Hvernig er best að stýra hættum?
Í erindinu mun Eggert fjalla um stigveldi öryggisstýringa með sérstakri áherslu á áreiðanleika tæknilegra stýringa (e. engineering controls) við að draga úr hættum á vinnustöðum og hvernig þær geta bætt úr takmörkunum verklagslegra stýringa (e. administrative controls).
Eggert starfar sem gæða- og öryggisstjóri hjá FSRE og hefur yfir tíu ára reynslu af öryggismálum, meðal annars frá ISAL og sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi hjá Bættu öryggi.
Í framhaldinu mun Axel hjá Eurometal kynna raunveruleg dæmi um búnað sem fyrirtækið hefur hannað og smíðað til að draga úr hættum og auka öryggi á vinnustöðum.
Axel er einn af eigendum Eurometal og ber ábyrgð á hönnunarteymi fyrirtækisins. Hann hefur 16 ára reynslu af hönnun véla og tengdum öryggisbúnaði og hefur komið að verkefnum víða um heim.
Eurometal er vélsmiðja sem sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu vélbúnaðar fyrir iðnað, meðal annars fyrir álver á Íslandi og erlendis. Hjá fyrirtækinu og dótturfélögum þess starfa um 55 manns á Íslandi og í Póllandi.
Fundur í Microsoft Teams
Tengjast í tölvunni, farsímaforritinu eða tæki herbergisins