elvar Óskarsson, verkefnastjóri verkefnahúss UT munu segja okkur frá breytingarstjórnun í tengslum við stórt innleiðingarverkefni hjá Isavia.
 
Í erindinu deila Ásta Lára og Þröstur reynslu af breytingastjórnun í tengslum við stórt innleiðingarverkefni þar sem Microsoft Dynamics var tekið upp á áföngum og aðrar lausnir lagðar af. Fyrsti áfangi sneri að útfærslu á upplýsinga,- skjala og samningastjórnun í Viskunni (Microsoft Dynamics) og útleiðingu eldra skjalakerfis. Lögð var sérstök áhersla á að byggja upp markvissa breytingastjórnunarvinnu með verkefnateyminu – meðal annars með sérstakri breytingahandbók. Handbókin varð eitt helsta vinnutólið í gegnum breytingarnar en í henni voru skilgreindar þær breytingar sem áttu sér stað, mótun vörunnar og markaðssetning hennar, kortlagning markhópanna, mótun skilaboða og mælanlegra markmiða auk þess að fylgja eftir áhrifum breytinganna.
 
Við munum fara yfir hvað virkaði vel, hvað hefði mátt betur fara og hvers vegna virkur fókus á breytingastjórnun er lykillinn að árangursríkum verkefnum – ekki bara í tækninni heldur í því að fá fólkið með í ferðalagið
 
Fyrirlesarar verða,
Ásta Lára Jónsdóttir - Deildarstjóri Verkefnahúss UT
Þröstur Elvar Óskarsson - Verkefnastjóri Verkefnahúss UT

Aðalfundur faghóps um breytingastjórnun

Aðalfundur faghóps um breytingastjórnun verður haldinn á Teams 5.maí næstkomandi klukkan 9:00.

Fundardagskrá:

* Uppgjör á starfsári

* Kosning stjórnar

* Önnur mál

 Tengill á fundinn: Join conversation 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?